Feykir - 16.08.2017, Qupperneq 1
30
TBL
16. ágúst2017
37. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
„
BLS. 6
BLS. 11
Yngvi Jósef Yngvason
Allir hafa gaman af
að veiða
BLS.9
Rabbabbabb
Sveinbjörg
Pétursdóttir á
Hvammstanga
Halldór Sigfússon og Lena
Marie Pettersson
Kjúklingaréttur
meistarans og
freistandi ísterta
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Velkomin til Pacta lögmanna
& 440 7900 pacta@pacta.is
BORGARTEIGI 5 550 SAUÐÁRKRÓKUR & 571 5455 / 899 5227 / 691 6227
Smurþjónusta – Dekkjaþjónusta – Bremsuviðgerðir
Pústviðgerðir – Almenn bifreiðaþjónusta
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
www.lyfja.is
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Þú hringir í síma 540 2700
Hér siglir Sighvatur GK 57 til hafnar sl. mánudag. Skipstjórinn er Skagfirðingurinn Halldór Gestsson eða Dóri Híu eins og hann er kallaður MYND: PF
Það er mikið um að vera á höfninni á
Sauðárkróki þessa dagana en margir
stærri bátar hafa landað afla sínum
þar. Þrír bátar sjávarútvegsfyrirtækisins
Vísis í Grindavík munu landa afla sínum
á Króknum fram að áramótum en þeir
sækja miðin fyrir norðan land.
Á sunnudag var landað úr Fjölni GK
657, á mánudag Sighvati GK 57 og svo
Kristínu GK 457 í gær. Auk þessara
Vísisbáta var landað úr Klakki SK 5 á
mánudag og Málmey SK 1 í dag.
Að sögn Halldórs Gestssonar, skipstjóra
á Sighvati, hentar best að landa á
Króknum og eru það nokkur atriði sem
ráða, m.a. að Skagafjörðurinn er
miðsvæðis og góður staður upp á
keyrslu líka. Það er flutningafyrirtækið
Jón og Margeir sem sér um fiskflutning
landleiðina til Grindavíkur. /PF
Skagafjarðarhafnir
Grindavíkurbátar landa á Króknum
Vörusmiðja BioPol
Aðstaða fyrir frumkvöðla og framleiðendur
Kynningarfundir vegna starfsemi
Vörusmiðju BioPol á Skagaströnd fara
fram í næstu viku en smiðjan hefur öll
tilskilin leyfi til matvælaframleiðslu.
Leyfilegt er þó að vinna með fleira en
matvæli s.s. öll hráefni til olíugerðar, í
snyrtivörur og eða sápur. Smiðjan mun
taka til starfa innan tíðar.
Góð aðstaða verður í Vöru-
smiðjunni fyrir frumkvöðla og
framleiðendur til að taka fyrstu
skrefin í þróun á vörum sínum og
aðstaða er til að undirbúa veislur og
bakstur fyrir stór tilefni. Þá verður
hægt að leigja aðstöðuna undir
námskeiðahald.
Að sögn Þórhildar Maríu Jónsdóttur
mun smiðjan verða opin alla virka
daga frá 8.00-17.00 en hægt verður að
semja um kvöld- og helgaropnun.
Þórhildur segir að leigugjaldi verði
stillt í hóf þar sem stefnan sé að styðja
smáframleiðendur við að koma
vörunni sinni á markað og geta þannig
aukið verðmæti í heimabyggð.
Fundirnir verða sem hér segir:
Laugarbakki: Félagsheimilið Ásbyrgi
þriðjudaginn 22. ágúst kl. 15.00
Skagafjörður: Kakalaskáli
miðvikudaginn 23. ágúst kl. 15.00
Skagaströnd: Gamla Kaupfélagið, efri-
hæð, fimmtudaginn 24. ágúst
kl. 14.00. /PF