Fréttablaðið - 20.04.2020, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 20.04.2020, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@ frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is ÉG VAR ÞRETTÁN ÁRA ÞEGAR FÓLK VAR MIKIÐ AÐ LEITA TIL MÍN OG SPYRJA HVAR ÞAÐ ÆTTI AÐ BYRJA EF ÞAÐ VILDI TIL DÆMIS DETTA INN Í X-MEN. 2 0 . A P R Í L 2 0 2 0 M Á N U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LICATA sófar og stólar Ný og glæsileg lína í DORMA. Sófar, stólar og skammel úr fallegu og slitsterku áklæði. Aðeins 187.493 kr. LICATA hornsófi Hornsófi í Kentucky koníak áklæði. Hægri eða vinstri tunga. Svartir nettir járnfætur. Stærð: 262 x 226 x 82 cm Fullt verð: 249.990 kr. 25% AFSLÁTTUR HEIMA ER BEST TILBOÐ Heima er best verslaðu á dorma.is og við sendum þér það frítt Breyttur afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 12–18 Laugardaga kl. 12–18 www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði KLIKKAÐU Á VÖRU OG ÞÚ FERÐ BEINT INN Í VEFVERSLUN DORMA.IS HEIMA ER BEST tilboðin Heima er best verslaðu á dorma.is og við sendum þér það frítt STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN UM BÆKLINGINN OKKA R RÚM 2–13 | Mjúkvara og d únn 14–17 | Stólar 18–19 | S ófar 20–29 | Hillur, borð o g skápar 30–33 | Affari og smávara 34-42 Hv er ni g frí se nd in g h já D OR M A vi rk ar www.dorma.is V E F V E R S LU N ALLTAF OPIN Þú finnur nýjan bækling á dorma.is Hv er ni g frí se nd in g h já D OR M A vi rk ar á do rm a.i s LICATA 2ja og 3ja sæta sófar Aðeins 89.993 kr. Sófarnir eru í tvennskonar litum af Kentucky áklæði. Annarsvegar koniak og hinsvegar steingráu. Svartir nettir járnfætur. Stærð 2ja sæta: 159 x 94 x 82 cm. Stærð 3ja sæta: 199 x 94 x 82 cm 2ja sæta fullt verð: 119.990 kr. 3ja sæta fullt verð: 149.990 kr. 112.493 kr. Myndasöguútgef-andinn Bjarni Gautur byrjaði ungur að leið-beina ný ju m lesendum um myndasöguheima ofurhetjanna sem kenndar eru við Marvel og leggur því mikið upp úr því að sög- urnar sem hann gefur út í íslenskum þýðingum byrji á byrjuninni, ef svo má að orði komast, á ferli hverrar hetju fyrir sig. „Þetta er saga sem heitir Thor: Son of Asgard,“ segir Bjarni um fyrstu íslensku bókina um þrumuguðinn Þór sem síðar á eftir að ganga til liðs við hina feykivinsælu Hefnendur, The Avengers, sem vart þarfnast frekari kynningar. „Þegar Marvel er annars vegar veit maður aldrei hvar á að byrja og við áttum þess kost að gefa þetta út í réttri tímaröð. Þetta er fyrsta Þórs sagan og gerist þegar hann er bara táningur,“ segir Bjarni og tekur undir að á nördamáli megi segja um forleik, eða „prequel“, að ræða. „Þetta er áður en hann fer í Avengers, áður en hann verður sá Þór sem við þekkjum.“ Ylhýrar ofurkempur Þetta er fjórða Marvel-þýðingin sem kemur út undir merkjum Hetjumyndasagnaútgáfu Bjarna en upprunasögur Hulk, X-Men og hins ótrúlega Spider-Man ruddu brautina fyrir Þór á táningsaldri. „Hugmyndin með Hetjumynda- sögum er að gefa allt út í réttri tíma- röð,“ heldur Bjarni áfram og bætir við að slíkt hafi ekki verið gert áður með efni frá Marvel og ljóst að útgefendur íslenskra hasarblaða- þýðinga halda sig við sérleiðir þar sem Nexus hefur á allra síðustu árum einbeitt sér að íslenskum þýðingum á sérvöldum og sígildum sögum um Leðurblökuna, sjálfan Batman. Sígildar og sívinsælar ofurhetjur úr herbúðum keppinautanna DC og Marvel hafa nú í á annað ár látið hressilega að sér kveða á íslensku og viðtökur lesenda hafa verið nógu góðar til þess að útgefendur ísl ensku þýðinganna halda ótrauðir áfram. Bjarni segist aðspurður enn óbug- aður og er þegar farinn að huga að næstu bókum; X-Men bók 2, Silver Surfer bók 1 og framhaldinu af æsku- ævintýrum Ása-Þórs. „Hugmyndin er að halda áfram eins lengi og það er áhugi og sem betur fer eru enn nógu margir að kaupa þýðingarnar þannig að við getum haldið áfram að gera þetta.“ Æskuhugsjón í fullorðinsútgáfu Bjarni rak sig ungur á að nýjum les endum væri hætt við að lenda í ógöngum ef þeir legðu blint á Marvel-meginhafið þar sem straum- ar, stefnur og tímalínur mynda ólgandi brotsjó. „Þetta var rosa svona skrítið og ég var þrettán ára þegar fólk var mikið að leita til mín og spyrja hvar það ætti að byrja ef það vildi til dæmis detta inn í X-Men. Það var erfitt en gaman að reyna að hjálpa fólki í gegnum,“ segir Bjarni og bætir við að með íslenskum útgáfum sínum haldi hann í raun þessu starfi áfram. Bara með markvissari hætti, og hann segist þess fullviss að þeir sem hyggi á fyrstu kynni við Marvel- mynda söguheiminn séu í nokkuð öruggum höndum hjá honum.“ Sívinsæl gelgja eilífðarinnar Þegar talið berst að því hvaða Mar- vel-hetja njóti mestra vins ælda hjá ísl enskum lesendum þarf Bjarni ekki að róta djúpt í Excel- skjöl yfir sölutölur. Pétur Parker, Köngu- lóarmaðurinn, með sína ólæknandi unglingaveiki virð ist enn sem fyrr halda ungum les end um í vef sínum. Eins og hann hefur gert í áratugi. „Ég held að Spider-Man sé vinsæl- astur,“ segir útgefandinn og tekur undir að ódrepandi æskufjör Lóa vegi þar þungt. „Það kom mér samt á óvart hversu vinsælir X-Men eru líka en ég hélt að persónurnar sem hafa verið í Marvel-myndunum myndu verða vinsælastar. Þannig að það var gaman að sjá að fólk tók rosa vel í X-Men,“ segir hann um þetta rómaða gengi stökkbreyttra ofur hetja sem hingað til hafa staðið á eigin fótum í kvikmyndum utan stóra Marvel-heimsins. toti@frettabladid.is Ofurhetjur í skugga eilífðargelgjunnar Bjarni Gautur leggur áherslu á að íslenskar þýðingar á sögum um Marvel-hetjurnar hefjist á byrjunarreit hverrar persónu og kynnir því Þór til sögunnar áður en hann hefur náð tökum á Mjölni. Bjarni Gautur heldur ótrauður áfram hugsjónastarfi sínu með íslenskum útgáfum af upprunasögum helstu Marvel- hetjanna og nú er röðin komin að bernskubrekum fulltrúa okkar á Norðurlöndunum, Ása-Þór. FRÉTTABLAÐIÐ/BIRNA Þrumuguðinn Þór á sér langa sögu sem Marvel-hetja en birtist nú ungur og óreyndur í sögu frá 2009.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.