Fréttablaðið - 07.04.2020, Síða 24

Fréttablaðið - 07.04.2020, Síða 24
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Á bara eftir að finna mér hentugt húsnæði. Er í bráða- birgðahúsnæði eins og er og bý í tveimur ferðatöskum. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Elísabet Rósinkarsdóttir hjúkrunarheimilinu Sóltúni, lést þann 24. mars. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu hefur útför farið fram í kyrrþey. Minningarathöfn verður auglýst síðar. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sóltúns fyrir einstaka umönnun á erfiðum tímum. Guðrún S. Kristjánsdóttir Gunnar Einarsson Jakob Kristjánsson Elsa Björk Gunnarsdóttir Kolbeinn Rósinkar Kristjánsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Viktoría Ágústa Ágústsdóttir frá Aðalbóli, Vestmannaeyjum, andaðist laugardaginn 4. apríl á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu fer útför fram í kyrrþey. Fjölskyldan vill þakka starfsfólki á heilbrigðisstofnuninni fyrir góða umönnun og velvild. Ólafur Ágúst Einarsson Halla Svavarsdóttir Agnes Einarsdóttir Kári Þorleifsson Viðar Einarsson Dóra Björk Gunnarsdóttir Hjalti Einarsson Dagmar Skúladóttir ömmu- og langömmubörn. Elskulegir foreldrar okkar, amma og afi, langamma og langafi, hjónin Jóninna Margrét Pétursdóttir og Reynir Mar Guðmundsson Hveragerði, létust á Landspítalanum 23. mars og 2. apríl. Aðstandendur langar að þakka starfsfólki Landspítalans óeigingjarnt starf við umönnun þeirra. Jarðsett verður í kyrrþey. Minningarathöfn verður auglýst síðar. Pétur Reynisson Áslaug Einarsdóttir Jón Vilberg Reynisson Guðný Ísaksdóttir Þröstur Reynisson barnabörn, barnabarnabörn og Bella. Elsku bróðir okkar, mágur og frændi, Jón Gunnar Sveinsson Skipholti 28, lést laugardaginn 28. mars á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut. Útförin fer fram í kyrrþey. Magnea, Kristján, Hjalti, Haraldur Már, Guðrún og aðrir aðstandendur. Eiginmaður minn og bróðir okkar, séra Einar Guðni Jónsson frá Kálfafellsstað í Suðursveit, f. 13. apríl 1941, lést á Landspítalanum Landakoti 4. apríl sl. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sigrún G. Björnsdóttir, Helga J. Jónsdóttir og Pétur Jónsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, og langamma, María Bæringsdóttir Skólastíg 14a, Stykkishólmi, lést á Sjúkrahúsinu í Stykkishólmi þriðjudaginn 31. mars sl. Í ljósi aðstæðna mun útför hennar fara fram í kyrrþey. Minningarathöfn verður haldin síðar. Þeim sem vilja heiðra minningu Maríu er bent á Minningarkort Dvalarheimilis aldraðra í Stykkishólmi, s. 433-8165, til stuðnings félagsstarfi eldri borgara. Árþóra Ágústsdóttir Þorsteinn Gunnarsson Harpa Ágústsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri sonur, bróðir og mágur, Sigurður Halldór Sverrisson lést á Landspítalanum Fossvogi 5. apríl. Útför fer fram í kyrrþey. Starfsfólki Landspítalans eru færðar þakkir fyrir einstaka umönnun við erfiðar aðstæður. Fyrir hönd aðstandenda, ættingja og vina. María Sigurðardóttir Sverrir Gunnarsson Inga María Sverrisdóttir Guðfinnur Einarsson Svanhildur Kr. Sverrisdóttir Bjarni Bjarnason Marteinn Sverrisson Margrét Halldórsdóttir Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts eiginkonu minnar, Álfheiðar Sigurgeirsdóttur og vottuðu minningu hennar ást og virðingu. