Feykir - 11.10.2017, Qupperneq 4
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Dominos-deildin :: Tindastóll - ÍR 71-74
ÍR-ingar gáfu Tindastóls-
mönnum langt nef
Það var boðið upp mikla
dramatík og stórundarlegan
körfuboltaleik í Síkinu sl.
fimmtudagskvöld þegar
baráttuglaðir ÍR-ingar mættu
til leiks og stálu sigrinum af
steinhissa Stólum. Lokatölur
71-74 og nú er bara að vona
að fall sé fararheill.
Það voru um 500 manns
sem mættu í Síkið og Stólarnir
vel studdir að venju. Heima-
menn fóru vel af stað og
Sigtryggur Arnar var sjóðheitur
en hann var í byrjunarliðinu
ásamt Pétri, Axel, Helga og
Chris en Hester því á bekknum
til að byrja með. Byrjunarlið
gestanna var skipað þeim Daða
Grétars, Matthíasi Sig, Sæþóri
Kristjáns, Danero Thomas og
loks Ryan Taylor sem reyndist
Stólunum erfiður.
Eins og við var búist róteraði
Israel Martin Stólunum af
miklum móð og kannski fannst
sumum nóg um. Tindastóll
komst yfir 14-6 og voru yfir
21-7 eftir laglegan þrist frá Pétri
sem setti niður þrjá þrista í
fyrsta fjórðungi. Að honum
loknum var staðan strax orðin
vænleg, 27-11. ÍR-ingar náðu
þó vopnum sínum í öðrum
leikhluta en Stólarnir komu á
ný sterkir til baka og eftir
að Kristinn Marinós braut
óíþróttamannslega á Hester
setti hann niður fjögur stig í
röð og jók muninn í 33-16. Þá
hrökk Matti í stuð hjá ÍR og
hann og fleiri fóru að nýta sér
glufur í varnarleik Tindastóls
og sölluðu niður þristum. Þeir
minnkuðu muninn í sex stig,
41-35, en Hester setti niður tvö
víti fyrir hlé og staðan 43-25.
Tindastólsmenn sýndu frá-
bæran leik í upphafi þriðja leik-
hluta og virtust ætla að stinga
gestina af. Hannes Ingi gerði
fimm góð stig um miðjan
hálfleikinn. Hann kom Stólun-
um í 60-38 en í kjölfarið kom
ótrúlegur kafli Stólanna þar
sem liðið gerði aðeins þrjú stig
á 14 mínútum – eða þangað til
mínúta var eftir af leiknum.
Það verður ekki tekið af liði ÍR
að það spilaði hörku vörn þess-
ar síðustu mínútur en Stólarnir
voru klaufar í sókninni.
Fjórtán stigum munaði að
loknum þriðja leikhluta, 61-47
Tindastóli í vil, en það var sama
hversu mörg leikhlé Martin
tók, leikur Stólanna fór bara
versnandi á meðan öll stemn-
ingin færðist yfir í lið gestanna.
Danero Thomas kom ÍR yfir,
63-64, og þegar mínúta var eftir
voru gestirnir með sjö stiga
forystu, 63-70. Þá skoraði Caird
fyrstu og einu 3ja stiga körfu
sína í leiknum og Pétur hrökk í
gang og Stólarnir voru nálægt
því að jafna leikinn með skoti á
síðustu sekúndu.
Svekkjandi tap sem sýnir að
það verður svo sannarlega
ekkert gefins í Dominos-deild-
inni í vetur. Liði Tindastóls var
spáð öðru sæti í vetur og
kannski var það að gefa mönn-
um falskt öryggi auk þess sem
liði ÍR var spáð tíunda sæti –
sem er reyndar alveg makalaus
spádómur. Nú fyrir mót hefur
talsvert verið dáðst að breidd-
inni í Tindastólsliðinu en í
þessum leik má til sanns vegar
færa að breiddin mikla var
veikleiki liðsins – alltof fáir
leikmenn fundu fjölina sóknar-
lega og varnarleikurinn var
dapur síðasta korterið.
Nú er bara að bíta á gamla
góða jaxlinn og mæta fjall-
brattir í næsta leik gegn Val að
Hlíðarenda á fimmtudag. /ÓAB
Hester, Pétur og Viðar í baráttu við Daneiro Thomas í liði ÍR. MYND: ÓAB
Þann 23. september síðast-
liðin fór uppskeruhátíð
meistaraflokka Tindastóls í
knattspyrnu fram. Þar voru
bestu og efnilegustu leikmenn
liðanna þriggja verðlaunuð.
Einnig fengu markakóngur og
drottning viðurkenningu. Það
voru leikmenn sjálfir sem völdu
besta leikmanninn en þjálfarar
völdu þau efnilegustu.
Úr liði Drangeyjar var Jónas Aron
Ólafsson valinn efnilegastur.
Guðni Þór Einarsson var valinn
bestur og hann var jafnframt
markahæstur. Úr kvennaliði
Tindastóls var Sólveig Birta
Eiðsdóttir valin efnilegust. Laufey
Harpa Halldórsdóttir var valin best
og Kolbrún Ósk Hjaltadóttir var
markadrottning. Úr meistaraflokki
karla var Jón Gísli Eyland Gíslason
valinn efnilegastur en hann var
upptekin í landsliðsverkefni fyrir
Íslands hönd og gat því ekki verið
viðstaddur hófið. Markakóngur
var Ragnar Þór Gunnarsson og
Konráð Sigurðsson var valinn
bestur. /GÖJ
Uppskeruhátíð Knattspyrnudeildar Tindastóls
Þau bestu og
efnilegustu
Maltbikarinn í körfunni
Íslands- og bikarmeistarar KR
mæta Kormáki á Hvammstanga
Nú um helgina hefjast 32 liða úrslit í
Maltbikar karla í körfuknattleik. Tvö lið af
Norðurlandi vestra verða í eldlínunni,
Tindastóll og Kormákur.
Á laugardag verður veisla á Hvammstanga
en þá mæta liðsmenn Íslands- og bikarmeistara
KR í heimsókn úr Vesturbænum. Það er ekki á
hverjum degi sem slíkir snillingar leika listir
sínar í íþróttahúsinu á Hvammstanga og því
ekki að efa að heimamenn muni fjölmenna og
styðja sína menn með ráðum og dáð gegn ofur-
eflinu. Leikurinn hefst kl. 17:00.
Þórsarar úr Þorlákshöfn mæta aftur á móti í
Síkið á Króknum á sunnudaginn og etja kappi
við lið Tindastóls. Leikir liðanna hafa í gegnum
tíðina verið spennandi og skemmtilegir og það
verður varla breyting þar á. Leikurinn hefst kl.
19:15. Fjölmennum í Síkið. /ÓAB
Jónas Aron Ólafsson og Sólveig Birta Eiðsdóttir voru valin efnilegust í sínum
liðum. Mynd: GÖJ.
Bergmann formaður, Bjarki Már aðst.þjálfari, Konni Sig. besti leikmaður
Tindastóls og Stefán Arnar þjálfari. Mynd: GÖJ.
Laufey Harpa Halldórsdóttir hefur lengi verið efnileg. Nú er hún best!
Mynd af FB síðu hennar.
Guðni Þór Einarsson var valinn bestur Drangeyinga og var hann jafnframt
markahæstur leikmanna liðsins. Mynd: GÖJ.
4 38/2017