Feykir - 20.12.2017, Page 3
48/2017 3
Það eru að koma jól. Ég veit ég þarf ekkert að segja ykkur það,
við höfum verið minnt á það rækilega síðan í október, eða
jafnvel september. Þá fannst mér alveg óratími til jóla en nú eru
þau bara allt í einu að skella á. Og
ég sem er ekki búin að öllu!
Ég hef verið að hugsa svolítð um
jólin og hefðir undanfarið. Það er
ekki ofsagt að jólin eru mikil
hefðahátíð. Mér heyrist að sumir
komist ekki í gegnum jólahátíðina
án þess að borða nákvæmlega sama
matinn og öll þau jól sem þeir hafa
lifað og gera sömu hlutina í
nákvæmlega sömu röðinni og öll
undanfarin jól.
Ég þykist ekki vera ein af þess-
um hefðamanneskjum og geri grín að fastheldni fjölskyldu-
meðlimanna. Ég er nokkurn veginn viss um að ég hrykki ekki
upp af þó ég sleppti einhverju af hreingerningunum sem ég geri
oftast fyrir jólin - ég hef meira að segja prófað það- og það voru
jól á mínu bernskuheimili þótt við borðuðum ekki hamborgar-
hrygginn sem þykir ómissandi á mínu eigin heimili. Já, og þótt ég
vissi varla hvað laufabrauð væri fyrr en ég kom í Skagafjörðinn
átti ég bara bærileg jól sem barn.
En þrátt fyrir að ein og ein hæðin athugasemd læðist út úr
mér þegar ég heyri talað um það sem „verður“ að gera af því að
það er alltaf gert þá verð ég víst að játa að sumt er bara best eins
og það hefur áður verið. Þar má nú nefna piparkökurnar og
engiferkökurnar sem bakaðar voru heima í gamla daga og ég geri
alltaf líka, að ekki sé talað um brúnu niðursneiddu tertuna sem
alltaf var bökuð fyrir afmælið mitt í lok nóvember og afgangarnir
frystir og geymdir til jóla. Sumt jólaskraut sem er í sérstöku
uppáhaldi, aðallega eitthvað sem dæturnar gerðu þegar þær voru
litlar og líka það sem pabbi gerði og gaf okkur, það verður nú
auðvitað að fara á sinn stað. Og áðan, þegar ég settist við
eldhúsborðið til að skrifa á jólakortin þegar allir á heimilinu voru
farnir að sofa, eins og svo oft áður, þá setti ég að sjálfsögðu þýsku
jólalögin, sem ég hlusta alltaf á þegar ég skrifa á jólakort, í
spilarann og kveikti á kerti. Þetta tilheyrir nefnilega þessu
jólakortaferli mínu. Og já, ég skrifa jólakort, og það mörg, og ætla
ekki að hætta því þó ég gæti sparað mér ómældan tíma með því
að senda bara kveðju á Facebook. Það er mín hefð.
Að ígrunduðu máli hef ég komist að því að hefðir séu bara
ágætar, svo framarlega sem við látum þær ekki verða okkur fjötur
um fót og upplifum það að allt sé eyðilagt ef við, einhverra hluta
vegna, getum ekki gert hlutina eins og alltaf áður. Þær skapa vissa
festu og öryggi og þær geta verið virkilega notalegar. Á hinn
bóginn skulum við ekki gleyma því að hjá fjölda fólks vekja
hefðirnar í kringum hátíðirnar upp erfiðar minningar, minningar
um það sem var og getur ekki orðið aftur. Þannig er því miður
ástatt hjá mörgum og okkur er hollt að staldra við og minnast
þess að hátíðirnar eru ekki öllum til gleði.
Góðir lesendur, þetta er síðasta tölublað Feykis á þessu ári.
Með því fylgja hlýjar kveðjur með þökk fyrir samfylgdina á árinu
og óskir um að hátíðin færi ykkur gleði og frið í hjarta og gæfa
fylgi nýju ári.
Fríða Eyjólfsdóttir, blaðamaður
LEIÐARI
Góðir lesendur Láta gamlan
draum rætast
Microbar & Bed skiptir um eigendur
Veitinga- og gististaðurinn
Microbar & Bed á Sauðárkróki
hefur skipt um eigendur. Það
eru þau Sigríður Magnúsdóttir
og Árni Birgir Ragnarsson sem
ætla að láta gamlan draum
rætast og munu taka við
rekstrinum. Þá verður nafni
staðarins breytt í Grand-Inn Bar
and Bed.
Að sögn Sigríðar munu
viðskiptavinir helst sjá þær
breytingar í upphafi að barinn
verður opinn oftar og lengur.
