Feykir


Feykir - 09.05.2018, Page 5

Feykir - 09.05.2018, Page 5
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is Körfubolti : 9. flokkur stúlkna Kræktu í silfur Stelpurnar í 9.flokki körfuknattleiksdeildar Tindastóls hlutu silfurverð- laun á Íslandsmótinu sl. sunnudag er þær lutu í lægra haldi gegn Grindavík. Á laugardag lögðu þær lið Njarðvíkur 43-42 í undan- úrslitaleiknum en mættu svo ofjörlum sínum daginn eftir þegar Grindavík vann 59:27. Engu að síður frábær árangur hjá Stólum sem áttu sæti Í A-riðli allt tímabilið. Þjálfari stúlknanna er Chris Caird en hans verður sárt saknað næsta tímabil þar sem hann mun taka við þjálfun 1. deildarliðs Selfoss Körfu (áður FSu) fyrir komandi tímabil. Ásamt því að þjálfa meistara- flokk félagsins mun Chris einnig sjá um þjálfun unglinga- flokks félagsins og aðstoða þjálfara akademíunnar. /PF Silfurverðlaunahafar 9.fl.kvk. á Íslandsmóti yngri flokka. MYND AF FB SÍÐU UNGLINGARÁÐS Nú eru fótboltamenn og -konur farin að eltast við boltann um víðan völl. Meistaraflokkur karla hjá Tindastóli lék sinn fyrsta leik í 2. deildinni þetta sumarið á laugardag og var leikið við lið Gróttu á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi fyrir framan 80 áhorfendur. Ekki fóru strákarnir neina frægðarför suður að þessu sinni og máttu sætta sig við 5-2 tap í slagveðri en það var þó ekki fyrr en á lokametrunum sem Gróttumenn tryggðu sigurinn. Arnar Helgason kom Gróttu yfir á 17. mínútu og Axel Harðarson bætti öðru marki við fjórum mínútum síðar. Konni Sigga Donna, fyrirliði Tindastóls, minnkaði muninn í 2-1 í uppbótartíma fyrri hálfleiks en Sölvi Björnsson bætti við marki fyrir Gróttu á 60. mínútu. Benjamín Gunnlaugarson minnkaði muninn í 3-2 á 79. mínútu en Júlí Karlsson bætti við fjórða marki Gróttu á 83. mínútu og Jóhannes Hilmarsson innsigl- aði sigur Seltyrninga í upp- bótartíma. Lið Tindastóls er nú að mestu skipað heimamönnum og eftir því sem Feykir kemst næst eru engar stórbreytingar framundan þó eitthvað eigi eftir að bætast í hópinn. Það eru Bjarki Már Árnason og Guðjón Örn Jóhannesson sem þjálfa liðið en strákunum er ekki spáð góðu gengi í sumar. Vonandi blása þeir á allar spek- ingaspár líkt og í fyrrasumar. Þá fór það alveg framhjá Feyki í öllum hasarnum í kringum körfuboltann að Tindastólsmenn féllu úr leik í Mjólkurbikarnum nú seinni partinn í apríl og var það kannski ágætt því Stólarnir töpuðu 7-1 á Húsavík fyrir sprækum Völsungum. Þá töpuðu Stólastelpurnar viðureign sinni gegn Gróttu í mjólkurbikar kvenna 3 – 2 sl. sunnudag og duttu þar með úr keppninni. /ÓAB Fótbolti Tap fyrir Gróttu í fyrsta leik 18/2018 5 Sigfús Ólafur Guðmundsson / gítar og söngur „Fyrsta platan með Ásgeiri Trausta finnst mér alveg frábær“ ( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is Sigfús Ólafur er maður nefndur og er Guðmundsson. Hann er af 1986 árgerð og býr í Túnahverfinu á Króknum en starfar sem trygg- ingasali hjá Vátryggingafélagi Íslands. „Ég er fæddur og upp- alinn í Neskaupstað, þar sem lognið hlær svo dátt. Ég er sonur hjónanna Guðmundar H. Sigfússonar og Ásrúnar B. Sveins- dóttur. Ég er einn af þessum innfluttu í Skagafirði. Fór í skóla til Reykjavíkur og kynntist þar stúlku úr Skagafirði sem sannfærði mig um að þar væri gott að búa,“ segir Sigfús fjallbrattur. Hann segist eiga mjög auðvelt með að læra á hljóðfæri, æfði lengi á trompet á yngri árum en hefur einnig lært á gítar og söng og það eru hans aðal hljóðfæri í dag. „Ég er einnig partýfær á píanó, bassa, trommur og þríhorn,“ segir Sigfús og glottir en aðspurður um helstu afrek sín á tónlistarsviðinu segir hann: „Ætli það sé ekki þegar hljómsveit sem ég var í á yngri árum náði lagi inn á Svona er sumarið 2006. Einnig hef ég tekið þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna og svo náði ég í 35 manna úrslit í þriðju seríu af íslenska Idolinu.