Feykir - 11.10.2017, Page 7
við höfðum, doka hjá okkur
og stugga við fyllibyttum þar
til einhver kæmi til að opna.
Frekari viðskipti okkar við aðra
leigubílstjóra í ferðinni verða
svo birt í sérriti.
Á meðan Moskva er orðin
eins og hver önnur vestræn
borg þá er Irkutsk meira í átt
við það sem við bjuggumst
við. Lödurnar farnar að sjást á
kostnað Bensanna og þróunin
hægfara. Viðhaldi var víða
ábótavant og fjöldi gamalla
fallegra timburhúsa innan um
steinkumbalda illa farin. Ein
gatan var þó uppgerð þar sem
veitingahús og ferðaþjónusta
höfðu skapað líflega umgjörð.
Við fórum einnig í siglingu út
á Baikalvatnið gríðarstóra sem
geymir fimmtu mestu fersk-
vatnsbirgðir jarðar, hyldjúpt,
tært og fallegt. Þangað fer Pútín
gjarnan og hnykklar vöðvana
fyrir myndatöku.
Aftur var stigið um borð
til móts við næsta áfangastað,
Mongólíu. Nú fjölgaði þjóð-
ernum og greinilegt að ferða-
menn voru komnir í meirihluta.
Samt höfðum við klefann út af
fyrir okkur en á fyrsta leggnum
höfðum við keypt upp auka
plássið til að koma í veg fyrir
að fá fleiri inná okkur, nóg voru
þrengslin samt.
Smám saman breyttist
landslagið. Fyrst smokraði lest-
in sér í kringum Baikalvatnið
en fór síðan að mjakast upp á
hásléttuna. Um leið fækkaði
trjánum og gresjurnar tóku
við. Þessi leggur var rétt um
sólarhringur með nokkru
stoppi á landamærunum vegna
eftirlits. Mongólía er afskaplega
víðfeðmt land eða fimmtán
sinnum stærra en Ísland. Þar
búa tæpar þrjár milljónir og
þar af 700.000 í höfuðborginni
Ulaanbatur sem jafnframt er
kaldasta höfuðborg í heimi
með umferðarmenningu sem
er óútskýranleg en gengur að
mestu út á frekju og flaut.
Þegar við litum út í birtingu
um morguninn blöstu við
ávalar hæðir svo langt sem
eygði, grónar en graslausar.
Búsmali á víð og dreif í mis-
stórum hjörðum. Hvergi girð-
ingar en stöku rétt. Á tímum
Ghengis Khan náði hann í
krafti kænsku, hraða og leikni
sinna ríðandi riddara að leggja
undir sig svæði allt frá Víet-
nam til Ungverjalands. Öldum
seinna skiptist landið í Ytri- og
Innri-Mongólíu og lenti undir
stjórn Kínverja. Ytri-Mongólía
tók síðan afstöðu með Rússum
og þáði stuðning þeirra. Nú
hefur verið þar þingræði frá Lestarvörðurinn passar upp á sig og sína.
Þröngt mega sáttir sitja.
Lagt í hann.
Guðrún í fótabaði í Gorki garðinum.
Því þarf við upphaf ferðarinnar
að ákveða hvar skal stíga af og á
vilji maður það.
Út á gresjuna
Eftir fjögurra sólarhringa ferð
komum við, seint um kvöld, til
Irkutsk, höfuðborgar Síberíu,
sem stendur skammt frá hinu
þekkta Baikal vatni. Strax á
brautarstöðinni hópuðust að
okkur mis traustvekjandi og
ákaflega ágengir leigubílstjórar.
Einn angaði af kaupstaðarlykt
og annar var með blóðugar
umbúðir á hendinni. „Ég sé
ekki betur en það sé nýbúið að
skjóta hann“ sagði Arnór til
hughreystingar!!! Við vörðums
fimlega og fundum loks bíl
sem bæði var með merki og
gjaldmæli og settumst þar inn.
Hótelið var, eins og önnur í
ferðinni, staðsett í skuggasundi
og enginn kom til dyra þá
hringt var. Evgeny bílstjóri
var hins vegar svo ánægður
með þjórféð að hann bauðst
til að hringja í númer sem
Íslandi komið á kortið í Síberíu.
Vinkonur okkar í lestinni.
Dæmigert útsýni á leið okkar.
1992 og þetta fátæka land farið
að hafa sjálft ráðstöfunarrétt
yfir þeim miklu verðmætum
sem þar finnast í jörðu, bæði
málmum og olíu.
Í reiðtúr á forverum
skagfirskra gæðinga
Í Ulaanbatur dvöldum við í
fimm sólarhringa á ljómandi
farfuglaheimili reknu af
tveimur bræðrum sem augljós-
lega ætla sér stóra hluti í
ferðaþjónustu. Þar var mikið
rennirí af gestum sem ýmist
voru að koma úr eða fara í
ferðir á vegum fyrirtækisins,
sem skipuleggur bæði jeppa-,
hesta- og lestarferðir svo dæmi
séu tekin. Við skoðuðum borg-
ina mestmegnis gangandi,
enda staðsett miðsvæðis.
Fórum í söfn og klaustur og
nutum þjóðháttasýningar í
þjóðleikhúsi landsins. Óvíða
hafa fundist fleiri steingerv-
ingar, m.a. af risaeðlum, en
í Mongólíu. Fyrr á árum var
þeim smyglað úr landi í stórum
stíl en fyrir skömmu náðust
samningar um endurheimt
þeirra og búið er að opna fyrsta
hluta af safni því tengdu sem
gaman var að skoða og sjá
hve greinilega stærð og útlit
dýranna hefur varðveist.
Við fórum í tvær dagsferðir
út fyrir borgina með okkar
trygga bílstjóra Boldoog og
skoðuðum m.a. tvö klaustur
en þau hafa mikið aðdráttarafl,
fallegar byggingar með mörg-
um dýrgripum. Annað þeirra
er staðsett í Tetelj þjóðgarð-
inum þar sem einnig getur að
líta stórkostlegar jarðmyndanir
og náttúrulega steinskúlptúra.
Við létum okkur hafa það að
fara ríðandi upp að klaustrinu
á hestaleiguhestum sem voru
í eigu fjölskyldu í grenndinni
sem einnig rak veitingastað
hvar við snæddum gúllas
áður en lagt var á. Kjötið var
væntanlega af einhverskonar
sauðkind en þegar Guðrún
fiskaði brunna eldspýtu
38/2017 7