Feykir - 22.02.2017, Qupperneq 10
Árshátíðin stendur
alltaf fyrir sínu
Opnir dagar í Blönduskóla
Nemendur á yngsta stigi fengu
kynningu á stafi Björgunar-
félagsins Blöndu en nemendur
fengu meðal annars ferð með
snjóbíl félagsins, skoðuðu
aðstöðu þess og fengu kynn-
ingu á nauðsynlegum búnaði
björgunarfélagsmanns. Nem-
endur tóku þátt í fjölbreyttum
tilraunum hjá brjálaða vísinda-
manninum Erlu. Í jóga og
púslsmiðju snerist allt um
slökun og notalegheit í af-
slöppuðu umhverfi sem gott
var að geta leitað í þegar
uppábrotið er mikið. Í leik-
listarsmiðju kynntu nemendur
sér stutt ævintýri og leikgerðu
svo. Í Disneysmiðju skoðuðu
nemendur Disneybækur, inni-
hald og uppbyggingu þeirra.
Þeir sömdu svo sögu í sam-
einingu og myndskreyttu. Urðu
þetta að hinum fallegustu
myndabókum. Skemmtilegur
endir á vikunni var að bjóða
foreldrum/forráðamönnum að
sjá afrakstur nemenda og var
boðið upp á flottar veitingar.
Krakkarnir á miðstigi bök-
uðu, þæfðu, sungu, dönsuðu,
tóku viðtöl, sögðu fréttir, lásu
og fóru í jóga alla vikuna. Þeir
fengu heimsókn frá Óla Ben.
íþróttakennara og félaga í
Björgunarfélaginu Blöndu og
slökkviliðinu. Hann fræddi
krakkana bæði um Björgunar-
félagið og Brunavarnir A-Hún
og slökkviliðið. Páll, ritstjóri
Feykis, kom líka í heimsókn
með fræðslu um Feyki.
Á föstudeginum voru ekki
lengur sömu verkefni og hina
daga vikunnar, heldur var farið
í íþróttahúsið og dansar æfðir
fyrir árshátíðina. Svo var líka
farið í vettvangsferð í Björg-
unarfélagið og á slökkvistöðina.
Í lok dags var sýning fyrir
foreldra og ættingja þar sem
þeir fengu að sjá hvað
krakkarnir eru búnir að gera í
þessari viku og auðvitað var
boðið upp á ljúffengar heima-
bakaðar súkkulaðibitakökur.
Vika nemenda á unglinga-
stigi snerist að miklu leyti um
undirbúning fyrir árshátíð
þeirra sem fram fór á föstu-
dagskvöld. Þeir litu þó upp frá
þeim æfingum og dönsuðu,
unnu fjölbreytt verkefni í Kristjana Diljá, sigurvegari í Blönduvision. MYNDIR: BLÖNDUSKÓLI
Það var mikið um að vera í Blönduskóla í síðustu viku
en þar voru opnir dagar alla vikuna.
tengslum við rafmagn, um
himingeiminn, um risaeðlur og
tengsl tónlistar og samfélags-
fræði. Þá gáfu nokkrir nem-
endur aflögðum hlutum fram-
haldslíf með því að endurnýta
þá og bjuggu til pennaveski,
púða og alls kyns buddur.
Á föstudagskvöld var svo
hin árlega árshátíð Blöndu-
skóla. Þar var sýnt leikritið Af
unglingum og fleira fólki í
leikstjórn Jófríðar Jónsdóttur.
Að venju var glæsilegt köku-
hlaðborð og hin heimsfræga
Blönduvision söngvarakeppni.
Átta nemendur spreyttu sig á
sex lögum og var það Kristjana
Diljá, nemandi í 10. bekk, sem
sigraði. Að lokum var svo
dansað fram á nótt.
Þessi vika var mjög
skemmtileg, verkefnin fjöl-
breytt og lærdómsrík og gaman
að sjá hversu vel sýningar
nemenda voru sóttar. Árshá-
tíðin stendur alltaf fyrir sínu og
er hluti af föstum hefðum í
samfélaginu sem íbúar eru
duglegir að sækja.
UMSJÓN
Berglind Björnsdóttir
Sérfræðikomur
í mars 2017
6.OG 7. MARS
Haraldur Hauksson almennur skurðlæknir
13. TIL 16. MARS
Bjarki S. Karlsson bæklunarlæknir
– lausir tímar 15. og 16. mars
27. OG 28. MARS
Sigurður Albertsson almennur skurðlæknir
23. OG 24. FEBRÚAR
Orri Ingþórsson kvensjúkdómalæknir
– lausir tímar 24. febrúar
Tímapantanir í síma 455 4022.
www.hsn.is
ATH!
10 08/2017