Feykir - 22.11.2017, Qupperneq 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Dominos-deildin : Tindastóll - Þór Þ 92-58 : Tindastóll - Höttur 91-62
Israels-herinn á toppnum
Lið Tindastóls lék nú á skömmum
tíma tvo leiki heima í Síkinu og báða
gegn botnliðum deildarinnar. Fyrst
kom lið Þórs úr Þorlákshöfn í
heimsókn og síðan Höttur
Egilsstöðum. Skemmst er frá því að
segja að báðir leikirnir unnust af
miklu öryggi.
Fyrst komu Þórsarar í heimsókn sl.
fimmtudagskvöld en bæði lið voru
með splunkunýja Kana í sínu farteski
og reyndust báðir frekar ryðgaðir eftir
löng ferðalög og sárafáar mínútur með
sínum liðsfélögum. Leikurinn var í
jafnvægi fram undir miðjan annan
leikhluta þegar Stólarnir náðu ágætu
forskoti og voru yfir í hálfleik, 48-38.
Tindastólsmenn urðu fyrir því áfalli
að missa Pétur Birgis út af meiddan
strax eftir eina mínútu í leiknum og
nokkurn tíma tók fyrir nýja leikmann-
inn, Brandon Garret, að komast í takt
við leikinn. Stólarnir keyrðu síðan allt í
botn í þriðja leikhluta og völtuðu þá
yfir Þórsara sem komust hvorki lönd
né strönd. Þriðja leikhluta tóku
Stólarnir 21-4 og staðan því orðin 69-
42 fyrir lokaátökin sem reyndust
formsatriði. Lokatölur 92-58.
Arnar og Caird skoruðu mest í liði
Tindastóls, 20 stig hvor, Helgi Rafn og
Garrett voru með 13 hvor en annars
var það góð liðsheild og fín vörn í
síðari hálfleik sem lagði grunninn að
góðum sigri á vængbrotnum Þórs-
urum.
Lið Hattar sprakk á limminu
Leikurinn gegn Hetti síðastliðið sunnu-
dagskvöld var nánast ljósrit af leiknum
gegn Þór.
Enn á ný var jafnræði með liðunum
framan af leik og stigalausir Hettir
virkuðu bara ansi sprækir. Stólarnir
voru oftast skrefinu á undan og í
hálfleik munaði aðeins einu stigi,
staðan 45-44.
Stólarnir með Sigtrygg Arnar og
Garrett í fínu formi í sókninni hófu
síðari hálfleik á háu tempói. Skellt var í
lás í vörninni og í kjölfarið fylgdu
nokkrar auðveldar körfur í norðurenda
Síkisins. Fljótlega var munurinn
orðinn tíu stig og smá saman sást
hvernig sjálfstraustið molnaði hjá
leikmönnum Hattar. Staðan 69-50 að
loknum þriðja leikhluta og Stólarnir
héldu svipuðu áralagi til loka leiks.
Lokatölur 91-62.
Garret var stigahæstur í leiknum
með 25 stig, Arnar gerði 23 og Caird
skilaði 18 stigum. /ÓAB
Israel's Army! Þjálfari Tindastóls, Israel Martin, virtist hæstánægður eftir leikinn gegn Þórsurum með nýja
fánann sem stuðningsmenn sveiflluðu ákaft meðan á leik stóð. Hann sá ástæðu til að nappa honum af
þeim í leikslok og sveifla honum sjálfur! MYND: ÓAB
Undankeppni HM í körfubolta
Tveir Stólar í landsliðinu
Craig Pedersen þjálfari karlalands-
liðs Íslands í körfubolta tilkynnti á
sunnudaginn þá tólf leikmenn sem
halda til Tékklands í dag til að etja
kappi við heimamenn í undankeppni
HM. Arnar Björnsson og Axel Kára,
leikmenn Tindastóls, eru þar á meðal.
Tvær breytingar voru gerðar á 12
manna liðinu sem áður hafði verið
kynnt en Pavel Ermolinskij getur ekki
tekið þátt vegna meiðsla og Tryggvi
Snær Hlinason fær ekki leyfi hjá
félagsliði sínu til að vera með í fyrri
leiknum. Þeir Axel, og Tómas Þórður
Hilmarsson, leikmaður Stjörnunnar,
komu inn í stað þeirra Pavels og
Tryggva. Tómas spilar sinn fyrsta
A-landsliðsleik gegn Tékklandi en Axel
hefur leikið vel á fimmta tug A
landsleikja.
Ísland spilar gegn Tékklandi á
föstudaginn 24. nóvember og svo
Búlgaríu hér heima mánudaginn 27.
nóvember. /PF
Frjálsar íþróttir
Skagfirskar stúlkur
sterkar í kúluvarpi
Þrjár skagfirskar stúlkur náðu góðum árangri
á Silfurleikum ÍR í frjálsíþróttum sl. laugardag
þegar þær kepptu í kúluvarpi. Andrea Maya
Chirikadzi sigraði með kasti upp á 10,20 m,
Stefanía Hermannsdóttir varð í 3. sæti með
8,86m og Inga Sólveig Sigurðardóttir í 5.
sæti, kastaði 7,87 m sem er persónulegt met.
