Feykir - 21.02.2018, Qupperneq 10
Jón Gísli Eyland Gíslason
hefur vakið mikla athygli
fyrir hæfileika sína á
knattspyrnuvellinum og
náði að sanna sig, þrátt
fyrir ungan aldur, sem
meistaraflokksleikmann hjá
Tindastóli en hann spilar sem
hægri bakvörður. Jón Gísli,
sem er á 16. aldursári, er enn
skráður leikmaður í 3. flokki
og er, eins og gefur að skilja,
lykilmaður þar. Þá hefur hann
leikið átta U17 landsleiki frá
því í haust, fyrst í undankeppni
EM og nú í janúar í umspili fyrir
sömu keppni.
Jón Gísli er Íþróttagarpur Feykis
að þessu sinni.
Árgangur: -Fæddur árið 2002.
Hvar ólstu upp? -Ég er alinn upp
á Sauðárkróki.
Hverra manna ertu? -Ég er sonur
Ingunnar Ástu Jónsdóttur og Gísla
Eyland Sveinssonar.
Íþróttagrein: -Knattspyrna og svo
hef ég líka gaman af því að leika
mér í körfubolta.
Íþróttafélag: -Tindastóll.
Helstu íþróttaafrek: -Helsta
afrekið er þegar ég spilaði minn
fyrsta meistaraflokksleik og fyrsta
landsleik mundi ég segja.
Skemmtilegasta augnablikið:
-Þegar ég var að labba inn á
völlinn í mínum fyrsta landsleik
fyrir U17 og heyra þjóðsönginn.
Það var algjör draumur og að fá
að spila fyrir landið sitt.
Neyðarlegasta atvikið: -Það var
frekar neyðarlegt þegar ég náði
að klobba pabba þrisvar sinnum í
reitabolta á meistaraflokksæfingu,
þá 14 ára.
Einhver sérviska eða hjátrú?
-Já, ég borða alltaf það sama
fyrir leikdag, kjúklingapasta og
fyrir leiki þá klæði ég mig alltaf
fyrst í vinstri sokkinn og vinstri
legghlífina.
Uppáhalds íþróttamaður?
-Gylfi Sigurðsson er minn uppá-
haldsleikmaður því að mér finnst
hann vera góð fyrirmynd, góður
leikmaður, sem leggur mikið á sig.
Ef þú mættir velja þér and-
stæðing, hver myndi það vera og
í hvaða grein mynduð þið spreyta
ykkur? -Lionel Messi í fótbolta því
mig langar að fá að vita hversu
erfiður hann er.
Hvernig myndir þú lýsa þeirri
rimmu? -Þegar hann er búinn að
sóla mig fjórum sinnum upp úr
skónum og í þá aftur, þá dúndra
ég hann niður!
Helsta afrek fyrir utan
íþróttirnar? -Að hafa sigrast á
kvíðanum sem ég hef glímt við
síðustu fimm ár.
Lífsmottó: -Winners never quit but
quitters never win!
Helsta fyrirmynd í lífinu: -Pabbi,
Gísli, er fyrirmyndin mín í lífinu.
Hann er gaurinn sem hefur ýtt
mér áfram til að verða betri og
hvert ég ætla mér. Það er mér
mjög mikilvægt að getað talað
við hann um allt hvað ég get gert
betur, hvað ég gerði vel. Pabbi er
mjög rólegur og yfirvegaður og það
er mjög gott að hann haldi mér á
mottunni þegar ég fer (stundum)
hátt upp.
Hvað er verið að gera þessa
dagana? -Æfa eins og brjálæð-
ingur.
Hvað er framundan? -Undirbúa
mig fyrir næstu átök í fótboltanum.
Jón Gísli Eyland Gíslason
Algjör draumur að fá að
spila fyrir landið sitt
( ÍÞRÓTTAGARPURINN ) palli@nyprent.is
Landsliðsbúningur Íslands fer Jóni Gísla afskaplega vel og vonandi eigum
við eftir að sjá hann keppa fyrir Íslands hönd í framtíðinni.
MYND AF FACEBOOK
Safnar fyrir ferð á slóðir Lord of the Rings
Leitar til einstaklinga og
fyrirtækja um fjárframlög
Rúnar Þór Njálsson frá
Blönduósi á sér þann
draum að ferðast á vit
ævintýra, alla leið til
Nýja-Sjálands í 14 daga
skoðanatúr og bralla
ýmislegt tengt
sagnaveröld Lord of the
Rings. Rúnar Þór er 26 ára
gamall og bundinn
hjólastól en hann fæddist
þremur mánuðum fyrir
tímann, aðeins 4
merkur/1kg og er með CP
fjórlömun. Til þess að geta
fjármagnað drauminn
hefur hann stofnað
fjámögnunarsíðu á netinu
en ferðin fyrir hann og
aðstoðarfólk kostar um
27.000, evrur.
