Feykir


Feykir - 22.02.2017, Blaðsíða 11

Feykir - 22.02.2017, Blaðsíða 11
bætið svo sósuþykkni við og takið pottinn af hita. Sósan er þá tilbúin. RÉTTUR 2 Satey kjúklingasalat 2 kúklingabringur, stórar ½ pakki kúskús með sólþurrkuðum tómötum 1 dós Satey sósa (Blue dragon) 250 gr ferskt spínat 1 avokado, skorið í bita 200 gr kirsuberjatómatar, skornir í bita 100 gr salthnetur ½ - 1 krukka fetaostur í kryddolíu sjávarsalt og grófmalaður pipar Aðferð: Kúskús er eldað samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið á pönnu með sjávarsalti og pipar. Hellið síðan Satay sósunni saman við og látið malla í smá stund. Setjið spínat í botninn á eldföstu móti og smyrjið síðan kúskúsi yfir spínatið. Hellið þá kjúklingnum og sósunni yfir kúskúsið og dreifið avokadoinu, tómötunum, hnetunum og fetaost- inum yfir. Réttinn er hægt að bera fram hvort heldur sem er heitan eða kaldan. RÉTTUR 3 Túnfisksalat 1 ds túnfiskur í vatni ½ ds sýrður rjómi ½ ds kotasæla ½ paprika ½ avokado ½ rauðlaukur 1 tsk sjávarsalt 1 tsk laukduft grófmalaður pipar á hnífsoddi Aðferð: Byrjið á því að skera allt grænmeti í litla bita. Blandið sýrðum rjóma og kotasælu saman í skál. Hellið vatninu af túnfiskinum og bætið honum út í. Bætið öllu grænmeti við og hrærið saman. Kryddið og borðið með hrökk- brauði eða kexi án nokkurs samviskubits :) Einnig er gott að nýta salatið í samlokur. Njótið vel! Ingvar og Margrét skora á tengdaforeldra Margrétar, Sigfríði og Guðjón, að taka við keflinu. KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Hulda, Harpa, Æsa og Heiður. Sudoku FEYKIFÍN AFÞREYING Krossgáta Vísnagátur Sigurðar Varðar Vilja hafa hana falda. Höfð er til að leika á. Sumir alltaf erjum valda. Ærin tign, sem veita má. Feykir spyr... Fékkstu blóm á konudaginn? Spurt á Facebook UMSJÓN palli@feykir.is „Já, ég fékk fallegan vönd, pakka og kræsingar – get ekki kvartað.“ Steinunn Gunnsteinsdóttir Finna skal kvenmannsnafn úr hverri línu. Svör neðst á síðunni. Ótrúlegt en kannski satt... Skrímslin á Íslandi eru yfirleitt stórar skepnur, óþekktar dýrateg- undir sem hafast við í vötnum og sjó við Ísland. Skeljaskrímslin eru t.d. stór og klunnaleg og í þeim heyrist skeljaglamur, fjörulallinn er frár á fæti og algengur um land allt og hafmenn eru hættulegar mannætur. Ótrúlegt, en kannski satt, þá mega skrímsli ekki koma til Urbana í Illinois í Bandaríkjunum. Kjúklingasalat, pipar- sósa og túnfisksalat án samviskubits MATGÆÐINGAR VIKUNNAR UMSJÓN frida@feykir.is „Vinsælustu réttirnir á okkar heimili eru mjög einfaldir og ódýrir, það er sennilega það besta við þá. Fyrsta uppskriftin er piparsósa, sem er alltaf gott að eiga til staðar. Þetta er sennilega uppáhaldssósan okkar heima vegna þess hve auðvelt er að búa hana til og hversu góð hún er. Svo ætlum við að gefa ykkur uppskrift af mjög hollu túnfisksalati sem er búið að sigra heimilið, öllum finnst þetta gott og það er virkilega einfalt að búa til. Okkur finnst best að bera túnfisksalatið fram með hrökkkexi eða bara venjulegu Ritzkexi. Þetta salat er líka mjög fínt í túnfisksamloku. Og ef við ættum að velja uppáhalds aðalrétt þá væri það senni- lega heitt kjúklingasalat sem Margrét eldar af og til, nokkurn veginn spariréttur því hann er svo góður. Við eigum tvö börn og þau eru mjög hrifin af þessum rétti og það sem mér finnst best er að þau eru að borða mjög hollan mat,“ segir Ingvar. Ingvar Óli Ólafsson og Margrét Eik Guðjónsdóttir á Hvammstanga eru matgæðingar vikunnar Tilvitnun vikunnar Það er bara þrennt sem konur þarfnast í lífinu; matur, vatn og gullhamrar – Chris Rock RÉTTUR 1 Piparsósa Hálfur laukur, saxaður í litla bita 2 sneiðar beikon, sneitt í bita 2 dl rauðvín 1 grein af blóðbergi 1 grein af rósmarin 1 tsk svört piparkorn, brotin niður (eða grófmalaður pipar) 500 ml vatn (eftir smekk og styrkleika) 1 tsk kjúklingakraftur 1 tsk nautakraftur ½ tsk sjávarsalt sósulitur og sósuþykkni eftir smekk Aðferð: Laukur, piparkorn og beikon steikt upp úr olíu í heitum potti í sirka 2 mínútur og þá er rauðvíni bætt við, gott er að taka pottinn af hita í smá stund til þess að forðast mikla gufu af rauðvíninu. Næst er blóðbergi og rósmarin bætt við, látið malla í sirka 3-5 mínútur í viðbót eða þar til rauðvínið rétt þekur botninn á pottinum. Þá er vatninu bætt við, svo kjúklinga- og nautakrafti, sjávarsalti og sósulit. Gott er að sigta sósuna á þessum tímapunkti í annan pott, sjóðið í um 5 mín, „Jà, fékk blóm, er svo vel gift.“ Inga Dóra Ingimarsdóttir „Nei ég fékk ekki blóm eða nokkuð annað á konudaginn, og hann fékk að gista í skúrnum það kvöldið.“ Hrafnhildur Viðarsdóttir Margrét Eik og Ingvar Óli. MYND ÚR EINKASAFNI „Nei, engin blóm.“ Bjarney Björnsdóttir 08/2017 11

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.