Feykir


Feykir - 22.02.2017, Blaðsíða 5

Feykir - 22.02.2017, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF Viktor Guðmundsson á Sauðárkróki er nýbúinn í verkfalli en hann starfar sem matreiðslumaður á togaranum Málmey SK1. Viktor heldur með Manchester United í enska boltanum og óhætt að segja að fjölbreytnin hafi verið allsráðandi hjá honum og bræðrum hans. -Við bræðurnir völdum allir sitthvert liðið. Tommi valdi Liverpool, Elli valdi Arsenal, Gummi Leeds og þá var Manchester United á lausu og ég valdi það, frekar einfalt. Hvernig spáir þú gengi liðsins á tímabilinu? -Leit ekki vel út á tímabili en þetta er allt að koma. Ég held að við gætum náð öðru sæti, lágmarkið er að vera hærra en Liverpool. Ertu sáttur við stöðu liðsins í dag? -Þetta er allt á réttri leið. Þeir fjórir leikmenn sem við fengum fyrir tímabilið eru með þeim betri í liðinu í dag þannig að þjálfarinn kann að velja réttu mennina. Hefur þú einhvern tímann lent í deilum vegna aðdáunar þinnar á umræddu liði? -Já oft. Á marga vini sem halda með Liverpool og eru mjög tapsárir en þetta hefur aldrei endað illa samt. Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og síðar? -David Becham. Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? -Já. Fór með elsta syninum, tengdapabba og mági mínum til London og sá liðið vinna Carling cup á Wembley árið 2010 á móti Aston Villa. Það var þvílík stemning og tengdapabbi, sem er mikill Chelsea aðdáandi, missti sig í fagnaðarlátum og það besta er að við náðum þessu á myndband og spilum þetta reglulega fyrir hann. Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? -Já, treyju og trefil sem var keyptur á Wembley. Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi við liðið? -Ljómandi vel. Frumburðurinn heldur með liðinu og hefur farið með mér á leik. Svo er yngsta prinsessan farin að horfa með mér á leiki og æfa fótbolta. Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag? -Nei, alls ekki. Má það? Uppáhalds málsháttur? -Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur frestað lengur! Einhver góð saga úr boltanum? -Kannski ekki góð saga en eftir- minnileg, þegar Ísak sonur minn spilaði ristarbrotinn (við vissum það ekki fyrr en eftir mótið) heilt fótboltamót og var markahæsti maður liðsins. Þvílík þrautseigja. Einhver góður hrekkur sem þú hefur framkvæmt eða orðið fyrir? -Margir hrekkir en ekkert sem má segja frá. Spurning frá Tomma bróður: – Hvernig heldur þú að enska deildin endi í vor... Topp 5 í þeirri röð sem þú heldur að hún endi í? Svar... 1. Chelsea, (þá verður tengdapabbi glaður) 2. Man. Utd 3. Man. City 4. Arsenal (fyrir Ella bróðir) 5. Liverpool Hvern myndir þú vilja sjá svara þessum spurningum? -Kristján Grétar Kristjánsson, góður vinur minn og tapsár Liverpool aðdá- andi. Hvaða spurningu viltu lauma að viðkomandi? -Hver er besti þjálfari Liverpool frá upphafi? Viktor Guðmundsson Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur frestað lengur ( LIÐIÐ MITT ) palli@nyprent.is Viktor í fullum Manchester United skrúða. MYND: ÚR EINKASAFNI Síðastliðinn miðvikudag keppti María Finnbogadóttir frá Sauðárkróki í svigi á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fór í Erzurum í Tyrklandi. Heppnin var ekki hliðholl Maríu og heltist hún úr lestinni í fyrri umferð og lauk ekki keppni. Félagar hennar, Katla Björg Dagbjartsdóttir og Harpa María Friðgeirsdóttir, urðu hins vegar í 18. sæti með tímann 1:55.28 og í því 26. með tímann 2:01.42. Sigurveg- ari var Nika Tomsic frá Slóveníu með tímann 1:48.64. Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar María óheppin í svigkeppninni „María keyrði sig út úr á fullri ferð ofarlega í brautinni og var auðvitað mjög svekkt því hún ætlaði sér stóra hluti í dag. Hún hefur verið að keyra svigið af miklum krafti í vetur og varð í 10. sæti á FIS-móti í Austurríki fyrir stuttu. En þetta fylgir skíðunum, allt veltur á sekúndubrotum og ein lítil mistök eru dýrkeypt. Þá er bara að hugsa um næsta mót, ekki velta sér upp úr því sem búið er. Gengur bara betur næst!,“ sagði Anna Jóna Guð- mundsdóttir, móðir Maríu sl. miðvikudag. Tveimur dögum fyrr náði María glæsilegum árangri er hún varð í 19. sæti af 53 kepp- endum í stórsvigi. Tími Maríu var þriðji besti tíminn í hennar árgangi. /PF María. MYND: ÚR EINKASAFNI Tveir skag- firskir Íslands- meistarar MÍ í frjálsum Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum innanhúss fór fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík um helgina, 18.–19. febrúar. Þrír Skagfirðingar tóku þátt í mótinu, þau Ísak Óli Traustason, Sveinbjörn Óli Svavarsson og Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir. Hömpuðu þau tveimur meistaratitlum, Ísak Óli í 60 m grindahlaupi á 8,50 sek og Þóranna Ósk í hástökki en hún stökk 1,74 m sem er bæði persónulegt met og skagfirskt héraðsmet. Einnig fékk Ísak Óli bronsverðlaun í langstökki, 7,13 m sem er persónulegt met hjá honum. Nánar má fræðast um úrslit mótsins á slóðinni http://urslitmota.fri.is. Um næstu helgi verður Meistaramót Íslands, 15-22 ára, haldið í Reykjavík. Þar verða þau væntanlega öll á ferðinni aftur, Ísak Óli, Þóranna Ósk og Sveinbjörn Óli, ásamt fleiri Skagfirðing- um. /FE Helgi Viggós og Friðrik Stefáns gera Hlyni Bærings lífið leitt. MYND: ÓAB Ísak Óli hlaut gull og brons. MYND: UMSS Dominos-deildin í körfubolta Tindastólsmenn komnir í annað sæti Það er skammt stórra högga á milli í körfunni þessa dagana. Tindastólsmenn léku við Snæfell sl. fimmtudag í Hólminum og unnu öruggan sigur, 59-104. Á mánudagskvöldið kom Stjarnan síðan í heimsókn í Síkið og gátu komist á topp deildarinnar. Stólarnir höfðu hins vegar meiri áhuga á að koma sér upp fyrir Stjörnuna í annað sætið og unnu frábær- an sigur, 92-69. Leikmenn Tindastóls mættu sem fyrr segir Snæfelli á dög-unum og eftir jafnan fyrsta leikhluta skelltu Stólarnir krafti í varnarleikinn, pressuðu heimamenn stíft og þeir brotnuðu við mótlætið. Staðan í hálfleik var 24-51. Áfram hélt Tindastólslestin í síðari hálfleik og aldrei spurning hvorum megin sigurinn lenti. Hester lék lausum hala og gerði 43 stig í leiknum og Pétur skilaði 20. Í lið Tindastóls vantaði þá Caird, Viðar, Svabba og Pálma Geir og það var aðeins Viðar sem var klár í slaginn af þeim fjórmenningum þegar Stjarn- an kom í heimsókn í fyrra- kvöld. Og það munaði heldur betur um Viðar sem átti senni- lega sinn besta leik með Stólunum. Hann gerði 22 stig í 10 skotum, þar af sex þrista í sex tilraunum, sem er met. Stjarnan var sterkari aðilinn í fyrsta leikhluta en Stólarnir náðu yfirhöndinni fyrir hlé og leiddu 42-34 í leikhléi. Pétur, Viðar og Helgi voru öflugir í sókninni í síðari hálfleik og í hvert sinn sem Stjörnumenn minnkuðu mun- inn þá fengu þeir skvettu til baka. Varnarleikur Tindastóls var frábær í leiknum og lagði grunninn að góðum sigri. Stigahæstir voru Viðar og Hester með 22 stig og Pétur með 21. Næsti leikur er hér heima gegn Þór Þorlákshöfn annað kvöld. /ÓAB 08/2017 5

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.