“ Ekki slæmt. Hvaða lag varstu að hlusta á? – Ég var að enda við að hlusta á lagið Scars með James Bay Uppáhalds tónlistartímabil? Ég á ekki neitt eitt uppáhalds tímabil heldur finnst samblanda af öllum tímabilum skemmtileg. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Einföld tónlist með góðu grúvi, svona „minna er betra“ fílingur í lögunum Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Það var ekkert rosa- lega mikið verið að hlusta á tónlist á mínu heimili svona í minningunni allavega. Ætli foreldrar mínir hafi ekki reynt að njóta þagnarinnar þegar ég var ekki að æfa mig á trompet eða systir mín á þverflautu. Hver var fyrsta platan/diskurinn/ kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Fyrsta platan sem ég man eftir að hafa keypt mér sjálfur var held ég Pottþétt 9. Þar var að finna hið geysivinsæla lag Vöðvastæltur með Landi og sonum sem heillaði mikið á þessum tíma. Hvaða græjur varstu þá með? Ég var með Sony græjur með innbyggðum geislaspilara og segulbandstæki. Þær eru meira að segja ennþá í notkun heima hjá foreldrum mínum. toppurinn Vinsælast á Playlista Sigfúsar Ólafs: Can´t Hold Us MACKLEMORE & RYAN LEWIS Heimförin ÁSGEIR TRAUSTI Sunny Day in June JÓN JÓNSSON Scars JAMES BAY Love Love Love OF MONSTERS AND MEN Little Lion Man MUMFORD & SONS Hvert var fyrsta lagið sem þú mannst eftir að hafa fílað í botn? Man eftir að þegar pabbi keypti fyrsta geislaspilarann okkar þá keypti hann geisladiskinn „Bandalög 5“. Þar var að finna lagið Ferð án enda með hljómsveitinni SúEllen. Það er fyrsta lag sem ég man eftir að hafa fílað alveg í botn. Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Það er í raun ekkert eitt lag en það er ákveðið 80's sánd sem ég gjörsamlega get ekki. Svona þungir synthar og léleg tölvuhljóð. Siggi Hlö er snillingur að finna þessi lög og spila í þættinum hjá sér Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Öll góð partý byrja á „Þorparanum“ með Pálma Gunnars og félögum og svo fylgja á eftir fleiri lög í þeim dúr. Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Ég er mikið að hlusta á þægilegt gítarpopp þessa dagana. James Bay, Ed Sheeran, Ásgeir Trausti, John Mayer, Jón Jónsson, Friðrik Dór, Mumford & Sons og fleiri eru líklegir að rata í Sonos hátalarann á sunnudagsmorgnum. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ed Sheeran í Róm væri alveg mjög spennandi ferð. Ég myndi að sjálfsögðu bjóða kærustunni með. Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? Ég var mikið að hlusta á amerískt háskólarokk á þessum tíma í bland við íslenska tónlist. Ég átti alla diskana með Blink 182 og hlustaði mikið á þá. Einnig var oft blastað Sálinni Hans Jóns míns og Skítamóral. Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Í raun ekki neinn einn listamaður sem hefur haft mestu áhrifin á mig. Ætli fjölbreytnin hafi ekki haft mest áhrif á mig. Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Það eru tvær plötur sem koma upp í hugann og báðar ekkert svo gamlar. Fyrsta platan með Ásgeiri Trausta (íslenska útgáfan) finnst mér alveg frábær og einnig fyrsta platan með Of Monsters and Men. Þessar tvær plötur get ég hlustað á endalaust án þess að fá leið á þeim. Sigfús í Túnahverfinu. Svo er hann nýorðinn pabbi. MYND ÚR EINKASAFNI

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.