Feykir - 22.11.2017, Síða 7
Í Kirkjubólsteigi 1940. Síðskeggur með hatt fremst á myndinni er Jósep í Fannardal.
Gunnar Gunnarsson, skáld, einnig með hatt, hallast upp við dogg hægra megin.
MYND: BJÖRN BJÖRNSSON
til alls þess er lífsandann dregur
eru einstakar. Ragnhildur í
Fannardal var fjallkona Íslands,
mannkærleikurinn og hjarta-
hlýjan ofar öllu. Hún varð vinur
minn fyrir tugum ára, þó ég sæi
hana aldrei né heyrði.
Ragnhildur var
hagyrðingur góður
Það var henni áfall að missa
síðasta heimilisköttinn sinn,
Skugga, í bílslysi eftir að hún var
flutt í Neskaupstað, þá var að
henni þrengt. Þá orti hún:
Mér finnst ég vera vesöl kona
vita ei lengur á neinu skil.
Hætt að lifa, hætt að vona
hætta að gráta og finna til.
Guðröður Jónsson, kaupfélags-
stjóri í Neskaupstað, mikill
heimilisvinur, kom daglega
að stytta Ragnhildi stundir og
hressa upp á hana. Á afmælis-
degi hennar, 19. febrúar, eitt árið
sagði hann: „Nú er fagurt veður.
Nú er sólskin.“ Í Fannardal sést
til sólar í síðustu viku þorra, þá
orti Ragnhildur að bragði:
Nú sé ég sólina heima
sé hve hún fagurt skín.
En nú eru fuglarnir farnir
og fokið í sporin mín.
Norðfjarðargöng hafa nánast sett
Fannardal í þjóðbraut. Kannski
munu nýjar Ragnhildar finna
sér stað í dalnum er fram líða
stundir við öll nútímaþægindi.
Það er bjart um Norðfjarðarflóa,
láglendisvegur allt til Reykja-
víkur. Austfirðingum og lands-
mönnum öllum eru sendar
hamingjuóskir úr Skagafirð-
inum með ný Norðfjarðargöng
og glæsta framtíðarsýn.
Hörður Ingimarsson
Myndirnar eru frá Skjala- og
myndasafni Norðfjarðar,
Héraðsskjalasafninu í
Neskaupstað
Ragnhildur á Reykjavíkurárunum.
MYND: SIGRÍÐUR ZOEGA
44/2017 7
Úlfar Ingi Haraldsson / bassi
Söng Singin' In the Rain
í tíma og ótíma sem gutti
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Úlfar Ingi Haraldsson, eða Úlli Har
eins og hann var kallaður þegar hann
bjó á Smáragrundinni á Króknum,
er af árgangi 1966. Hann er fæddur
á Sauðárkróki en ólst að hluta
til upp í Skagafirði og Reykjavík.
Foreldrar hans eru Hallfríður Hanna
Ágústsdóttir (frá Kálfárdal) og
Haraldur Tyrfingsson. Bassinn náði
snemma tökum á Úlfari og nú er
hann sprenglærður á hljóðfærið.
„Aðalhljóðfæri er kontrabassi og
bassagítarar en ég spila líka töluvert
á píanó og gítar,“ segir hann.
Spurður um helstu tónlistarafrek
sín segir Úlfar: „[Ég hef} skrifað hátt í
70 tónverk sem hafa verið flutt m.a.
af Sinfóníuhljómsveit íslands, Caput
hópnum, fjölda kóra og af innlendum
og erlendum listamönnum. Einnig leikið
sem bassaleikari eða komið fram sem
stjórnandi á fjölda tónleika á Íslandi og
erlendis.
Hvaða lag varstu að hlusta á? –
Sinfóníu nr. 2 eftir Johannes Brahms
sem hljómaði í útvarpinu í beinni
útsendingu frá Hörpu og leikin af
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Uppáhalds tónlistartímabil? -20. aldar
nútímatónlist. Ég á erfitt með að vera
nákvæmari þar sem ýmis verk standa
upp úr á mismunandi tímum yfir öldina.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra
eyrun þessa dagana? Öll skrifuð og
alvarleg nútíma „klassísk“tónlist ásamt
ýmiss konar djasstónlist.
Hvers konar tónlist var hlustað á á
þínu heimili? -Ýmiss konar fallega
dægurtónlist sem sungin var af t.d.
