Feykir - 22.02.2017, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
08
TBL
22. febrúar 2017 37. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Viða
r Þó
r Ás
tvald
sson
Sölu
stjór
i Suð
urlan
d
Sím
i: 48
0 13
06
Gsm
: 86
3 19
71
Netf
ang:
vida
r@o
lis.is
GLÆSIBÆR
GUESTHOUSE
551 Skagafjordur, Iceland
Host: Ragnheidur Erla Björnsdóttir & Friðrik Stefánsson
Tel. 00354 892 5530
E-mail: ragnheidur.bjorns@gmail.com
Dæli Guesthouse
Kristinn Rúnar Víglundsson
Manager
Tel: 0354 865 6074 l E-mail: daeli@daeli.is l w
ww.daeli.is
531 Hvammstangi l Iceland
Sigríð
ur Ká
radót
tir
FRAM
KVÆM
DAST
JÓRI
/ MA
NAG
ER
Borg
armý
ri 5, 5
50 Sa
udár
krók
i, Ice
land
Tel: +
354 4
53 51
2 802
5
Fax:
+354
453
5626
www
.suta
rinn.
is
gesta
stofa
@sut
arinn
.is :: s
igga
@sut
arinn
.is
GISTING HESTALEIGAHESTAFERÐIR
Elvar Einarsson & Fjóla Viktorsdóttir
Syðra Skörðugil, 560 Varmahlíð, Iceland
Tel: +354 893 8140 / +354 897 0611
info@sydraskordugil.is
www.sydraskordugil.is
HORSEBACK RIDING &
ACCOMMODATION
FYRIRTÆKI OG
FERÐAÞJÓNUSTUAÐILAR
tilboð á nafnspjaldaprenti
H Ö N N U N P R E N T U N S K I L T A G E R Ð
Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
H Ö N N U N P R E N T N S K I L T A G E R Ð
Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Kvennakórinn Sóldís bauð upp á
stórgóða tónleika á konudaginn í
Menningarhúsinu Miðgarði í
Skagafirði. Dagskráin bauð upp á
fjölbreytt lagaval; klassísk óperu-
kórverk, dægurlög og þjóðlög á
ýmsum tungumálum. Að venju
var svo boðið upp á dýrindis
veisluhlaðborð í lokin. Ragnheiður
Petra Óladóttir þreytti frumraun
sína sem einsöngvari með kórnum.
Kórinn er skipaður 53 konum
úr Skagafirði og Austur-Húna-
vatnssýslu og eru kórstjórinn,
Helga Rós Indriðadóttir, og
undirleikarinn, Rögnvaldur Val-
bergsson, innfæddir Skagfirðingar.
Á tónleikunum komu fram þrír
einsöngvarar, þær Ólöf Ólafs-
dóttir, Íris Olga Lúðvíksdóttir og
Ragnheiður Petra Óladóttir, sem
kom fram í fyrsta sinn sem slíkur í
Skagafirði.
Petrea tók þátt í Óperu-
akademíu unga fólksins í Hörpu á
síðasta ári og er óhætt að segja að
frumraunin hafi tekist vel og voru
undirtektir áhorfenda eftir því.
Þær Ólöf og Íris Olga hafa áður
sungið einsöng með kórnum og
gera það einkar vel. Íris söng á
ensku en Ólöf gerði gott betur og
Áskell Heiðar ráðinn
framkvæmdastjóri
Landsmóts hestamanna í Reykjavík 2018
Ný stjórn Landsmóts hestamanna, sem fram fer í
Reykjavík 2018, hefur ráðið Áskel Heiðar Ásgeirsson
framkvæmdastjóra mótsins. Áskell Heiðar hefur
skipulagt fjölda viðburða hérlendis á undanförnum árum
t.d. tónlistarhátíðina Bræðsluna, auk þess að stýra
Landsmóti hestamanna sem fram fór á Hólum í
Hjaltadal sl. sumar. Þá kennir hann einnig
viðburðastjórnun og ferðamálafræði við Háskólann á
Hólum og Háskóla Íslands.
