Feykir


Feykir - 22.11.2017, Blaðsíða 7

Feykir - 22.11.2017, Blaðsíða 7
Í Kirkjubólsteigi 1940. Síðskeggur með hatt fremst á myndinni er Jósep í Fannardal. Gunnar Gunnarsson, skáld, einnig með hatt, hallast upp við dogg hægra megin. MYND: BJÖRN BJÖRNSSON til alls þess er lífsandann dregur eru einstakar. Ragnhildur í Fannardal var fjallkona Íslands, mannkærleikurinn og hjarta- hlýjan ofar öllu. Hún varð vinur minn fyrir tugum ára, þó ég sæi hana aldrei né heyrði. Ragnhildur var hagyrðingur góður Það var henni áfall að missa síðasta heimilisköttinn sinn, Skugga, í bílslysi eftir að hún var flutt í Neskaupstað, þá var að henni þrengt. Þá orti hún: Mér finnst ég vera vesöl kona vita ei lengur á neinu skil. Hætt að lifa, hætt að vona hætta að gráta og finna til. Guðröður Jónsson, kaupfélags- stjóri í Neskaupstað, mikill heimilisvinur, kom daglega að stytta Ragnhildi stundir og hressa upp á hana. Á afmælis- degi hennar, 19. febrúar, eitt árið sagði hann: „Nú er fagurt veður. Nú er sólskin.“ Í Fannardal sést til sólar í síðustu viku þorra, þá orti Ragnhildur að bragði: Nú sé ég sólina heima sé hve hún fagurt skín. En nú eru fuglarnir farnir og fokið í sporin mín. Norðfjarðargöng hafa nánast sett Fannardal í þjóðbraut. Kannski munu nýjar Ragnhildar finna sér stað í dalnum er fram líða stundir við öll nútímaþægindi. Það er bjart um Norðfjarðarflóa, láglendisvegur allt til Reykja- víkur. Austfirðingum og lands- mönnum öllum eru sendar hamingjuóskir úr Skagafirð- inum með ný Norðfjarðargöng og glæsta framtíðarsýn. Hörður Ingimarsson Myndirnar eru frá Skjala- og myndasafni Norðfjarðar, Héraðsskjalasafninu í Neskaupstað Ragnhildur á Reykjavíkurárunum. MYND: SIGRÍÐUR ZOEGA 44/2017 7 Úlfar Ingi Haraldsson / bassi Söng Singin' In the Rain í tíma og ótíma sem gutti ( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is Úlfar Ingi Haraldsson, eða Úlli Har eins og hann var kallaður þegar hann bjó á Smáragrundinni á Króknum, er af árgangi 1966. Hann er fæddur á Sauðárkróki en ólst að hluta til upp í Skagafirði og Reykjavík. Foreldrar hans eru Hallfríður Hanna Ágústsdóttir (frá Kálfárdal) og Haraldur Tyrfingsson. Bassinn náði snemma tökum á Úlfari og nú er hann sprenglærður á hljóðfærið. „Aðalhljóðfæri er kontrabassi og bassagítarar en ég spila líka töluvert á píanó og gítar,“ segir hann. Spurður um helstu tónlistarafrek sín segir Úlfar: „[Ég hef} skrifað hátt í 70 tónverk sem hafa verið flutt m.a. af Sinfóníuhljómsveit íslands, Caput hópnum, fjölda kóra og af innlendum og erlendum listamönnum. Einnig leikið sem bassaleikari eða komið fram sem stjórnandi á fjölda tónleika á Íslandi og erlendis. Hvaða lag varstu að hlusta á? – Sinfóníu nr. 2 eftir Johannes Brahms sem hljómaði í útvarpinu í beinni útsendingu frá Hörpu og leikin af Sinfóníuhljómsveit Íslands. Uppáhalds tónlistartímabil? -20. aldar nútímatónlist. Ég á erfitt með að vera nákvæmari þar sem ýmis verk standa upp úr á mismunandi tímum yfir öldina. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Öll skrifuð og alvarleg nútíma „klassísk“tónlist ásamt ýmiss konar djasstónlist. Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? -Ýmiss konar fallega dægurtónlist sem sungin var af t.d. Hauki Mortens, Björgvini Halldórssyni, Geirmundi Valtýssyni, ásamt BG og Ingibjörgu og Roger Whittaker Hver var fyrsta platan/diskurinn/ kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? -Keypti tvær plötur fyrir hluta af fermingarpeningunum en það voru The Wall með Pink Floyd og In Through the Outdoor með Led Zeppelin Hvaða græjur varstu þá með? -Þá voru bara gamlar græjur til á heimilinu sem ég man ekki einu sinni nafnið á. Þóttu ágætar græjur (frá ca. 1974) en nafnið ekkert tengt þeim græjutýpum sem hafa verið mest í umferð. Hvert var fyrsta lagið sem þú manst eftir að hafa fílað í botn? -Lagið var Singing in the Rain sungið af Gene Kelly. Ég var mjög ungur (6-7 ára) þegar ég heyrði þetta lag fyrst og varð alveg óskaplega hrifinn af laginu og söngnum. Átti það síðan til að syngja lagið með sjálfum mér í tíma og ótíma. Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? -Ég hef ekki mikla þolinmæði fyrir rapptónlist og tónlist sem hjakkar toppurinn Vinsælast á Playlista Úlfars á þessum tímapunkti: L.v.Beethoven Strengjakvartett op. 133 „Grosse Fuge“ BARTÓK KVARTETTINN Jay Walkin NIELS HENNING ØRSTED PEDERSEN Domenico Dragonetti Konsert í A dúr fyrir kontrabassa og hljómsveit LEIKINN AF THOMAS LOM OG STUTTGART KAMMERSVEITINNI Sónata nr.1 fyrir píanó eftir Michael Tippett PETER DONOHOE Gríma eftir Jón Nordal KAMMERSVEIT REYKJAVÍKUR Píanóstykki op.11 eftir Arnold Schoenberg EDDA ERLENDSDÓTTIR sífellt í sama farinu eða of mikið í sama hrynmunstrinu eða „groove-inu“…of lengi! Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? -Ég væri ekki líklegur til að halda slíkt partý en ef það kæmi fyrir þá mundi ég líklega velja bara fjölbreytta góða dægurtónlist t.d. Allison Kraus eða Donald Fagen (Steely Dan) og síðan með smá shuffle rhythm and blues svona inni á milli, t.d. eitthvað með Peter Green (úr Fleetwood Mac) eða t.d. Hideaway með Eric Clapton and the Bluesbreakers. Svo má alls ekki gleyma Bob Marley sem ég hef alltaf haldið mikið upp á allt frá að ég heyrði tónlist hans fyrst svona um 13 ára aldur. Þú vaknar í rólegheitum á sunnu- dagsmorgni, hvað viltu helst heyra? -Lútusvítur eftir J.S Bach, endurreisnarkórtónlist eða klassíska strengjatónlist frá síðbarokk eða klassíska tímanum. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? -Ég hefði áhuga á að heyra Fílharmóníuhljómsveit Berlínar í sal þeirra í Berlín eða Vínarfílharmóníuna í Musikverein salnum í Vínarborg. Einnig áhuga á að heyra Ensemble Intercontemporain í Ircam hljóð og tónlistarrannsóknarstofnuninni í París. Færi helst einn því mér finnst best að njóta tónlistar einn en ef það er góður djass þá kannski einhver með sama æðið fyrir góðum djassi. Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? -Aðallega eitthvað gott í útvarpinu þar sem ekkert kassettutæki var í bílnum. Ef það hefði verið eitthvert tæki til að spila af þá hefði músíkin verið einhver góður djass t.d. Niels Henning Ørsted Pedersen sá frábæri bassasnillingur. Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? -Ekki dreymt um að vera annar en ég er, en hvað áhrif snertir þá eru það persónur eins og tónskáldin Béla Bartók, Pierre Boulez, Duke Ellington og bassasnillingar eins og t.d. Niels Henning Ørsted Pedersen og Jaco Pastorius. Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út (eða sú sem skiptir þig mestu máli)? Goldberg tilbrigðin leikin af Andreas Schiff – alveg ótrúlegur snilldarflutningur á þessu stórkostlega verki. Úlfar með kontrabassann. MYND AF FACEBOOKSÍÐU ÚLFARS

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.