Feykir - 16.08.2017, Page 7
„Ég vissi ekki að fólk
borðaði hrossakjöt fyrr
en ég kom til Íslands“
Madison Cannon er 22 ára
bandarísk stúlka sem spilar á
kantinum eða inni á miðjunni
fyrir kvennalið Tindastóls í 1.
deildinni í sumar. Maddíe er
hörkudugleg, vel spilandi og
leikin. Foreldrar hennar eru
Mark Cannon og Kelley
Matter og hún á tvö systkini;
Adam og Mackenzie, en
fjölskyldan býr í Wake Forest
sem er ríflega 30 þúsund
manna borg í Norður-Karólínu
á austurströnd Bandaríkjanna.
Hún er nýútskrifuð frá Sam
Houston State University en
hana hafði alltaf dreymt um að
ferðast um heiminn og spila
fótbolta þannig að þegar hún
hafði klárað skólann vann hún
að því ásamt umboðsmanni
sínum að finna lið í Evrópu til
að spila með. Hún varð ansi
ánægð þegar hún fékk tilboð
frá Tindastóli. Áður en hún
kom til Íslands hafði hún
klárað síðustu skólaönnina,
spilað fótbolta og unnið að því
að koma sér í gott form.
Hvernig kom það til að þú ert að
spila fótbolta á Íslandi? Það sem
hefur komið mér mest á óvart
er sennilega hversu auðveldlega
það hefur gengið að aðlagast
lífinu á Íslandi. Ég vissi ekki á
hverju ég átti von þegar ég kom
Madison Cannon (t.h.) í leik gegn ÍR fyrr í sumar. MYND: ÓAB
[ ERLENDIR TUÐRUSPARKARAR ] oli@feykir.is
Madison Cannon / frá Wake Forest í Bandaríkjunum / kantmaður í Tindastóli
hingað en klúbburinn, liðs-
félagar mínir og bæjarbúar hafa
allir reynst indælir og hjálp-
samir.
Hvernig finnst þér að vera hluti
af liði Tindastóls? Það er æðis-
legt að vera hluti af Tinda-
stólsliðinu. Mér finnst liðið
hafa þroskast mikið eftir því
sem liðið hefur á tímabilið og
eiga framtíðina fyrir sér. Það er
allt fullt af flottum leikmönnum
UPPÁHALDS NAMMIÐ: Ég hef
reyndar ekki smakkað mikið
af íslensku nammi, en mér
finnst súkkulaðið hér – sem
ekki inniheldur lakkrís – vera
gott.
LAG SUMARSINS: Síðan ég
kom hingað held ég að ég
hafi mest hlustað á Despo-
sito og Nei nei.
SKRÍTNASTI MATURINN SEM
ÞÚ HEFUR BRAGÐAÐ Á ÍS-
LANDI: Ég verð að segja
hrossakjöt. Ég vissi ekki fólk
borðaði hross fyrr en ég
kom til Íslands!
UPPÁHALDS FÓTBOLTALIÐIÐ
ÞITT: Uppáhaldsliðin mín eru
Barcelona og Manchester
United.
í liðinu sem eru harðákveðnir í
að bæta sig á hverjum degi og
tilbúnir að berjast inni á
vellinum. Ég hlakka til að sjá
allar æfingarnar fara að skila
sínu á seinni hluta tímabilsins.
Hver er uppáhalds liðsfélagi
þinn? Það er erfitt að segja, ég er
búin að eignast helling af
góðum vinum í liðinu.
Hvaða væntingar hafðirðu til
sumarsins á Íslandi? Að bæta
mig sem knattspyrnumann,
ferðast um Ísland og eignast
góða vini.
Hvaða leikmaður hefur verið þér
fyrirmynd? Lionel Messi er í
langmestu uppáhaldi hjá mér.
Hann er svo snöggur og
teknískur og svo er gaman að
horfa á hann spila.
Hvað gerir þú annað hér á
Sauðárkróki en að spila fótbolta?
Ég vinn á Drangey Restaurant
með nokkrum liðsfélögum
mínum flesta morgna en þar
fyrir utan þá eyði ég tímanum
með liðsfélögum mínum,
stunda líkamsrækt, spila
fótbolta eða við höngum bara
saman í íbúðinni okkar og
horfum á myndir saman.
Hvað hefur verið erfiðast við að
dvelja á Íslandi? Líklega er það
kuldinn og svo er alltaf bjart
úti!
stutta
spilið
Hafðu samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is
Fjör og frískir fætur á Króksmóti
30/2017 7