Feykir


Feykir - 09.05.2018, Qupperneq 6

Feykir - 09.05.2018, Qupperneq 6
Verkefnið hefur verið unnið samkvæmt aðferðarfræði upplýsingalíkana mannvirkja (Building Information Model- ing - BIM) og aðferðafræði vistvænnar hönnunar. Stefnt er að því að byggingin verði vottuð sem vistvænt mannvirki samkvæmt alþjóðlega vottunar- kerfinu BREEAM. Útboðsgögn voru gerð aðgengileg á vef Ríkiskaupa þann 2. maí og verða tilboðin opnuð hjá Ríkis- kaupum, þriðjudaginn 15. maí kl.11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Verkinu skal vera að fullu lokið 30. september 2019. Að sögn Aðalsteins Þor- steinssonar, forstjóra Byggða- stofnunar, mun nýtt húsnæði stórbæta aðstöðu hennar til að sinna hlutverki sínu og verður í reynd bylting að því er varðar vinnuaðstöðu starfsmanna. „Lögð er áhersla á að húsnæðið sé allt bjart og fallegt, að efniviður sé sem náttúrulegastur og að loftgæði, hljóðvist og umferð öll sé með sem þægilegasta móti. Vinnuaðstaða starfsmanna verður að langmestu leyti í opnum rýmum, en þó þannig að hvert starfssvið hefur sitt vinnusvæði.“ Aðalsteinn segir að ákvörðunin um að byggja eigið húsnæði fyrir stofnunina á Sauðárkróki eigi sér langan aðdraganda og var ekki auðsótt mál. Segir hann marga hafa lagt þar hönd á plóg. „Leitast hefur verið við að haga hönnun hússins þannig að vandað sé til verka og að það sómi sér vel í umhverfi sínu og henti vel þeirri starfsemi sem þar á að fara fram í nútíð og framtíð og sé sveigjanlegt á þann veg að stofnunin geti vaxið og dafnað,“ segir Aðalsteinn. Gert er ráð fyrir nokkrum mismunandi rýmum sem svara þörfum starfsmanna fyrir mismunandi vinnuform, t.d. næðisrými, þar sem fólk getur unnið einsamalt að tilteknum verkefnum sem krefjast mikillar einbeitingar, teymisrýmum, örfundarýmum, stórum og smærri fundarrýmum, síma- rýmum, og notalegu starfs- mannarými. Þá er einnig gert ráð fyrir að í húsinu verði svokallaðar snertistöðvar þar sem hægt verður að bjóða starfs- mönnum annarra stofnana tímabundna vinnuaðstöðu þegar á þarf að halda. Aðstaða til að taka á móti gestum til lengri eða styttri funda án þess að það trufli aðra starfsmenn við störf sín batnar verulega. Aðalsteinn segir að stefnt sé að því að byggingin verði vottuð sem vistvænt mannvirki samkvæmt alþjóðlega vott- unarkerfinu BREEAM sem er staðall sem verið sé að innleiða í vaxandi mæli fyrir íslenskar byggingar. „Hús Byggðastofnunar á Sauðárkróki yrði fyrsta bygg- ingin hér á Króknum sem fengi slíka vottun. BREEAM vottun bygginga horfir til umhverfismála við hönnun, efnisval og framkvæmd hús- bygginga og tengsla þeirra við nærumhverfi sitt þar sem leitað er leiða til að bæta gæði bygginga og umhverfis þeirra. Reynslan sýnir einnig að það er til þess fallið að auka verðmæti byggingarinnar og lækka kostnað við rekstur og byggingarframkvæmdir þegar litið er til lengri tíma.“ Lán í sögulegu hámarki Ársfundur Byggðastofnunar var haldinn fyrir skömmu en þar kom fram að rekstur Byggðastofnunar hafi gengið vel á síðasta starfsári og er það fimmta árið í röð sem stofnunin er rekin með hagn- aði. „Það bendir til vandaðra vinnubragða, ekki síst þegar litið er til þess að Byggðastofn- un hefur engar þjónustutekjur né vaxtamunartekjur af innlánum og er auk þess ætlað að lána til verkefna sem aðrar lánastofnanir vilja UMFJÖLLUN Páll Friðriksson Byggðastofnun byggir eigið húsnæði á Sauðárkróki Byggingin vottuð sem vistvænt mannvirki Séð framan á nýja byggingu Byggðastofnunar. Ábær fjær og Pósthúsið lengst til hægri. MYNDIR FRÁ BYGGÐASTOFNUN Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Byggðastofnunar hefur auglýst eftir tilboðum í verkið „Byggðastofnun – nýbygging“ , Sauðármýri 2, Sauðárkróki. Um er að ræða jarðvinnu, uppsteypu og fullbúið hús og allan frágang að utan og innan, ásamt lóð. Byggingin er 998 m2 á tveimur hæðum og með kjallara undir hluta hússins. helst ekki lána til, og helst á lægri vöxtum. Það er þó mikilvægt að hafa í huga að þegar litið er til hlutverks og tilgangs lánastarfseminnar þá er ekki hægt að reikna með því að rekstur hennar skili árvissum hagnaði, en langtímamarkmiðið er að niðurstaða rekstrar sé sem næst núllpunkti,“ segir Aðalsteinn. Hann segir eftirspurn eftir lánum frá Byggðastofnun vera í sögulegu hámarki nú, ekki síst í landbúnaði og ferðaþjónustu. „Það er líka ánægjulegt að sjá nýsköpun af ýmsu tagi skjóta rótum í atvinnulífi landsbyggðanna. Það er mikilvægt því vandi fjölmargra byggðarlaga hefur ekki síst legið í einhæfni atvinnulífs, auk þess að vera of háð einu eða fáum tiltölulega stórum fyrirtækjum á viðkomandi svæði. Þetta er nú mjög að breytast. Þeir dagar þar sem lífsafkoma heils byggðarlags nánast hangir á afkomu einnar fiskvinnslu eða rækjuverksmiðju eru góðu heilli nánast liðnir undir lok,“ segir Aðalsteinn að lokum. Bygging Byggðastofnunar séð frá hlið. Inngangur. Byggingin séð aftan frá (vesturhlið). 6 18/2018

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.