Feykir


Feykir - 09.05.2018, Síða 3

Feykir - 09.05.2018, Síða 3
Lífið er núna á Skagaströnd Leiklistardeild Höfðaskóla setur upp leikrit í fullri lengd Leiklistardeild Höfðaskóla á Skagaströnd frumsýnir í kvöld, miðvikudag 9. maí, klukkan 20:00 gamanleikinn Lífið er núna í Fellsborg á Skagaströnd. Leikritið heitir á frummálinu You Can’t Take It With You og var skrifað árið 1936 af þeim George S. Kaufman og Moss Hart. Það hefur verið sýnt áratugum saman í Bandaríkjunum og verið með vinsælustu verkum þar úti fyrir skólauppsetningar. Ástrós Elísdóttir þýddi verkið en að hennar sögn hefur það ekki verið sýnt oft hér á landi þó það hafi verið þýtt á íslensku fyrir 63 árum síðan og hafi orðið úr hjá leikhópnum að nýta ekki þá þýðingu heldur ráðast í nýja. Leikritið segir frá fjölskyldu Marteins Kvaran sem lifir áhyggjulausu lífi í New York á fjórða áratug síðustu aldar en lífsstíllinn stingur í stúf við venjur á þeim tíma. Þegar yngsta dóttirin, Lísa, hefur hug á að trúlofast syni kaupsýslu- manns, Tomma Waage, reynir á hvort hinar ólíku fjölskyldur geti samlagast. Auk fjölskyldu- meðlima blandast ýmsar persónur í málið og meðal annars koma við sögu sprengjur og flugeldar, drukkin leikkona, slöngur, Skattinnheimta ríkis- ins, rússneskur ballettkennari, rannsóknarlögreglan, flámælt- ur gullgrafari og stórhertoga- ynja. Þetta er í þriðja sinn sem leiklistardeild Höfðaskóla setur upp leiksýningu að vori og fara allir nemendur 8.-10. bekkjar með hlutverk í sýningunni. Sem fyrr er það Ástrós Elísdóttir sem leikstýrir en áður hefur hún sett upp með Höfðaskóla söngleikina Allt er nú til og Mamma Mia og hlutu þeir frábærar viðtökur. Sem fyrr segir er frum- sýning í kvöld klukkan 20:00 og önnur sýning verður á föstudag, 11. maí, einnig klukkan 20:00. Miðaverð er 2.000 krónur fyrir fullorðna og 1.000 krónur fyrir grunn- skólanema. Einungis er tekið á móti reiðufé. /FE Lyfjaendurnýjun www.hsn.is Frá og með 2. maí 2018 verður einungis tekið á móti beiðnum um lyfjaendurnýjun á HSN Sauðárkróki á milli kl. 12:30 og 13:30 alla virka daga í síma 455 4020. Einnig mælum við eindregið með að fólk endurnýi lyf sín í gegnum https:/www.heilsuvera.is Vinsamlegast kynntu þér málið á heimasíðu okkar hsn.is/saudarkrokur Ársreikningur Blönduós- bæjar 2017 var tekinn til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar Blönduós- bæjar fyrir skömmu. Arnar Árnason, frá KPMG sat fundinn og fór yfir ársreikninginn og útskýrði helstu liði hans. Rekstartekjur námu 1.000 milljónum króna en fjárhags- áætlun með viðaukum gerði ráð fyrir tekjum upp á 930 milljónir króna. Rekstargjöld voru 889 milljónir króna, fjár- magnsgjöld voru 32 milljónir króna og niðurstaða úr rekstri er hagnaður A og B hluta að upphæð 22 milljónir króna en fjárhagsáætlun með viðaukum gerði ráð fyrir 11 milljóna króna. Eigið féð Blönduósbæjar í árslok 2017 nam 720 millj- ónum króna samkvæmt efna- hagsreikningi. Skuldir án skuldbindinga eru 92,8%, skuldir og skuld- bindingar 117,9% og skulda- viðmið skv. reglugerð 104%. /PF Hagnaður A og B hluta 22 milljónir Ársreikningur Blönduósbæjar Margir komu að kynna sér Landsmótið Sauðárkrókur verður lagður undir íþróttaveislu í sumar Vorfundur UMFÍ var haldinn á Sauðárkróki á föstudagskvöld og fyrri part laugardags dagana 4. – 5. maí. Á vorfundinn mættu um sextíu fulltrúar sambandsaðila UMFÍ frá öllu landinu ásamt starfsfólki. Á föstudeginum fóru þau Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, og Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ, yfir Landsmótið sem verður á Sauðárkróki í sumar. Þetta er nýtt mót á vegum UMFÍ. Mótið er sannkölluð íþróttaveisla. Það er opið öllum, 18 ára og eldri, sem hafa gaman af því að hreyfa sig. Ekki er gerð krafa um að þátttakendur séu skráðir í ungmennafélag eða yfir höfuð í íþróttafélag. Þessi breyting gerir það að verkum að mótið er opið vinahópum, fjölskyldum, íþróttafólki og alls konar fólki sem hefur gaman af því að hreyfa sig. Sú nýbreytni hefur líka verið tekin upp að dagskránni er skipt í fjóra flokka; kepptu, láttu vaða, leiktu þér og skemmtu þér. Það er einmitt láttu vaða sem er ein af nýju áherslunum en þar geta þátttakendur Landsmótsins fengið tækifæri til að prófa fjölda íþróttagreina eða fengið kennslu og kynningu í þeim. Mótsgestir geta valið hverju þeir taka þátt í og sett sitt eigið mót saman. Á Landsmótinu á Sauðárkróki er slegið saman tveimur mótum, Landsmótinu og Landsmóti UMFÍ 50+ og verður þetta stærsta mótið fyrir fimmtíu ára og eldri sem haldið hefur verið. Meiri upplýsingar um Landsmótið er að finna á vefsíðunni www.landsmotid.is 18/2018 3

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.