Feykir


Feykir - 01.03.2017, Blaðsíða 11

Feykir - 01.03.2017, Blaðsíða 11
1 laukur ca. 10 ferskir sveppir í sneiðum 2 paprikur (græn og rauð), skornar í strimla 1 dl rjómi 1 - 2 dl vatn, 1 tsk kjötkraftur 2 msk sinnep græn piparkorn skvetta af cognac eða sherry Aðferð: Skerið kjötið í 3-4 cm þykkar sneiðar, berjið aðeins með hnefanum ofan á sárið. Kryddið með hvítlaukspipar og látið standa í 5-10 mín. Steikið sneiðarnar í olíu á vel heitri pönnu í 3-5 mín. á hvorri hlið. Takið af og setjið inn í álpappír til að halda þeim heitum á meðan sósan er löguð. Laukur, sveppir og paprika eru látin krauma í feiti á pönnunni smá stund. Bætið rjóma, vatni, kjötkrafti og sinnepi á pönnuna, bragðbætið með grænum pipar ef þurfa þykir. Látið sjóða í nokkrar mín. Að lokum er víni bætt út í og sósan bragðbætt. Kjötið sett á fat og sósunni hellt yfir. Borið fram með kartöflum og grænmeti að eigin vali. EFTIRRÉTTUR Eplakaka ½ kg epli sykur eftir smekk 1 dl vatn - - - - - - - - - 150 g brauðmylsna (best heimagerð) 50 g sykur 50 g smjör rjómi saxað súkkulaði Aðferð: Eplin afhýdd og skorin í bita, soðin í mauk, ásamt sykri og vatni, kæld. Smjörið brætt á pönnu, sykri og brauðmylsnu bætt út í og látið hitna vel og bakast aðeins, kælt. Síðan er þetta sett í lögum í mót, fyrst smá brauðmylsna, síðan eplamauk og til skiptis og endað á brauðmylsnu. Þeyttur rjómi settur ofan á og saxað súkkulaði. Best er að láta kökuna bíða yfir nótt og setja síðan rjómann yfir, áður en borið er fram. Bryndís og Ágúst skora á Brynju Birgisdóttur og Bjarna Kristinsson á Blönduósi sem næstu matgæð- inga. KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Svanur, Torfi, Hringur og Ægir. Sudoku FEYKIFÍN AFÞREYING Krossgáta Vísnagátur Sigurðar Varðar Við fjallavötnin fagurt syngur. Fyrrum bærinn þakinn var. Dreginn er á dömufingur. Dregur nafn af söltum mar. Feykir spyr... Hvernig bolla er best? Spurt á bolludag á Facebook UMSJÓN palli@feykir.is „Það er að sjálfsögðu vatnsdeigsbolla með mikl- um rjóma, sultu og glassúr!“ Hannes Ingi Másson Finna skal karlmannsnafn úr hverri línu. Svör neðst á síðunni. Ótrúlegt en kannski satt... Krókódílar eru stærstu núlifandi skriðdýr heimsins og sennilega einu forsögulegu risarnir sem enn eru hér á jörðinni, samkvæmt Vísindavefnum. Þeir eru furðu sprettharðir á landi en að sama skapi ekki liprir. Ótrúlegt, en kannski satt, þá áttu meiri möguleika á að sleppa undan krókódíl ef þú hleypur sikksakk í burtu.. Eplakaka frá mömmu MATGÆÐINGAR VIKUNNAR UMSJÓN frida@feykir.is Bryndís og Ágúst bjóða upp á rækjuforrétt með sterkri sósu, sinepskryddað nautabuff í aðal- rétt og að lokum fáum við ljúffenga eplaköku í eftirrétt. „Ég er heimilisfræðikennari í Varmahlíðarskóla og hef áhuga á matseld en húsbóndinn sér um að grilla. Forrétturinn er mjög góður á hlaðborð. Eplakakan er uppskrift frá móður minni og var mjög oft á sunnudögum á mínu æskuheimili. Hún er líka vinsæl á okkar heimili,“ segir Bryndís. Matgæðingar vikunnar að þessu sinni eru þau Bryndís Bjarnadóttir og Ágúst Jónsson á Ytra-Skörðugili Tilvitnun vikunnar Það er fáránlegt að setjast í helgan stein 65 ára. Ég var enn með unglingabólur þegar ég var 65 ára. – George Burns FORRÉTTUR Rækjur á salati m/ sterkkryddaðri dressingu að hætti Louisana-búa 500 g rækjur 2 stk avókadó ½ haus íssalat ⅓ gúrka, kjarnhreinsuð og skorin í sneiðar. 2 stk sítrónur 12 stk kirsuberjatómatar Dressing: 1 laukur 1 chili-pipar, kjarnhreinsaður og skorinn gróft 5 - 8 hvítlauksgeirar, gróf saxaðir 1 tsk cummin 1 tsk kóríander 1 msk maísolía 1 dl hvítvínsedik 1 dl púðursykur 1 dl barbíkjúsósa 2 msk tómatpúrra 2½ dl kjúklingasoð 1 rauð paprika, kjarnhreinsuð og skorin í strimla. ¼ blaðlaukur, skolaður og skorinn í strimla Aðferð: Laukur, chili-pipar og hvítlauksgeirar, léttsteiktir upp úr maísolíu ásamt cummin og kórí- anderdufti. Hellið hvítvínsediki, barbíkjúsósu og tómatpúrru ásamt púðursykri yfir. Látið allt krauma vel saman og hellið soðinu yfir. Látið sjóða í u.þ.b. 20 mín. við vægan hita. Sigtið vel og látið paprikustrimlana og blaðlaukinn út í heita, sigtaða sósuna. Kælið sósuna. Skerið avókadóin í teninga, blandið saman við rækjur. Hellið kaldri sósunni yfir og blandið vel saman. Setjið salatið á fat, síðan rækjur ásamt avókadóinu og skreytið með tómötum, gúrkum og sítrónum. AÐALRÉTTUR Sinnepskryddað nautabuff Fyrir 4 800 g nautalund/hrossalund hvítlaukspipar olía - - - - - - - - - „Ég er hrifnastur af vatnsdeigsbollum með rjóma.“ Gísli Þór Ólafsson „Vatnsdeigbollan hennar mömmu.“ Vala Árnadóttir Ágúst og Bryndís. MYND ÚR EINKASAFNI „Heimabökuð vatnsdeigsbolla með karamellubúðing, rjóma og súkkulaði.“ Ásta Valdís Guðmundsdóttir 09/2017 11

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.