Hauki Mortens, Björgvini Halldórssyni,
Geirmundi Valtýssyni, ásamt BG og
Ingibjörgu og Roger Whittaker
Hver var fyrsta platan/diskurinn/
kasettan/niðurhalið sem þú keyptir
þér? -Keypti tvær plötur fyrir hluta af
fermingarpeningunum en það voru The
Wall með Pink Floyd og In Through the
Outdoor með Led Zeppelin
Hvaða græjur varstu þá með? -Þá voru
bara gamlar græjur til á heimilinu sem
ég man ekki einu sinni nafnið á. Þóttu
ágætar græjur (frá ca. 1974) en nafnið
ekkert tengt þeim græjutýpum sem hafa
verið mest í umferð.
Hvert var fyrsta lagið sem þú manst
eftir að hafa fílað í botn? -Lagið var
Singing in the Rain sungið af Gene
Kelly. Ég var mjög ungur (6-7 ára) þegar
ég heyrði þetta lag fyrst og varð alveg
óskaplega hrifinn af laginu og söngnum.
Átti það síðan til að syngja lagið með
sjálfum mér í tíma og ótíma.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér
daginn? -Ég hef ekki mikla þolinmæði
fyrir rapptónlist og tónlist sem hjakkar
toppurinn
Vinsælast á Playlista
Úlfars á þessum
tímapunkti:
L.v.Beethoven
Strengjakvartett op. 133
„Grosse Fuge“
BARTÓK KVARTETTINN
Jay Walkin
NIELS HENNING ØRSTED
PEDERSEN
Domenico Dragonetti
Konsert í A dúr fyrir
kontrabassa og hljómsveit
LEIKINN AF THOMAS
LOM OG STUTTGART
KAMMERSVEITINNI
Sónata nr.1 fyrir píanó
eftir Michael Tippett
PETER DONOHOE
Gríma eftir Jón Nordal
KAMMERSVEIT REYKJAVÍKUR
Píanóstykki op.11 eftir
Arnold Schoenberg
EDDA ERLENDSDÓTTIR
sífellt í sama farinu eða of mikið í sama
hrynmunstrinu eða „groove-inu“…of
lengi!
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað
læturðu hljóma í græjunum til að
koma öllum í stuð? -Ég væri ekki
líklegur til að halda slíkt partý en
ef það kæmi fyrir þá mundi ég
líklega velja bara fjölbreytta góða
dægurtónlist t.d. Allison Kraus eða
Donald Fagen (Steely Dan) og síðan
með smá shuffle rhythm and blues
svona inni á milli, t.d. eitthvað með
Peter Green (úr Fleetwood Mac) eða
t.d. Hideaway með Eric Clapton and
the Bluesbreakers. Svo má alls ekki
gleyma Bob Marley sem ég hef alltaf
haldið mikið upp á allt frá að ég
heyrði tónlist hans fyrst svona um 13
ára aldur.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnu-
dagsmorgni, hvað viltu helst
heyra? -Lútusvítur eftir J.S Bach,
endurreisnarkórtónlist eða klassíska
strengjatónlist frá síðbarokk eða
klassíska tímanum.
Þú átt þess kost að fara hvert
sem er í heiminum og skella þér
á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða
tónleika og hvern tækirðu með
þér? -Ég hefði áhuga á að heyra
Fílharmóníuhljómsveit Berlínar í sal
þeirra í Berlín eða Vínarfílharmóníuna
í Musikverein salnum í Vínarborg.
Einnig áhuga á að heyra Ensemble
Intercontemporain í Ircam hljóð og
tónlistarrannsóknarstofnuninni í París.
Færi helst einn því mér finnst best að
njóta tónlistar einn en ef það er góður
djass þá kannski einhver með sama
æðið fyrir góðum djassi.
Hvað músík var helst blastað í bílnum
þegar þú varst nýkominn með bílpróf?
-Aðallega eitthvað gott í útvarpinu þar
sem ekkert kassettutæki var í bílnum.
Ef það hefði verið eitthvert tæki til að
spila af þá hefði músíkin verið einhver
góður djass t.d. Niels Henning Ørsted
Pedersen sá frábæri bassasnillingur.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig
dreymt um að vera? -Ekki dreymt um
að vera annar en ég er, en hvað áhrif
snertir þá eru það persónur eins og
tónskáldin Béla Bartók, Pierre Boulez,
Duke Ellington og bassasnillingar eins
og t.d. Niels Henning Ørsted Pedersen
og Jaco Pastorius.
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út (eða sú sem
skiptir þig mestu máli)? Goldberg
tilbrigðin leikin af Andreas Schiff – alveg
ótrúlegur snilldarflutningur á þessu
stórkostlega verki.
Úlfar með kontrabassann. MYND AF FACEBOOKSÍÐU ÚLFARS