Rúnar Þór segir að það að vera
fatlaður og bundinn í hjólastól
sé mjög erfitt. „Þú getur ekki
gert margt sem þú vilt gera og á
hverjum degi horfir þú upp á
fólk fara og gera hluti sem þú
vildir óska að þú gætir gert. En
þá er enn mikilvægara að gefast
ekki upp og gera allt sem í þínu
valdi stendur til að láta þína
drauma rætast, og það er ég
einmitt að reyna nú. Minn
draumur er að ferðast.“
En vegna fötlunar Rúnars
og stærðar hans og erfiðleika
þessa draums, getur hann ekki
gert þetta einn og þarf því að
hafa gott fólk með í för, sér til
aðstoðar. „Ég vissi sem er að ég
persónulega myndi aldrei hafa
efni á þessu enda nóg fyrir
hvern og einn ferðalang að
greiða fyrir sig allt sem kemur
að slíku ferðalagi. En vegna
minnar hreyfihömlunar þarf
ég persónulega að greiða fyrir
mína þrjá aðstoðarmenn og
stofnaði ég því fjáröflunarsíðu.
Nú hefur fólk deilt þessu og
styrkt en það vantar enn
töluvert upp á,“ segir hann en
hann hefur m.a. leitað til
fyrirtækja í þeirri von að þau
gætu styrkt hann fjárhagslega.
Þegar þetta er skrifað hafa
safnast alls 12,777 evrur af
27.000 evra markmiðinu og
vantar því enn töluvert upp á.
Ef einhver fyrirtæki vilja gerast
sérstakir styrktaraðilar fyrir
Rúnar Þór segir hann að þau
verði nefnd sérstaklega þegar
þessari ferð verður gerð skil í
máli og myndum síðar. Einnig
er hægt að styrkja nafnlaust ef
þess er óskað.
„Allt skiptir máli. Því fleira
fólk og fyrirtæki sem sjá þetta
og hjálpa, því líklegra er þetta
til árangurs. Margt smátt gerir
eitt stórt,“ segir Rúnar Þór og
bendir á að fólk geti styrkt um
þær upphæðir sem það óski
sér. Eins og máltækið segir
gerir margt smátt eitt stórt.
VIÐTAL
Páll Friðriksson
Rúnar vonast til þess að komast til Nýja Sjálands á vit ævintýra.
MYND AF STYRKTARSÍÐU
Meðalatvinnutekjur 90% af landsmeðaltali
Norðurland vestra
Heildaratvinnutekjur á landinu voru 9,7%
hærri að raunvirði á árinu 2016 en þær voru
árið 2008 en hafa verið lægri öll árin fram að
því. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu
Byggðastofnunar um atvinnutekjur á árunum
2008-2016 eftir atvinnugreinum og svæðum.
Mestu atvinnutekjurnar voru í heilbrigðis- og
félagsþjónustu, iðnaði og fræðslustarfsemi en
mesta aukningin á tímabilinu varð í greinum er
tengjast ferðaþjónustu, þ.e. gistingu og veitingum,
flutningum og geymslu og leigu og sérhæfðri
þjónustu. Mesti samdrátturinn varð hins vegar í
fjármála- og vátryggingaþjónustu og mann-
virkjagerð. Meðalatvinnutekjur voru hæstar á
Austurlandi og þar næst kemur höfuðborgar-
svæðið en lægstar eru þær á Norðurlandi vestra
og á Suðurnesjum.
Heildaratvinnutekjur á Norðurlandi vestra
jukust aðeins um rúm 4% á tímabilinu 2008-
2016, þrátt fyrir að árin 2015 og 2016 hafi
atvinnutekjur aukist um 6-7% hvort ár. Mestu
atvinnutekjurnar voru greiddar í opinberri
stjórnsýslu og fræðslustarfsemi en næst á eftir
koma verslun, fiskveiðar, heilbrigðis- og félags-
þjónusta og iðnaður.
Á Norðurlandi vestra varð mesta aukningin í
atvinnutekjum í landbúnaði, gistingu og veit-
ingum, verslun og í fræðslustarfsemi. Hins vegar
varð verulegur samdráttur í mannvirkjagerð og
einnig varð nokkur samdráttur í heilbrigðis- og
félagsþjónustu og í fiskveiðum.
Meðalatvinnutekjur á Norðurlandi vestra árið
2016 voru aðeins 90% af landsmeðaltali og er þar
mikill munur á Skagafjarðarsýslu, þar sem
meðalatvinnutekjur voru 95% af landsmeðaltali,
og Húnavatnssýslum þar sem þær náðu aðeins
83%.
Opinber stjórnsýsla var stærsta atvinnugreinin
árið 2016 í Húnavatnssýslum, mælt í atvinnu-
tekjum, en næst á eftir koma fræðslustarfsemi,
fiskveiðar, iðnaður og heilbrigðis- og félags-
þjónusta. Í Skagafjarðarsýslu var fræðslustarfsemi
stærst en næst á eftir komu verslun, opinber
stjórnsýsla og þá fiskveiðar. /FE
10 08/2018