Feykir


Feykir - 22.11.2017, Side 10

Feykir - 22.11.2017, Side 10
Smalasjálfa í boði Halldórs. MYND ÚR EINKASAFNI Kiwanisklúbburinn Freyja hjálpar konum í neyð Hugur en ekki hagur Oddný Ragna Pálmadóttir, Steinunn Gunnsteinsdóttir og Aldís Hilmarsdóttir raða fötum í kassa sem sendir verða í Konukot:. MYND: ÓAB Félagar í Kiwanisklúbbnum Freyju í Skagafirði ákváðu að finna á heimilum sínum fatnað, hlý föt, óopnaðar hreinlætisvörur og annað sem gæti nýst til að sinna grunnþörfum þeirra kvenna sem sækja sér þjónustu í Konukoti í Reykjavík, sem er neyðarathvarf fyrir heimilis- lausar konur. „Konukot getur tekið á móti átta næturgestum í einu á milli 17:00-10:00 en við vitum að það eru mikið fleiri konur sem þurfa að sækja sér þessa þjónustu. Afgangurinn þarf því að vera úti ef þær komast hvergi annars staðar inn en sú tilhugsun er hræðileg,“ segir Oddný Ragna Pálmadóttir. Hún segir að félagar í Kiwanisklúbbnum Freyju hafi viljað láta gott af sér leiða sem ekki kostaði endilega peninga en væri þó gullnáma fyrir aðra. Markmiðið væri því hugur en ekki hagur. „Þá kom upp sú hugmynd að heyra meðal ann- ars í Konukoti sem er neyðar- athvarf fyrir heimilislausar konur og er ætlað að sinna grunnþörfum hvað varðar húsnæði, hreinlæti og mat. Við Freyjurnar tókum því saman af heimilum okkar föt, hlý föt, óopnaðar hreinlætisvörur og annað sem gæti nýst til að sinna þessum grunnþörfum kvenn- anna sem sækja sér þjónustu í konukot. Stjórnendur í Vöru- miðlun hafa verið svo elskulegir að styrkja okkur um flutning kassanna suður sem innihalda „gullin“ okkar, sem er frábært, og viljum við senda þeim þakklætiskveðjur fyrir það,“ segir Oddný. Í ársskýrslu Rauða Krossins í Reykjavík sem kom út í vor segir að aldrei hafi fleiri konur gist í Konukoti á einu ári, alls 101 kona í rúmlega þrjú þúsund gistinætur árið 2016. Má því ætla að neyðin sé mikil og framtak Freyjanna úr Skagafirði lofsvert. /PF Leiðrétting Rangt föðurnafn Aldís Olga Jóhannesdóttir hélt um áskorandapennann í síðasta Feyki og var matgæðingur í blaðinu þar á undan. Því miður náðu blaðamenn Feykis að rangfeðra Aldísi, ekki einu sinni heldur í bæði skiptin. Feykir biðst innilegrar afsökunar á þessu. Skagafjörður Ný og endurskoðuð eineltisáætlun Sveitarstjórn Svf. Skagafjarðar hefur samþykkt nýja og endurskoðaða stefnu og viðbragðsáætlun gegn einelti, ofbeldi, kynferðislegri og kynbundinni áreitni. Á heimasíðu sveitarfélagsins segir að allt starfsfólk þess eigi rétt á að komið sé fram við það af virðingu og umhyggju. „Sveitarfélagið Skagafjörður tekur skýra afstöðu gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kyn- bundinni áreitni og ofbeldi. Slík hegðun er ekki liðin á vinnustöðum sveitarfélagsins undir neinum kringumstæðum og getur leitt til áminningar og eftir atvikum starfsmissis. Með- virkni starfsmanna í slíkum tilvikum er jafnframt óásætt- anleg,“ segir í áætluninni. /PF 10 44/2017 Hvernig nemandi varstu? Áhuga- laus og óþekkur. Þyrfti að fá einhvers konar greiningu sem fyrst. Hvað er eftirminnilegast frá ferm- ingardeginum? 3. apríl 1988 var allt á kafi í snjó í Reykjavík. Ann- ars fannst mér áberandi hvað við fermingardrengirnir vorum litlir og óþroskaðir miðað við fermingar- stúlkurnar. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Lögfræðingur. Hvert var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú varst krakki? Fjar- stýrður Toyota Hi-Lux. Besti ilmurinn? Rakarinn minn á Siglufirði, Hrólfur Baldursson, selur karlmannlega rakspíra sem allir ilma vel. Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? Ég hlustaði mikið á The Doors. Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? Love me tender Elvis style, annars eitthvert lag frá Las Vegas árum kóngsins. Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Ég horfi nánast eingöngu á streymisveitur og er nú að horfa á aðra þáttaröð Stranger Things og Twin Peaks. Besta bíómyndin? Apocalypse Now eftir Coppola, margar frægar setningar þar. Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Æ, eru þeir ekki allir að gera sitt bezta? Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Ég er húsbóndi á mínu heimili og ræð hvenær ég skúra. Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Ég raða mjög vandlega í uppþvottavélina. Hættulegasta helgarnammið? Kaldur IPA bjór. Hvernig er eggið best? Án salmonellu. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Ég fæ góðar hugmyndir en kem engu í verk. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Nöldur og tuð. Uppáhalds málsháttur eða til- ( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is NAFN: Halldór Gunnar Hálfdansson. ÁRGANGUR: 1974. FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur sjö barna faðir, á von á því áttunda í desember. BÚSETA: Molastaðir, Fljótum. HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALINN: Móðir mín heitir Edda Þorvarðardóttir, starfaði sem læknaritari, faðir Hálfdan Henrýsson stýrimaður og skipaskoðunarmaður. Forfeður voru líklega galdramenn og snærisþjófar á Hornströndum. Fæddur í Reykjavík, bjó í Breiðholti, dvaldi lengst hjá ömmu minni í 101. STARF / NÁM: Bóndi og skólabílstjóri, búfræðingur frá Hvann- eyri og næstum því kennari frá gamla Kennaraháskólanum (átti eina önn eftir). HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Að halda haus. Halldór á Molastöðum vitnun? „Sjitt maður, sólin er farin“ – þetta sagði frændi minn þegar hann sofnaði í berjamó í Stíflurétt og vaknaði þegar farið var að dimma. Hver er elsta minningin sem þú átt? Ferðalög um Vestfirði með fjölskyldunni og heimiliskettinum í Land Rover '68. Enginn í beltum. Hvaða teiknimyndapersóna höfð- ar mest til þín? Kolbeinn kafteinn í Tinna bókunum. Breyskleiki hans höfðar til mín. Hvaða fræga manneskja mundir þú helst vilja vera? Mér finnst nógu flókið að vera ég. Hver er uppáhalds bókin þín og/ eða rithöfundur? Það er engin sérstök bók í uppáhaldi, ég hélt dálítið upp á Hallgrím Helgason þegar hann var fyndinn. Orð eða frasi sem þú notar of mikið? „Kíki á þetta á morgun...“ Hver var mikilvægasta persóna síðustu 100 ára að þínu mati? Þetta er allt bezta fólk. Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Ég færi um Fljótin, Siglufjörð og Héðinsfjörð árið 1936. Ég held nefnilega að ég sé uppi á röngum tíma. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Hvert fór tíminn? Framlenging: Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... Til New York, New York, höfuðborgar heimsins. Ef þú ættir að dvelja aleinn á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Ég þarf bara einn hlut og það er konan mín. Nefndu eitthvað þrennt sem þér finnst þú mega til að gera áður en þú gefur upp öndina: Eignast fisflugvél, ferðast um með konunni minni Maríu og hitta skrýtið fólk.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.