Feykir - 11.10.2017, Side 10
Baby born kjóllinn breyttist í skírnarkjól
Ragnheiður Sveinsdóttir grunnskólakennari á
Hvammstanga er mikil prjónakona, þrátt fyrir
að mamma hennar hafi gefið prjónakennsluna
upp á bátinn þegar hún var krakki. En eftir að
hún komst á bragðið með prjónaskapinn hefur
hún varla stoppað og liggja ófá verkin eftir
hana. Ekki skemmir það ánægjuna þegar
flíkurnar skipta skyndilega um hlutverk eins
og gerðist með dúkkukjólinn sem breyttist í
skírnarkjól.
Hve lengi hefur þú stundað hannyrðir? -Ég
lærði að prjóna í grunnskóla. Mamma hafði
eitthvað reynt að kenna mér að prjóna en ekkert
gengið og hún kenndi því um að ég væri örvhent.
Ég náttúrulega tilkynnti frænkunum Þóru og
Þóru, sem ætluðu að ganga í málið, að það væri
ekki hægt að kenna mér að prjóna því ég væri
örvhent. "Mamma sagði það" (ég man ennþá
eftir þessu! Þetta hefur verið haustið 1984). Ég
sýndi nú smá frumleika í 9. bekk og prjónaði
húfu sem ég gekk með í nokkur ár og á enn. Á
framhaldsskólaárunum prjónaði ég ekkert en
ákvað að prufa þetta aftur rétt eftir tvítug og hef
eiginlega ekki stoppað síðan. Prjónið er svo
þægilegt að taka með sér í vinnuna og bílinn en
ég hef einnig ég gaman af því að sauma sem er þó
meira á tilraunastigi og fer ekki út úr húsi. Þeir
sem voru í FNV haustið 1993 muna kannski eftir
buxum sem ég saumaði mér, svörtum með
stórum hvítum doppum....
Hverju ertu að vinna að um þessar mundir?
-Þessa dagana er ég að prjóna á litla frænku,
heilgalla með köðlum og dúlleríi. Ég þarf svolítið
að einbeita mér við það föndur svo ég dunda mér
við það heima á kvöldin og er að prjóna peysu á
sex ára systurdóttur mína á kennarastofunni.
Hvaða handverk sem þú hefur gert ert þú
ánægðust með? -Einu sinni datt mér í hug að
prjóna skírnarkjól á Baby born dúkku dóttur
minnar. Svo var tilvalið að skella systurdóttur
minni í hann þar sem hún fæddist löngu fyrir
áætlaðan tíma og var lítil og nett en hún er fimm
mánaða á myndinni sem fylgir með.
Eydís Bára Jóhannsdóttir er alltaf með eitthvað á
prjónunum eða heklunálinni og ætlar að taka
áskorun og segja okkur frá sínum verkum.
( HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM ) frida@feykir.is
Ragnheiður Sveinsdóttir / Hvammstanga
VIÐBURÐIR HJÁ
KK RESTAURANT:
„Leitið tilboða fyrir hópa
í mat og gistingu í pósti á
kaffikrokur@kaffikrokur.is „
www.kkrestaurant.is www.arctichotels.is
Fylgstu með okkur á facebook
Skagfirskar kótilettur í kryddraspi
með lauksmjöri, grænum baunum,
rababarasultu og fleira meðlæti.
Hlaðborðið byrjar 18:30 og
verður opið til 21:00.
Minnum á að það eru einungis teknar
borðapantanir fyrir kvöldið og þær skulu
sendast á kaffikrokur@kaffikrokur.is
Verð 3.500 kr og 1 kaldur á
krana fylgir með.
13. okt, Kótilettukvöld
27. okt
Villibráðarkvöld
28. okt
Villibráðarkvöld
4. nóv
Villibráðarkvöld
5. nóv
Villibráðarkvöld
11. nóv
Halloween dagur
17. nóv
Jólahlaðborð
18. nóv
Jólahlaðborð
24. nóv
Jólahlaðborð
25. nóv
Jólahlaðborð
1. des
Jólahlaðborð
2. des
Jólahlaðborð
16. des
Jóladögurður,
fjórða í aðventu
Ragnheiður í nýjustu peysunni sem hún prjónaði á sig.
MYNDIR ÚR EINKASAFNI
Það er skemmtilegt og fljótlegt að prjóna á handleggjunum.
Íris Emma, systurdóttir Ragnheiðar og fyrirburi, í Babyborn skírnarkjólnum.
Börn Ragnheiðar í peysum sem hún prjónaði á þau.
KS Deildin í uppnámi
Meistaradeild Norðurlands
Allt stefnir í að KS- Deildin í
hestaíþróttum verði ekki haldin
í vetur þar sem aðstandendur
Meistaradeildar Norðurlands
hafa ákveðið að hætta aðkomu
sinni að henni. Í yfirlýsing frá
Meistaradeild Norðurlands
segir að Kaupfélagi
Skagfirðinga hafi verið tilkynnt
um ákvörðunina en KS hefur
verið aðalstyrktaraðili mótsins.
„Við höfum staðið fyrir KS-
Deildinni samfellt í 10 ár en
teljum nú að nóg sé komið hjá
okkur. Þetta hefur verið einkar
ánægjulegur tími og viljum við
þakka KS, keppendum,
áhorfendum, Flugu og
starfsfólki okkar frábæran
stuðning á sl. 10 árum,“ segir í
yfirlýsingu Meistaradeildar
Norðurlands.. /PF
10 38/2017