Feykir - 01.03.2017, Blaðsíða 1
09
TBL
1. mars 2017
37. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
„
BLS. 6–8
BLS. 11
Spjallað við Helgu Sigur-
björnsdóttur hjá Rarik
#kvennastarf
BLS. 4
Opnuviðtal við sr. Gísla
Gunnarsson og Þuríði Kr.
Þorbergsdóttur í Glaumbæ
Okkur hefur
liðið vel hér
Matgæðingar vikunnar að
þessu sinni eru þau Bryndís
Bjarnadóttir og Ágúst
Jónsson á Ytra-Skörðugili
Eplakaka frá
mömmu
Steypustöð Skagafjarðar hefur fest kaup á mölunarfyrirtækinu
Króksverki á Sauðárkróki af fyrirtækinu Ölni sem eignaðist
það á síðasta ári. Pétur Bjarnason hjá Ölni sagði þá við Feyki
að meginástæða kaupanna hafi verið malbikunarstöðin
Norðurbik á Akureyri sem Króksverk átti hlut í og fylgir hún
ekki með kaupunum nú.
Að sögn bræðranna Friðriks og Ásmundar Pálmasona
yfirtók Steypustöðin daglegan rekstur Króksverks sem áfram
verður rekið undir sama nafni. „Okkur stóð þetta til boða og
við ákváðum að slá til, teljum að það felist ákveðin tækifæri í
þessari starfsemi. Einnig teljum við mikilvægt að starfsemin
haldist á svæðinu,“ segja þeir bræður en starfssvæði
fyrirtækisins spannar allt Norðurland vestra. Með í kaupunum
fylgja verksamningar auk þess sem þeir sjá fram á aukin
verkefni.
Starfsmenn Króksverks eru sex og hefur þeim öllum verið
boðin vinna áfram og munu þá bætast í hóp þeirra 15 sem
fyrir eru á Steypustöðinni. /PF
Vélar Króksverks að mala við Neðri-Mýrar. MYND: AF FACEBOOK-SÍÐU KRÓKSVERKS
Steypustöðin eignast Króksverk
„Mikilvægt að starfsemin haldist á svæðinu“
FISK Seafood á Sauðárkróki
eignaðist í síðustu viku nýjan
lyftara, knúinn rafgeymi sem þolir
betur kulda en almennt gerist.
Að sögn Arnar Kjartanssonar
hjá Fisk er fyrirtækið það fyrsta á
Íslandi sem tekur slíkan geymi í
notkun en hann á að endast mun
lengur þegar unnið er á fryst-
unum, en rafgeymar eiga það til
að dofna í miklu frosti.
Kjartan S. Guðjónsson, sölu-
og þjónustufulltrúi hjá Olís, segir
að lyftarageymirinn, sem er af
Tensor gerð, eigi að endast allt að
50% lengur við erfiðar aðstæður
en eldri gerðir rafgeyma. „Þeir
eru með miklu meira úthald og
skila lengri vinnutíma. Við seld-
um FISK Seafood svona geymi og
Exide/GNB hleðslustöð í nýjan
Linde 20 PL lyftara,“ segir
Kjartan, ánægður með viðskiptin.
/PF
TENSOR lyftarageymir í fyrsta skipti á Íslandi
Frostþolinn lyftari
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Velkomin til Pacta lögmanna
& 440 7900 pacta@pacta.is
BORGARTEIGI 5 550 SAUÐÁRKRÓKUR & 571 5455 / 899 5227 / 691 6227
Smurþjónusta – Dekkjaþjónusta – Bremsuviðgerðir
Pústviðgerðir – Almenn bifreiðaþjónusta
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
www.lyfja.is
Nafnarnir Örn Kjartansson og Örn Guðjónsson takast í
hendur við lyftarann góða. Með á myndinni er Arne Jensen
frá dönsku Exide verksmiðjunni. MYND: PF