Feykir - 11.10.2017, Qupperneq 3
Hafðu samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is
Kynningarfundur um Framkvæmda-
sjóð ferðamannastaða
Bændadagar án bænda
Ferðamálastofa og SSNV
Sauðfjárbændur mótmæla
Ferðamálastofa og SSNV standa sameiginlega
að tveimur kynningarfundum um Framkvæmda-
sjóð ferðamannastaða þriðjudaginn 17. október.
Fyrri fundurinn verður haldinn á Hótel Laugar-
bakka kl. 10:30 – 12:00 og sá seinni á Hótel
Varmahlíð kl. 14:00 – 15:30
Starfsmenn Ferðamálastofu munu m.a. fara yfir
breytingar á sjóðnum vegna breyttra laga og
reglugerðar, hverskonar verkefni eru styrkhæf í
sjóðinn og hver ekki. Þá verður gæðamat sjóðs-
ins og nýtt gæðamatsblað skoðað, umsóknarferli
og umsóknareyðublað sjóðsins. Að síðustu
verður sagt frá því hvernig sótt er um sjóðinn.
Í tilkynningu frá SSNV eru einkaaðilar,
starfsmenn sveitarfélaga og sveitastjórnarfólk
sérstaklega hvatt til þess að mæta.
„Þá viljum við nota tækifærið og benda fólki á
áð taka frá mánudaginn 13. nóvember nk. (kl.
13-16) en þá ætlum við að blása til næsta
Ferðamáladags á Norðurlandi vestra með
fróðlegum erindum úr heimi ferðaþjónustunnar
og fjörugum umræðum. Staðsetning og dagskrá
verða tilkynnt á næstu dögum,“ segir í
tilkynningu SSNV. /PF
Hinir árlegu bændadagar
hefjast á morgun í
Skagfirðingabúð en þá verður
boðið upp á ýmis tilboð á kjöt-
og mjólkurvörum. Eiður
Baldursson mun sjá um að
elda dýrindis prufur fyrir gesti
og gangandi.
Það sem hefur verið
aðalsmerki Bændadaga er að
framleiðendur matvælanna,
bændur sjálfir, hafa verið á
staðnum og gefið gestum að
smakka hinar frábæru vöru
sem framleidd er í héraðinu.
Hafa sauðfjár- og kúabændur
skipst á að standa vaktina og
var í ár komið að þeim
fyrrnefndu. Stjórn
sauðfjárbænda ákvað hins
vegar að taka ekki þátt þar sem
henni fannst illa að bændum
vegið hvað afurðarverð og
verðlagningu heimtöku hjá
Kjötafurðastöð KS varðaði. Var
þá leitað til kúabænda sem
ákváðu einnig að taka ekki þátt
og styðja þar með baráttu
sauðfjárbænda.
Þrátt fyrir þetta uppátæki
banda eru allir hvattir til að
mæta í Skagfirðingabúð og
gera góð matarinnkaup. /PF
Eitt aðalmarkmið Pírata er valddreifing og sjálfsákvörðunar-
réttur. Að hver og einn geti haft aðkomu að málum sem hann
varðar. Af því leiðir sú stefna okkar Pírata að gera eigi
sveitar-félög fjárhagslega sjálfstæð til þess að þau geti staðið
undir þeirri þjónustu sem þau eiga að veita. Stóra spurningin
er, hvernig förum við að því?
Í dag fá sveitarfélög aðallega tekjur frá útsvari einstaklinga og í
gegnum fasteignargjöld. Þessum tekjum er ætlað að standa undir
þeirri þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita. Undanfarið
hefur ríkið fært ýmis verkefni yfir til sveitarfélaganna án þess að
viðeigandi fjármagn fylgi.
