Feykir - 20.12.2017, Qupperneq 26
26 48/2017
½-1 púrrulaukur
200 ml kókosmjólk
olía, turmerik, karrýduft,
grænmetiskraftur, salt og pipar, allt
eftir smekk.
Aðferð: Skerið allt grænmeti í
teninga/bita. Hitið olíu í stórum
potti, byrjið á að steikja laukinn í
smá stund og bætið svo kryddinu,
öllu grænmetinu og u.þ.b. hálfum
bolla af vatni við. Látið malla í 15
mínútur, það þarf að hræra af og
til þar sem vökvinn er aðeins á
botninum. Bæta svo kókos-
mjólkinni við og e.t.v. meira kryddi.
Blandið vel og látið sjóða áfram í
10-15 mínútur í viðbót, það fer eftir
því hvort maður vill hafa grænmetið
mjúkt eða stökkt.
Sem meðlæti passa hrísgrjón
og/eða brauð.
RÉTTUR 3
Hundakex
„Að lokum langar mig að koma
með uppskrift sem gleður bestu
vinina á heimilinu.“
200 g soðin lifur
100 g smjörlíki
1 egg
3 msk. haframjöl
100 g hveiti eða annað mjöl
Aðferð: Setjið lifrina í matvinnslu-
vél og hakkið mjög smátt. Bætið
smjörlíkinu, egginu og haframjölinu
við og blandið vel saman. Færið svo
yfir í skál, þetta er mjög klístrað.
Hnoðið svo hveitinu saman við og
geymið í ísskáp í klukkutíma. Núna
er hægt að fletja deigið út, skera út
fígurur með smákökuformi, eða
móta bara litlar kökur, setja á
bökunarpappír á ofnplötu og baka í
15 mínútur við 175°. Slökkvið svo á
hitanum en látið blásturinn ganga
við hálfopna hurð þannig að
kökurnar þorni vel.
Angela og Kristján skora á Tine og
Ella, Christine Weinert og Erlend
Kolbeinsson, á Blönduósi.
Verði ykkur að góðu
og gleðileg jól.
FEYKIFÍN AFÞREYING
Vísnagáta
Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum.
Samin er af sannri list.
Sérðu veginn Stína?
Stundum gert í gömlu vist.
Geymir klukkan sína.
Feykir spyr...
Áttu eitthvert
áhugamál
fyrir utan
jólavertíðina?
Spurt á Féslurk
UMSJÓN palli@feykir.is
„Það er nú ekki merkilegt
svo sem. En eftir að hafa
slammað allar þessar hurðir
og döðlað dyrakarmana þá
finnst mér ágætt að dunda mér
í húsgagnasmíði. Einkum stóla
fyrir könnur.“
Hurðaskellir Leppalúðason
„Já, ég hef rosa gaman að því
að spila tölvuleiki. Gigabyte
GTX670OC er t.d. algjört
tölvuleikjatröll búið 2GB af
sjálfstæðu minni ásamt því að
styðja alla nýjustu staðla eins
og PCI-E 3.0 og DirectX 11.1.
Svo er FIFA 18 líka ágætur.“
Gluggagægir Leppalúðason
Ótrúlegt en kannski satt...
Á heimasíðu Ásatrúarfélagsins segir að uppruni jólahalds sé rakinn til
sólhvarfahátíða heiðinna manna sem fögnuðu endurkomu sólarinnar
sem lífg jafa. Ótrúlegt, en kannski satt, þá ákvörðuðu Kristnir menn
að Jesú hefði fæðst um þetta leyti árs og settu jólin á svipaðan
tíma og sólhvarfahátíðin var áður. Með því móti glötuðu menn ekki
miðsvetrarhátíðinni þó að þeir skiptu um trú.
Tilvitnun vikunnar
Það er ekkert eins dapurlegt í þessum heimi en að vakna á jólum
og vera ekki barn. :: Erma Bombeck
RÉTTUR 1
Falafel
1 poki af þurrkuðum
kjúklingabaunum. Baunirnar
lagðar í bleyti í sólarhring, þær
rúmlega tvöfaldast að stærð og eru
notaðar ósoðnar í þennan rétt.
Látið vatnið renna af þeim.
4 bollar af þessum baunum
(afganginn má frysta eða sjóða og
nota í annað)
1 laukur
2 hvítlauksgeirar
½-1 chillipipar (farið varlega,
síðasti sem ég keypti var „on fire“)
eða notið chilliduft, ½ tsk.
1-2 tsk. tandoori-krydd
½-1 tsk. mulinn coriander
½ tsk. pipar
1-2 tsk. salt (smakkið til þegar
deigið er tilbúið, þarf e.t.v. meira)
2 msk. hveiti eða annað mjöl
u.þ.b. 1 lúka steinselja, (er í
frumuppskriftinni en þar sem
þetta fæst ekki alltaf sleppi ég
henni).
Aðferð: Allt sett í matvinnsluvél, í
tvennu lagi þar sem þetta er stór
uppskrift. Vélin látin ganga nokkuð
lengi, stundum þarf að stoppa og
skafa aðeins frá hliðunum. Deigið
virkar mjög laust í sér, áferðin á að
vera svipuð og grófur blautur
sandur. Setjið í skál og geymið í
ísskáp í a.m.k. klukkutíma en má
líka geyma til næsta dags. Ef deigið
tollir alls ekki saman þegar maður
klípur í það þarf annaðhvort að
setja það í blandarann aftur eða
bæta smá hveiti við.
Venjulega eru mótaðar litlar kúlur
sem eru síðan djúpsteiktar en mér
finnst eiginlega betra að gera litla
klatta og steikja á pönnu við
meðalhita í nokkrar mínútur á
báðum hliðum.
RÉTTUR 2
Grænmetiskarrý
„Í þennan rétt má nota alls konar
grænmeti, ágætt ef maður hefur
keypt of mikið og eitthvað af því er
orðið dálitið þreytt.“
1 rauðlaukur
1 sæt kartafla, u.þ.b. 500 g
1 rauð paprika
blómkál, spergilkál, gulrætur eða
annað eftir smekk
1 hvítlauksgeiri
„Ég stunda köfun eins og
enginn sé morgundagurinn.
Eins mikill garmur og ég er til
gangs þá er ég eins og fjögurra
vetra selur í vatni. Nema mér
verður bara drullukalt.“
Stekkjastaur Leppalúðason
Kristján og Angela. MYND: ÚR EINKASAFNI
„Nei. Áhugamál eru
fyrir aumingja!“
Stúfur Grýluson
Sudoku
SVARVIÐ VÍSNAGÁTUNNI:: Vísa.
Grænmetisréttir
og sælgæti fyrir
heimilishundinn
Kristján Birgisson og Angela Berthold hafa búið í Lækjardal síðan
1996 og finnst frábært að búa í sveitinni þó þau stundi ekki
hefðbundinn búskap. Þau vinna bæði á Blönduósi en eiga sína
reiðhesta og tvo hunda.
„Mig langar að koma með tvær uppskriftir að grænmetisréttum,
kannski eru fleiri sem vilja breyta aðeins til eftir hátíðirnar og
sleppa kjötinu af og til,“ segir Angela. „Ég borða sjálf mikið af
grænmeti en Kristján vill ekkert endilega láta bendla sig við
svoleiðis. Fyrsta uppskriftin er af Falafel sem kemur frá Miðaustur-
löndunum og er borðað sem einskonar skyndifæði þar, sett inn í
pítubrauð með salati, tómötum, jógúrt- og tahínsósu.“
( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
Kristján og Angela í Lækjardal