Feykir - 11.10.2017, Síða 8
upp úr sósunni lét hún gott
heita. Heldur vansælir klárar
voru bundnir á streng sem
tíðkaðist víða og fram voru
dregnir þrír sem voru langt
frá því að teljast fjörhestar, en
öruggir. Reiðverin voru ákaf-
lega fábrotin og þegar við
vildum láta lengja í ístöðunum
vandaðist málið sem endaði
með því að Arnór reið með
annað hnéð við höku en hitt
öllu neðar. Til fylgdar reið hinn
átta ára Toumool með og sá
kunni öll trixin í bókinni, hvatti
okkur til dáða og hrósaði þegar
við átti. Til eru rannsóknir
sem styðja að upphaflega sé
íslenski hesturinn m.a. kominn
frá Mongólíu. Sé svo hefur
hrossaræktinni hér heima
fleygt nokkuð fram a.m.k. hvað
ganghæfni varðar. Klaustrið er
innst í dalbotni þjóðgarðsins
en hvarvetna í dalnum gat
að líta mikla uppbyggingu
tengda ferðamönnum, bæði
hefðbundar tjaldbúðir með
hinum hringlaga hirðingja-
tjöldum, Gerum eða Júrtum
en einnig nokkur hótel. Okkur
var svo tjáð að fjárfestar, margir
hverjir erlendir væru að byggja
þarna spilavíti og ala þá von
að dalurinn verði gerður að
skattaparadís.
Það vakti einnig athygli
okkar hve víða gat að líta hálf-
karaðar yfirgefnar byggingar,
jafnvel heilu blokkirnar, bæði
til sveita og í höfuðborginni.
Tjáði heimildarmaður okkar
að sjötíu prósent framkvæmda
væru ekki kláraðar vegna fjár-
skorts eða minnkandi áhuga
fjárfesta. Hjarðmennska er
enn ríkjandi meðal bænda
og af og stundum á veginum
mátti sjá búpening á beit.
Geitur, fé, og nautgripi allt í
bland, kæruleysilega búhætti
sem hálf eyðilögðu fríið fyrir
Arnóri lausagöngulöggu Skaga-
fjarðar. Stóð gengu laus með
graðhesti í og allvíða voru
hryssur í hafti sem þá voru
mjólkaðar, en í matvörubúðum
var í sömu hillunni kapla-,
kúa- og kamelmjólk fáanleg.
Hjarðhegðum kindanna var
eftirtektarverð, héldu sig í
þéttum hópi og bitu nánast
allar til sömu áttar, væntanlega
einhver eðlisviðbrögð vegna
rándýra.
Kínamúrinn
hápunkturinn
Frá Ulaanbatur til Peking
fórum við með kínverskri lest
þar sem aðbúnaður var heldur
verri en í þeirri rússnesku svo
fá lúxusvandamál komu upp.
Þannig hagar til að klósett eru í
báðum endum vagnanna og að
notkun lokinni er stigið á fótstig
sem sendir frálagið beint niður
á teinana nema rétt á meðan
stansað er, þá eru salernin læst.
Þar sem sporbreidd teinanna er
önnur í Kína varð langur stans
á landamærunum bæði vegna
vegabréfaskoðunar en aðallega
vegna þess að skipta þurfti um
hjólabúnað undir vögnunum.
Því vorum við lítt sofin er
komið var að morgni til Peking
eftir m.a. ferð í gegnum Gobi
eyðimörkina.
Mannhafið, niðurinn og
hitinn tóku á móti okkur af
fullum þunga enda bera tuttugu
milljónir íbúa borgarinnar sig
yfir með ákaflega fjölbreyttum
hætti. Við þrönga hliðargötu,
svokallaða Hutong götu, fund-
um við farfuglaheimilið okkar
en Hutong er á kínversku
hljóðið sem heyrist þegar
steini er kastað í brunn. Þessar
þröngu hliðargötur eru því
eins og síminnkandi gárur
út frá miðju torginu þar sem
brunnurinn stóð. Margt var
að sjá í Peking þessa sex daga
sem við dvöldum s.s. Forboðna
borgin og að sjálfsögðu Torg
hins himneska friðar sem
áhrifamikið er að heimsækja.
Hápunktur ferðarinnar var
samt vafalítið skoðunarferð
að Kínamúrnum sem teygir
sig 9000 km um landið, þar af
6500 manngerðir. Mannvirki
sem tók fleiri aldir að reisa og
liðast um hæstu fjallatoppa þar
sem við komum að honum.
Frá Peking flugum við
svo til baka með viðkomu í
Kænugarði og Berlín þar sem
Guðrún hýsti okkur í tvær
nætur áður en haldið var heim
síðasta spölinn af 25.000 km,
fjórum vikum eftir brottför úr
Varmahlíð.
Ferðina skipulögðum við
sjálf ef frá eru talin miðakaupin í
lestina sem þýsk ferðaskrifstofa
sá um. Töluverðan undirbúning
þarf vissulega til, því t.d. þarf
að útvega vegabréfaáritanir og
bólusetningar í tíma. Allt sem
lagt var upp með stóðst. Flug
og gististaðir sem allir voru vel
staðsettir en misgóðir eins og
gengur. Ferðabók Lonely Planet
er nauðsynleg biblía og snjallt
er að verða sér úti um síma og
netkort í hverju landi. Engum
varð misdægurt og ferðin í alla
staði vel heppnuð.
Gunnar Rögnvaldsson,
Arnór Gunnarsson og
Guðrún Jónsdóttir
Nei, þetta er ekki á Öxnadalsheiðinni.
Hefði Gengis Kan sigrað með þessum í liði?
Fuglatemjarinn? Vonandi eltir hann
Gunnar ekki í æðarvarpið.
Laugardagur í Peking.
Hér þarf miðið að vera rétt.
Hádegismaturinn. Heima er best.
Fyrsta og eina staupið í ferðinni.
8 38/2017