Lausnin við þessu er að gera hluta tekjuskatts fyrirtækis og
virðisaukaskatt að útsvari til sveitarfélags. Þannig myndi hluti af
hagnaði fyrirtækis sem og sala af vöru eða þjónustu fyrirtækis
renna til nær-samfélagins. Hér er nauðsyn-legt að taka fram að ef
þú kaupir olíu á bensínstöð í Varmahlíð þá myndi hluti
virðisaukaskattsins af olíu-gjaldinu renna til Skagafjarðar en ekki
til sveitarfélagsins þar sem bensínstöðin er með höfuðstöðvar.
Þeir sem þekkja til í kerfinu telja þetta vera erfitt í framkvæmd,
kerfið virkar ekki svona, en við látum slíkt ekki stöðva okkur.
Kerfið er mannanna verk og það er hægt að bæta.
Það besta við þessa breytingu er ekki bara að tekjustofnar
sveitarfélaganna verða sterkari heldur verður einnig til hvati til
þess að laða að annars konar atvinnustarfsemi en þá sem skilar
miklum fasteignagjöld-um. Ferðamenn sem flakka um landið og
kaupa alls kyns þjónustu myndu skila hagnaði beint í sjóði
sveitarfélagsins. Veffyrirtækið út í bílskúr færi allt í einu að
standa undir rekstri leikskólans.
Þessi breyting er á kostnað ríkissjóðs en afurðin eru öfl-ugri og
sjálfstæðari sveitarfélög. Það gagnast okkur öllum, líka ríkissjóði.
Eva Pandora Baldursdóttir og Björn Leví Gunnarsson
Höfundar eru þingmenn og frambjóðendur Pírata í
Norðvesturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmi suður.
AÐSENT : Eva Pandora og Björn Leví skrifa
Eflum byggðir landsins
Byggðastofnun óskar
að ráða sérfræðing til starfa
Byggðastofnun óskar eftir að ráða sérfræðing á þróunarsvið stofnunarinnar.
Meginverkefni viðkomandi starfsmanns verður að sinna verkefninu Brothættar
byggðir og gegna starfi landstengiliðar Norræna Atlantssamstarfsins (NORA) á
Íslandi. Starfinu fylgja töluverð ferðalög.
Þá þarf viðkomandi að vera tilbúinn til að vinna að öllum þeim þáttum byggðamála sem þróunarsviðið
sinnir en það eru fjölbreytt verkefni svo sem vinnsla byggðaáætlunar, skýrslugerð og úttektir á sviði
byggðamála, samskipti við atvinnuþróunarfélög, starfræksla landsskrifsstofa NPA og NORA og
samskipti við ESPON, umsjón með AVS (rannsóknarsjóði í sjávarútvegi) og aflamarki Byggðastofnunar
svo eitthvað sé nefnt.
Hæfniskröfur:
• Háskólanám sem nýtist í starfi.
• Reynsla af verkefnastýringu er kostur.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Hæfileiki til að vinna sjálfstætt og eiga auðvelt með að koma fyrir sig orði
munnlega og skriflega.
• Viðkomandi þarf að hafa vald á dönsku, norsku eða sænsku auk ensku.
Staðsetning starfsins er á Sauðárkróki. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samtaka
starfsmanna fjármálafyrirtækja.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 31. október nk. og skulu umsóknir með upplýsingum um menntun
og starfsreynslu sendar til Byggðastofnunar, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki eða á netfangið
postur@byggdastofnun.is.
Öllum umsóknum um starfið verður svarað.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Björn Sigurðsson, forstöðumaður þróunarsviðs,
snorri@byggdastofnun.is eða 895 8653.
Byggðastofnun hefur það að markmiði að vera eftirsóknarverður vinnustaður fyrir hæfa og
metnaðarfulla starfsmenn, konur jafnt sem karla. 25 manns starfa hjá stofnuninni sem hefur á
að skipa vel menntuðu fólki með fjölbreytta reynslu. Þar sem karlar eru í meirihluta starfsmanna
á þróunarsviði eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um starfið.
38/2017 3