Þá varð Inga Sólveig einnig í 3. sæti í 60 m
grindahlaupi á 13,60 sek.
Á heimasíðu Tindastóls segir að keppendur
hafi verið hátt á sjötta hundrað talsins.
Silfurleikar ÍR er frjálsíþróttamót, fyrir börn og
unglinga 17 ára og yngri, sem haldið er í
nóvember ár hvert. Mótið var fyrst haldið árið
1996 og hét þá "Haustleikar ÍR". Nafninu var
breytt árið 2006, til að minnast þess að 50 ár
voru þá liðin frá því að Vilhjálmur Einarsson
vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í
Melbourne, þann 27. nóv. 1956. /PF
Andrea Maya, Inga Sólveig og Stefanía. MYND: TINDASTÓLL.IS
Körfubolti
Hester óbrotinn
Eftir ítarlegar rannsóknir var það staðfest að
Antonio Hester, leikmaður Tindastóls í
körfubolta, er óbrotinn. Þetta kom í ljós eftir
greiningu á ómmyndum sem teknar voru í
síðustu viku.
Hester meiddist illa í sigurleik Tindastóls
gegn liði Keflavíkur fyrir tveimur vikum síðan
og töldu læknar að hann hefði ökklabrotnað og
yrði frá í allt að þrjá mánuði. Að sögn Stefáns
Jónssonar, formanns körfuboltadeildar, er talið
að röntgenmyndin hafi sýnt áverka gamalla
meiðsla en ómmyndin hafi sýnt að leikmaðurinn
hafi sloppið við brot. Hester er þegar byrjaður í
endurhæfingu og verður því líklega kominn
mun fyrr í baráttuna en talið var í fyrstu. /PF
Hester í léttri sveiflu. MYND: HJALTI ÁRNA
44/2017 5
Hann telur að með lokun
svæða í Skagafirði hafi verið
tekið frá dragnótabátum en
ekki frá trillubátum. Ekki sé
verið að taka neitt frá þeim
núna og enginn réttur skertur.
Úthafsaldan
ýfir botn
Fyrir leikmann, sem ekki hefur
kynnt sér málið til hlítar, má
ætla af umræðunni að dragnót
fari illa með hafsbotninn og þá
um leið náttúruna. Friðrik segir
það eðlilegt þar sem því sé
haldið á lofti hjá smábáta-
félögum á landinu, en þeir sem
hafa þekkinguna, vísindamenn,
Hafrannsóknastofnun eða Al-
þjóðahafrannsóknarráðið, séu
á annarri skoðun.
„Það er alveg sama hvar þú
leitar, þessu er eingöngu haldið
fram af mönnum sem telja sig
hafa hag af því að dragnóta-
veiðar séu bannaðar. Í vísinda-
heiminum er því jafnan hafnað.
Dragnótin er sögð alveg jafn
vistvæn og handfærin, sem er
ekki það sama og veiðar með
línu. Mælingar úti fyrir
Norðurlandi sýna að meðalafli
línubáta er yfir 30% undirmál.
Þeir veiða miklu hærra hlutfall
af smáfiski heldur en dragnóta-
bátar, sem er vont. Þess utan
hafa vaknað upp spurningar
með beituna en hún er flutt inn
frá Kyrrahafinu ef ég man rétt,
Kyrrahafssári. Hvaða áhrif
hefur það haft á lífríkið? Á ekki
bara loka á það og láta nátt-
úruna njóta vafans eins og
þeim er títt að segja sjálfir,“ spyr
Friðrik ábúðarfullur.
Hvað varði rask á hafsbotni
eftir dragnót segir Friðrik það
ekki vera mikið og náttúran
sjálf leiki þar stóran þátt.
„Skagafjörður er breiður og
opinn og í ákveðnum vind-
áttum nær úthafsaldan alveg
inn í fjarðarbotn. Það rask sem
hún veldur er miklu meira og
langt umfram það sem drag-
nótin nokkurn tímann nær að
gera. Botnlagið breytist eftir
góða brælu og þetta vita
vísindamenn og fiskimenn og
þess vegna er kannski ekki
mikið verið að henda peningi í
að rannsaka eitthvað sem er
augljóst. Enda er það alveg
sama hvaða rannsóknir hafa
verið gerðar, þessi hópur hafnar
öllu,“ segir Friðrik og á við
smábátasjómenn sem muni
aldrei samþykkja rannsókn
sem ekki sé þeim í hag.
Hann hvetur fólk til að
kynna sér málið nánar og ekki
síst sveitarstjórn.