Feykir - 01.03.2017, Blaðsíða 2
Smíði Gáskabáta gekk ekki upp
Plastbátafélagið Mótun
Fyrir skömmu afgreiddi
byggðarráð Svf. Skagafjarðar
beiðni frá stjórn plastbátafél-
agsins Mótunar þar sem óskað
var eftir því að sveitarfélagið
legði fram aukið hlutafé í fyrir-
tækið að upphæð 12.495.000
kr. Sveitarfélagið á 49% hlut í
félaginu á móti Kaupfélagi
Skagfirðinga (49%) og Skaga-
fjarðarhraðlestinni (2%).
Samþykkt var að hafna
erindinu en ákvað ráðið hins
vegar að veita því lán allt að 23
milljónum króna til að gera
upp hlut sveitarfélagsins í
skuldum félagsins á meðan
verið væri að ganga frá sölu á
eignum þess.
Að sögn Stefáns Vagns Stef-
ánssonar, formanns byggðar-
ráðs, var plastbátafélagið Mótun
stofnað í tíð síðustu sveitar-
stjórnar. Markmiðið hafi verið
að efla atvinnu á svæðinu, fá
inn nýja iðngrein sem gæti
stutt við nýstofnað plastnám
við Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra og styrkt stoðir
Skagafjarðar í trefjaiðnaði með
það að markmiði að styðja við
áform um uppbyggingu kol-
trefja- eða basalttrefjaverk-
smiðju á eða við Sauðárkók.
„Nú er ljóst að áform um
smíði Gáskabáta gekk ekki sem
skyldi og erfitt var að fá
mannskap til starfa hjá fyrir-
tækinu sem leiddi til dráttar á
smíðinni og að áætlanir
félagsins gengu ekki eftir. Sú
skuld sem um ræðir við KS er
tilkomin að stærstum hluta
vegna launa sem KS lagði út
fyrir þegar fyrirtækið hafið
ekki burði til þess og með
þessu víkjandi láni er ætlunin
að sveitarfélagið standi við
skuldbindingar sínar gagnvart
samstarfsaðila þess í félaginu,“
segir Stefán, aðspurður um tap-
ið sem varð á rekstrinum. /PF
Breytist í
Kjörbúðina
Samkaup Úrval
á Blönduósi
Samkaupsverslunum víða
um land hefur verið breytt
og munu þær mynda nýja
keðju sem heitir Kjörbúðin.
Meðal þeirra eru Samkaup
Úrval á Skagaströnd og á
Blönduósi.
Fyrir helgi opnaði Kjör-
búðin á Blönduósi en henni
er ætlað að þjónusta bæjar-
búa með því að bjóða gott
úrval, lágt verð og ferskar
vörur.
Samkaup reka um 50
verslanir víðsvegar um
landið og er eitt af stærstu
verslunarfyrirtækjum á Ís-
landi. „Lágt verð alla daga“
er loforð sem Kjörbúðin
gefur neytendum en allar
helstu nauðsynjar til heim-
ilisins verða í boði á hag-
stæðu verði. /PF
Á sunnudaginn fór ég í bíó og sá stuttmyndina Rós sem
efnilegur skagfirskur kvikmyndaskólanemi gerði sem
lokaverkefni sitt í Kvikmyndaskóla Íslands á síðasta vori.
Við hér á Feyki höfum verið að velta því fyrir okkur að
undanförnu hvaða störf falli undir það að vera álitin
„dæmigerð karlastörf “ og í fréttaumfjöllun fjölmiðla í lok
vikunnar kom það í ljós að kvikmyndagerð er víst eitt
þeirra, hvernig sem á því stendur.
En skagfirski kvikmynda-
gerðarmaðurinn okkar er nú
reyndar ung kona og tókst
henni, þrátt fyrir kynið,
virkilega vel upp með myndina
sína. Ég varð þess heiðurs að-
njótandi að leika aukahlutverk
í þessari mynd. Þó að það hafi
ekki verið stórt sást ég þó alla
vega, ólíkt því þegar ég lék
„baksvip“ í Fálkum á sínum
tíma! Já, vissulega var hlutverkið mitt lítið, örfáar sekúndur
á hvíta tjaldinu,- en engu að síður tók stóran hluta úr degi
að taka það upp. Þetta var stórskemmtileg og lærdómsrík
reynsla sem svo sannarlega opnaði augu mín fyrir því hvílík
þolinmæðisvinna kvikmyndagerð er. (En hver segir að
þolinmæði sé bara á færi karla?) – Takk kærlega fyrir mig,
Berglind Róbertsdóttir.
