Fréttablaðið - 20.04.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 20.04.2020, Blaðsíða 12
FÓTBOLTI Það hefur verið lítið af góðum fréttum frá ítalska boltan­ um að undanförnu. Landið hefur farið illa út úr COVID­19 og ekki er að sjá að deildin fari af stað í bráð. En samkvæmt ítölskum miðl um hefur Gigi Buffon ákveðið að framlengja feril sinn um eitt ár hið minnsta og samþykkt fram leng ingu á samningi sínum við Juv ent us. Buffon hefur alls staðið í rammanum ellefu sinnum á þessu tímabili með Juventus en hann snéri aftur heim til Tórínó síðasta sumar eftir ársdvöl hjá PSG. Buffon hefur alltaf vantað að vinna Meistaradeildina en hann hefur unnið allt annað. Hann gerir sér eflaust vonir um að vinna þá deild á næsta ári til að nánast fullkomna feril inn. Hann verður 43 ára þegar samn ing urinn rennur út. Buffon byrjaði hjá Parma og spil­ aði sinn fyrsta leik 19. nóvember árið 1995 í 0­0 jafntefli gegn AC Milan. Hann var 17 ára og það er alveg hægt að segja að hann hafi slegið í gegn í þessum fyrsta leik því hann varði eftirminnilega frá bæði George Weah og Roberto Baggio. Tveimur árum síðar varði hann vítaspyrnu frá Ronaldo sem þá var í Inter og 1999 vann Parma UEFA bikarinn. Sama ár varð liðið bikarmeistari. Í góðri grein á fótbolta.net, Ostur og fótbolti: Ris og fall Parma: 1990 ­ 2003, kemur fram að þetta hafi verið besta tíma bil Parma. Liðið hafði aðeins verið níu ár í deild þeirra bestu en árang urinn var byggður á sandi og félagið þurfti að selja alla sína bestu leikmenn til að eiga fyrir skuldum. Meðal annars Buffon til Juventus árið 2001. Þar sýndi hann og sannaði að hann var einn besti, ef ekki sá besti, í rammanum. Juventus vann Seríu A og komst í úrslitaleikinn gegn AC Milan í Meistaradeildinni árið 2003. Þar varði hann tvær spyrnur en Juventus tapaði engu að síður. Þegar félagið var svo dæmt niður um deild ákvað Buffon að vera áfram. Juventus þakkaði honum fyrir árið 2006 með því að birta heilsíðu auglýsingu í þremur stærstu íþróttablöðum landsins. Árið 2011 tók Antonio Conte við liðinu og gerði það aftur að stórveldi. Félagið vann þrjá titla í röð, einu sinni án þess að tapa leik og sá þriðji kom með flest stig í sögu Seríu A, 102 hvorki fleiri né færri. Þegar Massimo Allegri kom á hliðarlínu Juventus fór liðið í úrslit Meistaradeildarinnar árið 2015 en tapaði fyrir Barcelona. Buffon varði stórkostlega frá Dani Alves í leiknum. Buffon var þó ekkert að hægja á sér og árið 2016, þegar hann var 38 ára, bætti hann 22 ára gamalt met með því að halda marki Juventus hreinu í 974 mínútur í deildinni. Ári síðar fór liðið enn á ný í úrslita leikinn í Meistaradeildinni og tap aði nú fyrir Real Madrid. Buffon hefur sem sagt þrisvar sinnum farið í úrslitaleikinn en ekki enn lyft bikarnum með stóru eyrun. Hann deilir meti ásamt Paolo Mont ero sem fór einnig þrisvar í úrslita leikinn. Það hafa fjölmargir leikmenn byrj að og hætt eftir að Buffon byrj­ aði að spila árið 1995. Petr Cech er einn af þeim. Þegar Cech spilaði sinn fyrsta leik fyrir Chmel Blsany í Tékklandi árið 1999 var Buffon búinn að spila um 100 leiki í Seríu A. Buffon hafði mikið dálæti á Cech sem markverði. Sagði eitt sinn að Pepe Reina væri besti markvörðurinn með fótunum, Manuel Neuer væri bestur í loftinu, Iker Casillas væri bestur með höndunum en Cech væri engu að síður bestur. Íþróttir eru Buffon í blóð bornar. María móðir hans átti landsmetið í kringlukasti í 17 ár og faðir hans var unglingameistari í spjótkasti og lyfti