Feykir - 01.03.2017, Síða 11
1 laukur
ca. 10 ferskir sveppir í sneiðum
2 paprikur (græn og rauð),
skornar í strimla
1 dl rjómi
1 - 2 dl vatn,
1 tsk kjötkraftur
2 msk sinnep
græn piparkorn
skvetta af cognac eða sherry
Aðferð: Skerið kjötið í 3-4 cm
þykkar sneiðar, berjið aðeins með
hnefanum ofan á sárið. Kryddið
með hvítlaukspipar og látið standa í
5-10 mín. Steikið sneiðarnar í olíu á
vel heitri pönnu í 3-5 mín. á hvorri
hlið. Takið af og setjið inn í álpappír
til að halda þeim heitum á meðan
sósan er löguð.
Laukur, sveppir og paprika eru látin
krauma í feiti á pönnunni smá
stund. Bætið rjóma, vatni, kjötkrafti
og sinnepi á pönnuna, bragðbætið
með grænum pipar ef þurfa þykir.
Látið sjóða í nokkrar mín.
Að lokum er víni bætt út í og sósan
bragðbætt.
Kjötið sett á fat og sósunni hellt yfir.
Borið fram með kartöflum og
grænmeti að eigin vali.
EFTIRRÉTTUR
Eplakaka
½ kg epli
sykur eftir smekk
1 dl vatn
- - - - - - - - -
150 g brauðmylsna (best
heimagerð)
50 g sykur
50 g smjör
rjómi
saxað súkkulaði
Aðferð: Eplin afhýdd og skorin í
bita, soðin í mauk, ásamt sykri og
vatni, kæld. Smjörið brætt á pönnu,
sykri og brauðmylsnu bætt út í og
látið hitna vel og bakast aðeins,
kælt. Síðan er þetta sett í lögum í
mót, fyrst smá brauðmylsna, síðan
eplamauk og til skiptis og endað á
brauðmylsnu. Þeyttur rjómi settur
ofan á og saxað súkkulaði. Best er
að láta kökuna bíða yfir nótt og
setja síðan rjómann yfir, áður en
borið er fram.
Bryndís og Ágúst skora á Brynju
Birgisdóttur og Bjarna Kristinsson
á Blönduósi sem næstu matgæð-
inga.
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Svanur, Torfi, Hringur og Ægir.
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Vísnagátur Sigurðar Varðar
Við fjallavötnin fagurt syngur.
Fyrrum bærinn þakinn var.
Dreginn er á dömufingur.
Dregur nafn af söltum mar.
Feykir spyr...
Hvernig
bolla er
best?
Spurt á bolludag
á Facebook
UMSJÓN palli@feykir.is
„Það er að sjálfsögðu
vatnsdeigsbolla með mikl-
um rjóma, sultu og glassúr!“
Hannes Ingi Másson
Finna skal karlmannsnafn
úr hverri línu.
Svör neðst á síðunni.
Ótrúlegt en kannski satt...
Krókódílar eru stærstu núlifandi skriðdýr heimsins og sennilega
einu forsögulegu risarnir sem enn eru hér á jörðinni, samkvæmt
Vísindavefnum. Þeir eru furðu sprettharðir á landi en að sama skapi
ekki liprir. Ótrúlegt, en kannski satt, þá áttu meiri möguleika á að
sleppa undan krókódíl ef þú hleypur sikksakk í burtu..
Eplakaka frá mömmu
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN frida@feykir.is
Bryndís og Ágúst bjóða upp á
rækjuforrétt með sterkri sósu,
sinepskryddað nautabuff í aðal-
rétt og að lokum fáum við ljúffenga eplaköku í eftirrétt.
„Ég er heimilisfræðikennari í Varmahlíðarskóla og hef áhuga á
matseld en húsbóndinn sér um að grilla. Forrétturinn er mjög góður
á hlaðborð. Eplakakan er uppskrift frá móður minni og var mjög oft
á sunnudögum á mínu æskuheimili. Hún er líka vinsæl á okkar
heimili,“ segir Bryndís.
Matgæðingar vikunnar að þessu sinni eru þau
Bryndís Bjarnadóttir og Ágúst Jónsson á Ytra-Skörðugili
Tilvitnun vikunnar
Það er fáránlegt að setjast í helgan stein 65 ára. Ég var enn
með unglingabólur þegar ég var 65 ára. – George Burns
FORRÉTTUR
Rækjur á salati
m/ sterkkryddaðri dressingu
að hætti Louisana-búa
500 g rækjur
2 stk avókadó
½ haus íssalat
⅓ gúrka, kjarnhreinsuð og skorin
í sneiðar.
2 stk sítrónur
12 stk kirsuberjatómatar
Dressing:
1 laukur
1 chili-pipar, kjarnhreinsaður og
skorinn gróft
5 - 8 hvítlauksgeirar, gróf saxaðir
1 tsk cummin
1 tsk kóríander
1 msk maísolía
1 dl hvítvínsedik
1 dl púðursykur
1 dl barbíkjúsósa
2 msk tómatpúrra
2½ dl kjúklingasoð
1 rauð paprika, kjarnhreinsuð og
skorin í strimla.
¼ blaðlaukur, skolaður og skorinn
í strimla
Aðferð: Laukur, chili-pipar og
hvítlauksgeirar, léttsteiktir upp úr
maísolíu ásamt cummin og kórí-
anderdufti. Hellið hvítvínsediki,
barbíkjúsósu og tómatpúrru ásamt
púðursykri yfir. Látið allt krauma
vel saman og hellið soðinu yfir.
Látið sjóða í u.þ.b. 20 mín. við
vægan hita. Sigtið vel og látið
paprikustrimlana og blaðlaukinn
út í heita, sigtaða sósuna. Kælið
sósuna. Skerið avókadóin í teninga,
blandið saman við rækjur. Hellið
kaldri sósunni yfir og blandið vel
saman.
Setjið salatið á fat, síðan rækjur
ásamt avókadóinu og skreytið með
tómötum, gúrkum og sítrónum.
AÐALRÉTTUR
Sinnepskryddað
nautabuff
Fyrir 4
800 g nautalund/hrossalund
hvítlaukspipar
olía
- - - - - - - - -
„Ég er hrifnastur af
vatnsdeigsbollum
með rjóma.“
Gísli Þór Ólafsson
„Vatnsdeigbollan
hennar mömmu.“
Vala Árnadóttir
Ágúst og Bryndís. MYND ÚR EINKASAFNI
„Heimabökuð
vatnsdeigsbolla með
karamellubúðing, rjóma og
súkkulaði.“
Ásta Valdís Guðmundsdóttir
09/2017 11