Feykir - 04.07.2018, Page 7
Bæjarhátíðin Hofsós heim
Fólksfjöldi og fjör á Hofsósi um helgina
Bæjarhátíðin Hofsós heim var haldin um helgina og var þar
margt til skemmtunar. Fjöldi manns tók þátt í gönguferð í
Grafarós með leiðsögn Þorsteins Þorsteinssonar (Steina Pálu)
og á eftir gæddu u.þ.b. 250 gestir sér á ljúffengri kjötsúpu,
matreiddri af Félagi eldri borgara. Kvöldið var milt og á eftir
naut fólk samverunnar við varðeldinn í fjörunni áður en haldið
var á ball í Höfðaborg eða í stuðið með Geira í Sólvík.
Þrátt fyrir duglega rigningu á laugardag var mikil stemning á
bændamarkaði í Pakkhúsinu og í félagsheimilinu þar sem haldin var
söngvarakeppni fyrir ungu kynslóðina og ýmsir aðilar buðu varning
til sölu. Í Konungsverslunarhúsinu opnaði listamaðurinn Helgi
Þorgils Friðjónsson sýningu á verkum sem hann hefur unnið á
Hofsósi. Margt fleira mætti telja en myndirnar tala sínu máli.
Undirbúningsnefnd hátíðarinnar vill koma á framfæri kærum
þökkum til allra sem sóttu hátíðina og þeirra sem sem lögðu hönd á
plóg við undirbúning og framkvæmd og eins þeirra fjölmörgu
styrktaraðila sem gerðu hátíðina aða veruleika. „Sérstakar þakkir til
starfsfólks sveitarfélagsins sem sýndi einstök liðlegheit og velvild við
undirbúning og síðast en ekki síst viljum við þakka lögreglu og
rekstraraðila tjaldstæðisins gott samstarf,“ segir Vala Ófeigsdóttir
sem sat í undirbúningsnefnd hátíðarinnar. /FE
26/2018 7