lóðum sem óður maður. Systur hans spiluðu blak og varð Guendalina Evrópumeistari fyrir Matera blak­ liðið. Báðar spiluðu landsleiki fyr ir Ítalíu. Þá var Lorenzo Buffon, fyrr­ um markvörður AC Milan og Ítalíu, frændi hans. Hann fór þó ekki strax í markið. Hann var á miðjunni í ungl­ inga liði Parma en færði í sig í markið eftir að hafa fengið dálæti á Thomas N´Kono sem spilaði með Espanyol. Sonur hans heitir einmitt Louis Thomas eftir kappanum. Hann á annan son sem heitir David Lee sem eins og flestir vita var söngvari Van Halen. Buffon var giftur hinni tékknesku Alenu Seredova en þau skildu árið 2014. Í dag er hann í sam­ bandi við Ilara D´Amico sem vinn­ ur í ítalska sjónvarpinu. Þau eiga Leópold Matthia saman. Buffon grínaðist einu sinni með að hann myndi spila þangað til hann væri orðinn sextugur. Hann hefur spilað með ógrynni leikmanna og er nú svo komið að hann er farinn að spila við börn fyrrum félaga sinna. Þannig stökk hann til í febrúar, skömmu fyrir lokun landsins, í bikarleik gegn AC Milan og hljóp til Daniel Maldini, sem eins og nafnið bendir til er sonur Paulo Maldini. „Ég bætti þess ari við safnið mitt. Ég á treyjur frá Chiesa feðgunum, Thuram feðg un um, Weah feðgunum og núna Maldini feðgunum." Buf fon varð heimsmeistari árið 2006 þó sætið hans fyrir þá keppni hafi verið sjóðheitt enda var Calciopoli skandallinn þá í gangi. Buffon var meira að segja sakaður um að veðja ólöglega á leiki. Hann var hreinsaður af öllum grun í desember 2006. Á HM 2006 fékk hann á sig tvö mörk. Sjálfsmark og úr vítaspyrnu. Hann varði oft ótrúlega í keppninni, meðal annars gegn Lukas Podolski og Zinedine Zidane í úrslitaleiknum. Hann byrj aði að spila með Ítalíu 1997 og lék alls 176 landsleiki. Hann spilaði á fimm HM og er einn af þremur leikmönnum sem hafa gert það. Hinir eru Antonio Carbajal og Lothar Matthaus. Buffon hefur alltaf verið mikill mann vinur og er þekktur fyrir góð­ verk sín utan vallar. Hann er einn af talsmönnum Respect Diver sity hjá UEFA og í október 2019 var hann útnefndur sendiherra hjá Sam­ ein uðu þjóðunum. Í COVID­19 faraldrinum sem hefur leikið fót­ bolta heiminn grátt sem og heiminn allan er gott að fá að geta séð Buffon eitt ár til viðbótar. „Ástæðan fyrir því að ég held áfram að spila er sú að ég get gefið mér sjálfum, liðsfélögunum og félaginu margar fallegar minn­ ingar, sem er þess virði að lifa fyrir," sagði kappinn fyrir skömmu. benediktboas@frettabladid.is Eitt ár í viðbót hjá Buffon Gigi Buffon ku hafa framlengt samning sinn við Juventus. Þessi 42 ára markvörður hefur unnið allt sem hægt er að vinna, nema Meistaradeildina. HETJA HELGARINNAR Gianluigi Buffon Er fæddur 28. janúar 1978 í Carrara í Toskana. Öll hans fjölskylda var í íþróttum og sé frænd- og frænkugarðurinn skoðaður má finna ansi marga landsliðsmenn í hinum ýmsu íþróttum. Hann var einu sinni forseti Carrarese liðsins frá fæðingarborginni. Liðið spilar í C-deildinni á Ítalíu. Buffon hefur unnið 21 bikar á ferlinum, þar af Seríu A átta sinnum. Hann spilaði fimm sinnum á HM og fjórum sinnum á EM. Buffon spilaði sinn 1000. keppnisleik þegar hann stóð á milli stanganna í marki Ítala gegn Albaníu árið 2017. Hann bætti síðan leikjamet Paolo Mal- dini í Seríu A í desemb- er síðastliðnum. Þegar við hittumst spjöllum við lengi saman. Það er vinátta sem varð til á löngum tíma. Hann hjálpaði mörgum ungum markmönnum, þar á meðal mér. Iker Cassillas 2 0 . A P R Í L 2 0 2 0 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.