Mótið mun marka ákveðin tímamót í rekstri
landsmóta, en þetta verður í fyrsta sinn sem
Landssamband hestamannafélaga mun ekki sjá um
mótið, heldur mun hestamannafélagið Fákur sjá alfarið
um mótshaldið með dyggum stuðningi Reykjavíkurborgar
líkt og á síðstu landsmótum sem haldin hafa verið í
Reykjavík. Fákur hefur stofnað sérstakt félag, LM 2018
ehf. og skipað því sérstaka stjórn sem mun stýra skipu-
lagningu mótsins.
Búist er við miklum fjölda gesta á landsmótið sem
fram fer fyrstu vikuna í júlí 2018 og að sögn Áskels
Heiðars verður fyrsta verkefnið að undirbúa sölu á
aðgöngumiðum og pökkum fyrir erlenda gesti þar sem
hægt verður að kaupa gistingu með aðgöngumiðunum.
Þá mun nú fara af stað vinna við að virkja þann mikla
kraft sem býr í hestamönnum og koma af stað starfshópum
sem taka að sér ákveðin verkefni í undirbúningi mótsins.
„Landsmót er samvinnuverkefni þar sem mjög margir
leggja hönd á plóg og hér í Reykjavík, eins og víða annars
staðar, er til mikill mannauður og mikil þekking á svona
mótahaldi, það verður mitt stærsta verkefni á næstu
mánuðum að virkja þennan mannauð“ segir Áskell
Heiðar. /Fréttatilkynning
Stjórn Landsmóts hestamanna 2018 ásamt framkvæmdastjóra sem
er lengst til vinstri á myndinni. MYND: LH
Flottur kór með stórgóða tónleika. MYNDIR: PF
Konudagstónleikar í Miðgarði
Sungið af innlifun
www.skagafjordur.is
Samkvæmt 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt að fyrir
liggur skipulagslýsing vegna gerðar deiliskipulags fyrir íþróttasvæðið við
Skagfirðingabraut á Sauðárkróki.
Deiliskipulagssvæðið afmarkast af Skagfirðingabraut að austan, Nöfum að vestan,
Flæðum að norðan og skólalóð Árskóla að sunnan.
Deiliskipulaginu er ætlað að skapa ramma um væntanlega breytingu á vallarsvæði
íþróttasvæðisins þar sem m.a. er fyrirhugað að koma fyrir gervigrasvelli í stað
núverandi grasvallar með afmarkadi girðingu og lýsingu á möstrum.
Ofangreind skipulagslýsing liggur frammi til kynningar hjá skipulags- og
byggingarfulltrúa og í afgreiðslu Ráðhúss Sveitarfélagsins Skagafjarðar að
Skagfirðingabraut 17-21 á Sauðárkróki.
Að auki er hægt að nálgast skipulagslýsinguna á heimasíðu sveitarfélagsins
www.skagafjordur.is
Ábendingar við efni skipulagslýsingarinnar berist skriflega til skipulags- og
byggingarfulltrúa eða á netfangið jobygg@skagafjordur.is fyrir miðvikudaginn 8.
mars 2017.
Auglýsing um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Skagafirði
Íþróttasvæðið við Skagfirðinga-
braut á Sauðárkróki
Sauðárkróki 20. febrúar 2017
Jón Örn Berndsen
skipulags- og byggingarfulltrúi.
söng á swahili og að sjálfsögðu
söng kórinn með.
Húsfyllir var á tónleikunum og
klöppuðu gestir hressilega fyrir
hverju atriði og sérstaklega í lokin
þegar kórinn var klappaður upp.
Stórgóðir tónleikar hjá stórgóðum
kór.
Kórinn hélt tónleika í Blöndu-
óskirkju í gær en svo er stefnan
tekin á Hofsós í byrjun apríl. Þá
tekur kórinn þátt í Sæluviku og í
byrjun júní er ætlunin að fara í
söngferð í Reykholt og á Hvamms-
tanga. /PF