Feykir - 11.10.2017, Síða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
38
TBL
11.október 2017 37. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Skagfirðingafélagið í Reykjavík fagnaði
80 ára afmæli sínu sl. laugardag í
samkomusal Ferðafélags Íslands. Í tilefni
tímamótanna var ákveðið að gefa út
afmælisdisk með 10 glænýjum
skagfirskum dægurlagaperlum sem
fluttar voru um kvöldið. Ber hann heitið
Kveðja heim.
Fjölmargir gestir komu í veisluna og samfögnuðu
stjórn Skagfirðingafélagsins og skemmtu sér vel.
Valgerður Erlings Péturssonar var kynnir kvöldsins
og þeir Sigvaldi Gunnarsson og Reynir Snær
Magnússon spiluðu fyrir dansi fram á nótt. /PF
Skagfirðingafélagið 80 ára
Kveðja heim
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
Stefán Logi ráðinn
framkvæmdastjóri
Steinull hf.
Í sumar var auglýst
staða framkvæmda-
stjóra Steinullar en
Einar Einarsson, sem
hefur verið fram-
kvæmdastjóri um
áraraðir, lætur senn af
störfum. Nú hefur verið
ráðið í stöðuna og ljóst
að Stefán Logi
Haraldsson mun taka
formlega við sem
framkvæmdastjóri eigi
síðar en 1. apríl á næsta
ári.
Árið 1999 hóf Stefán Logi störf hjá Vírneti og tók
síðan við sem framkvæmdastjóri hjá sameinuðu
Límtré Vírneti í Borgarnesi árið 2004. Árin 1987 til
1999 starfaði hann sem fjármálastjóri hjá Steinull, að
undanskildu einu ári (sept. 1997 til sept. 1998) sem
hann starfaði hjá sænska fyrirtækinu Paroc í Svíþjóð.
Þá sat hann í stjórn Steinullar árin 2000 og 2001. Stefán
er Samvinnuskólagenginn rekstrarfræðingur og hefur
lokið fjölda námskeiða í stjórnun og stefnumótun
erlendis og hérlendis.
Stefán er ættaður úr Fljótunum og tók þátt í
bæjarpólitíkinni á Króknum á sínum tíma og var
formaður knattspyrnudeildar Tindastóls. Hann er
giftur Ingu S. Baldursdóttur og þau eiga fjögur
uppkomin börn.
Að sögn Marteins Jónssonar, stjórnarformanns
Steinullar hf, þá sóttu þrjátíu manns um stöðu
framkvæmdastjóra og margir mjög góðir sem sýndu
starfinu áhuga. Einar Einarsson, núverandi fram-
kvæmdastjóri Steinullar, hóf störf sem framleiðslu-
stjóri Steinullarverksmiðjunnar 1984 eða ári áður en
hún tók til starfa. Hann tók við stöðu framkvæmda-
stjóra 1. september 1988. /ÓAB
Frekar nýleg mynd af Gunnari Braga.
MYND: ALTHINGI.IS
Verum snjöll
verZlum
heima
„Endurskoðun og skattaskil!“
SKYNSEMI, SAMKENND OG JÁKVÆÐNI.
ÞESS VEGNA VERSLA ÉG Í HEIMABYGGÐ.
N
Ý
P
R
E
N
T
E
H
F
/ M
Y
N
D
. H
É
R
A
Ð
S
S
K
JA
LA
S
A
F
N
S
K
A
G
F
IR
Ð
IN
G
A
/ LJÓ
S
M
Y
N
D
A
R
I: K
R
IS
T
JÁ
N
C
. M
A
G
N
Ú
S
S
O
N
.