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilisins Sóltúns sem annaðist hana af einstakri alúð í veikindum síðustu ára. Fyrir hönd aðstandenda, Páll Bjarnason Hú n Ma rg rét Ma r ía Sigurðardóttir segir fegurðina guðdómlega sem við henni blasi út um glugga skrif-stofunnar á nýja vinnu- staðnum hennar á Eskifirði, yfir fjörð- inn og á Hólmatindinn hinum megin. „Það var allt á kafi í snjó hér í gær, bara gaman að kynnast því aðeins. Snjór róar,“ segir hún jákvæð. Margrét tók við starfi lögreglustjóra á Austurlandi nú um mánaðamótin. Það kallar á búferla- f lutninga af höfuðborgarsvæðinu. „Ég kem til með að búa hér á Eskifirði eða á Reyðarfirði, á bara eftir að finna mér hentugt húsnæði. Er í bráðabirgðahús- næði eins og er og bý í tveimur ferða- töskum,“ segir hún hress. Margrét er þekkt fyrir fyrri störf sín, meðal annars sem framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu og umboðsmaður barna.  Hún starfaði eitt sumar sem sýslumaður og lögreglustjóri á Ísafirði og hefur verið sýslufulltrúi hjá fjórum embættum, þá meðal annars með lögreglumálin. „Starfsferill minn hefur falist í rekstri ríkisstofnana,“ segir hún.  „En tengist líka mannréttindum sterkt og málefni lögreglunnar eru þétt samofin þeim.“ Margrét er fædd og uppalin í Kópa- vogi en kveðst hafa búið víða úti á landi, á Húsavík, Ísafirði, Akureyri, Blönduósi og Seyðisfirði. „Fyrrverandi maðurinn minn var dýralæknir og fékk afleysinga- störf hér og þar,“ útskýrir hún. „Lengst var ég á Húsavík og þegar ég skildi f lutti ég til Akureyrar og bjó þar í fjögur ár, þannig að ég þekki landsbyggðina vel og þykir einstaklega vænt um hana.“ Hún segist líka eiga sögulegar rætur á Austur- landi. „Foreldrar mínir f luttu á Seyðis- fjörð þegar ég var á 17. ári og bjuggu þar í átta ár. Mamma var sérkennari og pabbi sýslumaður og lögreglustjóri í Norður-Múlasýslu. Ég átti lögheimili þar og var þar alltaf eitthvað.  Langafi minn, Ingvar Nikulásson, var prestur á Skeggjastöðum við Bakkafjörð og afi minn, Helgi, ólst þar upp. Hann lærði læknisfræði og ætlaði alltaf að koma til baka sem læknir austur á land en fékk berkla og lífið æxlaðist þannig að hann varð berklalæknir á Vífilsstöðum. Þessi þrá hans austur varð samt til þess að pabbi f lutti á Seyðisfjörð og Austur- landið togaði í mig líka. Móðir mín lést í nóvember síðastliðnum, börnin mín eru uppkomin og nú fannst mér  rétti tíminn til að sækja um hér.“ Umdæmi sýslumannsins á Austur- landi nær suður  fyrir Djúpavog og norður að Bakkafirði, að sögn Margrét- ar. Meðal verkefna þess segir hún vera almannavarnir og aðrar fyrirbyggjandi aðgerðir, einnig fylgi ýmislegt ferjunni, þegar hún sé í förum, í sambandi við innf lutning, ferðamenn og hælisleit- endur.“ Starfsfólk embættisins skiptir tugum og er dreift. „Ég get ekki haldið starfsmannafund vegna faraldursins og ég náði heldur ekki að kveðja sam- starfsfólkið í fyrra starfi, nema með tölvupóstum. Þetta er ekki skemmtilegt. Keyrði ein hingað austur, þorði ekki að fljúga. Reyni bara að fara eftir öllu sem mér er fyrirlagt af þríeykinu og held mig út af fyrir mig. Svo kemur maðurinn minn, hann er með vinnu sem hann getur unnið eitthvað gegnum netið. Allar þessar tæknilausnir sem við búum yfir eru það góða við tímana núna.“ gun@frettabladid.is Austurlandið togaði í mig Margrét María Sigurðardóttir er nýr lögreglustjóri á Austurlandi og líst vel á. Þykir verst að geta ekki hitt annað starfsfólk embættisins en hún verður að hlýða Víði. „Ég þekki landsbyggðina vel og þykir einstaklega vænt um hana,“ segir Margrét. 7 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.