„Það verða kannski ekki áttatíu
tegundir af bjór í boði, en þetta
verður áfram bar sem hefur
„minni“ ölgerðirnar sem aðal
val. Verðum alltaf með heitt á
könnunni líka og skellum í
vöfflur þegar fólk vill, svona
þegar jólamaturinn er farinn að
setlast.“
Aðspurð segir Sigga kímin
að hvorugt þeirra hjóna hafi
reynslu af barrekstri en ágæta
æfingu hinum megin barborðs-
ins.
„Við látum alla vita sem fyrst
hvenær við opnum og þökkum
allar góðar kveðjur og meðbyr
sem heimafólk hefur sýnt
okkur. Við hlökkum til að sjá
sem flesta!“ segir Sigga í lokin.
Þó ekki sé æskilegt að hvetja
fólk til áfengisdrykkju þá ætti
að vera í lagi að hvetja fólk til að
kíkja á Grand þó ekki væri til
annars en að fá sér kaffi. /PF
Allur ágóði
rennur til
líknarmála í
Skagafirði
Lífið er núna
komið á mynddisk
Nú er kominn í sölu
mynddiskur með upptöku
frá skemmtuninni „Lífið er
núna“ sem hjónin Jón Hallur
Ingólfsson og Aðalbjörg Þ.
Sigfúsdóttir héldu í
Miðgarði síðastliðið sumar.
Þar komu fjölmargir
frábærir listamenn fram og
samfögnuðu þeim hjónum í
tilefni afmæla þeirra.
Það er samdóma álit
þeirra sem þar voru að
stemningin hafi verið einstök
og tilfinningaþrungin en
eins og kunnugt er glímdi
Jón Hallur við krabbamein
sem dró hann til dauða nú í
haust.
Diskinn má nálgast í
helstu verslunum í Skagafirði,
Quiltbúðinni á Akureyri, hjá
Þóreyju Dögg í Breiðholts-
kirkju og Gunnari Rögn-
valdssyni á Löngumýri.
Diskurinn kostar aðeins
tvöþúsund krónur og rennur
ágóðinn til líknarmála í
Skagafirði. /FE
Árni Birgir og Sigga Magg á góðri stund. MYND ÚR EINKASAFNI
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Í síðustu viku lönduðu 14 bátar á Skagaströnd
rúmum 96 tonnum. Fimm skip og bátar
lönduðu rúmlega 375 tonnum á Sauðárkróki,
einn bátur landaði fjórum tonnum á Hofsósi
og á Hvammstanga landaði einn bátur rétt
tæpum sjö tonnum. Heildarafli vikunnar á
Norðurlandi vestra var 482.779 kíló. /FE
Aflatölur á Norðurlandi vestra 10. – 16. desember 2017
96 tonn á Skagaströnd
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 6.926
Alls á Hvammstanga 6.926
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Landbeitt lína 5.321
Álfur SH 414 Landbeitt lína 15.388
Bergur sterki HU 17 Landbeitt lína 3.496
Dagrún HU 121 Þorskfiskinet 3.620
Dísa HU 91 Landbeitt lína 1.626
Fengsæll HU 56 Landbeitt lína 5.856
Guðmundur á Hópi HU 203 Landbeitt lína 6.355
Guðmundur á Hópi HU 203 Lína 16.188
Hafdís HU 85 Handfæri 332
Kambur HU 24 Landbeitt lína 1.207
Magnús HU 23 Landbeitt lína 14.300
Onni HU 36 Dragnót 10.938
Stella GK 23 Landbeitt lína 8.389
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 3.370
Alls á Skagaströnd 96.386
SAUÐÁRKRÓKUR
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 9.331
Klakkur SK 5 Botnvarpa 122.992
Kristín GK 457 Lína 76.005
Málmey SK 1 Botnvarpa 167.135
Alls á Sauðárkróki 375.463
HOFSÓS
Ásmundur SK 123 Landbeitt lína 4.004
Alls á Hofsósi 4.004
Falleg skilaboð á hurðarhúnum
Unnið gegn einelti í Grunnskóla Húnaþings
Í fyrradag var uppbrot frá hefð-
bundinni kennslu í Grunnskóla
Húnaþings vestra á Hvamms-
tanga þar sem nemendur unnu
að ýmsum verkefnum.
Meðal annars var unnið
gegn einelti og útbjuggu
krakkarnir miða með fallegum
skilaboðum á og gengu svo um
og skildu þá eftir á hurðarhúnum
húsanna í bænum. Þetta er svo
sannarlega skemmtilegt fram-
tak hjá krökkunum og mæltist
vel fyrir hjá íbúum. /FE