Feykir - 27.06.2018, Page 10
Skagafjörður
Skin og skúrir á Lummudögum
Það var nóg um að vera í Skagafirði nú um liðna
helgi, enda Lummudagar, Landsbankamót og
eitt og annað í boði.
Megindagskrá Lummudaga er jafnan á
laugardegi og oft hafa Skagfirðingar verið
heppnir með veðrið en svo var varla að þessu
sinni því talsvert rigndi. Þeir voru þó margir
sem létu rigninguna ekki á sig fá og kíktu í gamla
bæinn á Króknum.
Á íþróttavellinum fór Landsbankamótið fram
þar sem stúlkur í 6. flokki spiluðu fótbolta af
miklum móð bæði í sól og regni.
Á Hofsósi var dagskrá til heiðurs Bill Holm
og verður sagt frá henni í næsta Feyki. /ÓAB
Grilltjald íbúa á verðlaunagötunni frá í fyrra, Hólmagrund, fór á hvolf
í rokinu á fimmtudagsmorgni. Allt fór vel að lokum. MYND AF FB
Þrátt fyrir regnið var vænn hópur mættur í gamla bæinn á
Króknum til að upplifa og njóta. MYND: LUMMUDAGAR Á FB
Regnhlífin var hið mesta þarfaþing á markaðnum á laugardag.
MYND: LUMMUDAGAR Á FB
Þessi tók sér smá hlé frá Landsbankamótinu og sat einbeittur
með sinn Svala og brauð og naut blíðunnar. MYND: ÓAB
Nú um helgina var haldið
upp á 10 ára afmæli
Nes listamiðstöðvar á
Skagaströnd. Á hátíðinni
voru sýnd verk fjölmargra
listamanna sem dvalið hafa
í Nes listamiðstöð, bæði
innsetningar og gjörningur,
ásamt nýjum verkum þeirra
listamanna sem nú dvelja á
Skagaströnd.
Blaðamaður Feykis kíkti í
heimsókn og barði sýninguna
augum á sunnudag. Þar mátti
sjá 80 listaverk, ljósmyndir,
málverk og teikningar og
ýmislegt annað og voru flest
listaverkin til sölu. Auk þess
var boðið upp á kaffi og köku.
Það var gaman að koma í Nes
listamiðstöð og skoða hvað
þeir ólíku listamenn sem þar
dvelja eru að fást við og mælir
Feykir með heimsókn þangað.
/ÓAB
10 ára afmælishátíð Nes listamiðstöðvar
Margt brallað á
Skagaströnd
Gestir skoða sýninguna og rabba við listafólkið.
Hluti listafólksins sem nú dvelur í Nes listamiðstoð. MYNDIR: ÓAB
Úr leik Tindastóls og Kormáks á sunnudagsmorgni.
MYNDIR FRÁ LANDSBANKAMÓTI: ÓAB
FH-ingar brosa breitt eftir að hafa skorað gegn stúlkum úr
Breiðabliki.
Leikmaður Fram athugar hvort ekki sé í lagi með andstæðing úr
Fjölni eftir að hafa óvart dúndrað boltanum í andlitið á henni.
Þessar tvær stöllur úr liðum HK og Víkings voru ekki á þeim
buxunum að gefa hvorri annarri þumlung eftir.
Þórsarar hafa betur í baráttunni um boltann í fjörugum leik gegn
Vesturbæingum úr KR.
Teikningar af steinum í bakgrunni.
Binni Júlla (t.v.) og Unnur Magg ásamt franska listamanninum Jérémy Pailler
sem sýndi myndir af þekktum byggingum svífandi í norðlensku landslagi.
10 25/2018