Og meira um kvikmyndir. -Nú hafa þau Edda og Óskar
ratað í hendur eigenda sinna, að minnsta kosti skulum við
vona að svo sé og ekki komi til mikilla eftirmála eftir
skandalinn í henni Ameríku. Ég get nú ekki sagt að ég hafi
horft á Edduna með neinni sérstakri athygli enda ekki
tilnefnd sem leikkona í aukahlutverki að þessu sinni, var þó
afskaplega fegin að þar væri verið að spara og tvíeykin sem
veita áttu verðlaunin skyldu þó alla vega vera látin veita
tvenn verðlaun. Mér hefur nefnilega alltaf þótt hálfkjánalegt
að sjá tvær manneskjur koma upp á svið til að opna eitt
umslag og segja eitt nafn. Já, það er eitthvað ankannalegt
við þessa afhendingu. En, - þetta er nú bara afþreying!
En þó ég hafi bara horft á Edduna með öðru auganu
voru bæði eyrun opin, ekki eins auðvelt að loka þeim, og
mikið hræðilega sló litla íslenskukennarahjartað mitt oft
feilhögg við að heyra til þeirra sem þar komu í ræðupúlt.
Góðar stundir.
Fríða Eyjólfsdóttir
blaðamaður
LEIÐARI
Kvikmyndaþankar
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdótti, kristin@feykir.is & 867 3164
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Fær ekki niðurfellingu fasteignagjalda
Gamla kirkjan Blönduósi
Óskað hefur verið eftir því að
Blönduósbær komi til móts við
aðstandendur gömlu
kirkjunnar, sem lagt hafa mikið
af mörkum undanfarin ár við
endurnýjun og viðhald hennar,
með því að fella niður
fasteignagjöldin næstu fimm
árin.
Byggðaráð tók málið fyrir í
síðustu viku og var ákveðið að
hafna erindinu þar sem
umsækjandi ætlar að hefja
atvinnurekstur í viðkomandi
fasteign. Á sama fundi var
tekin fyrir umsögn um leyfi til
að reka gististað í flokki I í
Gömlu kirkjunni að beiðni
sýslumannsins á Norðurlandi
vestra. Veitti byggðaráðið
jákvæða umsögn fyrir sitt leyti.
/PF
Bæði Málmeyjan og Klakkurinn hafa
landað á Sauðárkróki eftir að verkfalli
sjómanna lauk og hófst vinnsla í Fiskiðjunni
strax í byrjun vikunnar.
Á Sauðárkróki bárust tæp 21 tonn á land,
18 tonn á Skagaströnd og 4 tonn á
Hvammstanga. Alls gera þetta u.þ.b. 233 tonn
á Norðurlandi vestra.
Meðfylgjandi mynd tók Páll Friðriksson
af Gammi SK 12 í Sauðárkrókshöfn á sunnu-
daginn. /FE
Aflatölur 19.–25. febrúar 2017 á Norðurlandi vestra
Aflatölur á uppleið
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Jenný HU 40 Handfæri 249
Sæfari HU 212 Landb. lína 4.034
Alls á Skagaströnd 17.995
SAUÐÁRKRÓKUR
Gammur SK 12 Rauðmaganet 258
Klakkur SK 5 Botnvarpa 81.490
Málmey SK 1 Botnvarpa 128.530
Már SK 90 Rauðmaganet 594
Alls á Sauðárkróki 210.872
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 3.993
Alls á Hvammstanga 3.993
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Landb. lína 4.254
Dagrún HU 121 Þorskfisknet 4.610
Dísa HU 91 Landb. lína 1.059
Fengsæll HU 56 Landb.lína 2.778
Hafrún HU 12 Dragnót 1.011
2 09/2017