Fréttablaðið - 20.04.2020, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 20.04.2020, Blaðsíða 35
BÍTIÐ HEIMIR OG GULLI VAKNA Í MORGUNSÁRIÐ Á BYLGJUNNI, STÖÐ 2 VÍSIR OG VÍSIR.IS ALLA VIRKA MORGNA MILLI KL. 06:50 OG 10:00 BÆKUR Georg og magnaða mixtúran BFG Höfundur: Roald Dahl Þýðandi: Sólveig Sif Hreiðarsdóttir Útgefandi: Kver Bókaforlagið Kver hefur endur­ útgef ið tvær bækur eftir hinn snjalla rithöfund Roald Dahl, með myndum eftir Quentin Blake. Mynd irnar eru óaðskiljanlegur hluti af textanum, eins og allir þeir f jölmörgu sem dá barnabækur Dahls vita mætavel. Georg og magnaða mixtúran fjallar um átta ára dreng sem á skelfilega ömmu, hún er illgjörn, orðljót og frek. Börn eiga því ekki að venjast að ömmur kalli þau eigingjarnt svín, en það gerir þessi amma óhikað. Georg litli býr til mixtúru sem á að lækna ömmuna en það tekst ekki, í staðinn stækkar hún ískyggilega mikið. En hún er ekki það eina sem stækkar í þess­ ari sögu. Þetta er stutt, snjöll og fyndin saga með hæfilega miklum hryll­ ingi. Amman er slæg og sýnir Georg einungis grimmd þegar foreldrarnir eru ekki viðstaddir. Hann er eitt af fjölmörgum börnum í sögum Dahls sem verða sjálf að grípa í taumana í samskiptum við fullorðnar mann­ eskjur. Fúkyrðaf laumurinn sem amman lætur út úr sér hlýtur að hrella unga lesendur og þegar hún hverfur úr sögunni hlýtur þeim að vera létt. Þar er um að ræða makleg málagjöld. BFG er saga um munaðarleys­ ingjann Soffíu sem góður risi rænir og fer með í helli sinn. Þar eru fyrir mannæturisar og risinn góði og Soffía ákveða að leita liðsinnis Bretadrottningar í tilraun til að stöðva mannátið. Bókin byggir mjög á alls kyns orðaleikjum. Þar reynir mjög á þýð andann sem leysir verk sitt af prýði. Alls kyns skilaboð og boð­ skapur leyn ast í sögunni, til dæmis um grimmd mannanna sem drepa hver annan. Dahl bar mikla virð­ ingu fyrir börnum og hvatti þau ætíð til bóklesturs og taldi að það væri þeim hollt að lesa upp fyr­ ir sig. Það er því örugglega eng in tilviljun að risinn góði hef ur lært að tala, þótt hann tali undarlega, af því að lesa Nikulás Nickle­ by eftir Charles Dickens. Bókin er ansi hrollvekjandi, góði risinn er sjö metrar, þeir vondu helmingi hærri og borða b æ ð i b ö r n og f u l l orðna með góðri lyst. Um l e i ð e r sagan eink ar s k e m m t i l e g . Dahl kunni, eins og aðdáendur hans vita, fjarska vel að blanda saman skemmt un og hryllingi. Ekki skrýtið að bækur hans hafa verið í stöðugri endurprentun víða um heim. Það er mikið fagnaðarefni að fá þessar bækur aftur á markað. Þær munu ekki bara gleðja þá lesendur sem eru ungir að árum heldur einn­ ig alla þá fullorðnu sem hafa verið svo lánsamir að varðveita barnið í sjálfum sér. Kolbrún Bergþórsdóttir NIÐURSTAÐA: Tveir gullmolar frá Roald Dahl gleðja og kæta en eru um leið spennuþrungnir. Teikningar Quentin Blake eru dásemd. Tveir gullmolar Eirdís Ragnarsdóttir kom í stutta heimsókn til Tókýó í febrúarbyrjun en þegar COVID­faraldurinn skall á með fullum þunga lokaðist hún inni í borginni. Hún lét samt hvergi deigan síga og notaði tímann til að mála og teikna, fann gallerí á besta stað í miðborg Tókýó og setti þar upp sýningu, Vegna nálgunarlokunar í Tókýó mæta fáir í eigin persónu inn í sýningarrýmið en þeir sem eiga leið fram hjá geta skoðað verkin í gegnum gluggana sem eru stórir. Ef þeir banka upp á eru þeir líka velkomnir inn ef þeir eru með andlitsgrímu og virða persónulega fjarlægð á sýningunni. Vegna þessa sérstaka ástands hefur listamaðurinn líka sett verkin á netið þar sem fólk getur skoðað þau. Vefsíða Eirdísar er: www. eirdis.com Heldur sýningu í miðborg Tókýó Verk á sýningunni í Tokyo. Roald Dahl er örugglega í hópi ástsælustu barnabókahöfunda sögunnar. M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19M Á N U D A G U R 2 0 . A P R Í L 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.