Feykir - 12.09.2018, Page 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
34
TBL
12. september 2018 38. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Réttað víða um héruð
Haustverkin í sveitinni
Opið fyrir umsóknir
Húsnæðisstuðningur námsmanna
Blönduósbær greiðir sérstakan húsnæðisstuðning
vegna námsmanna og er opið fyrir umsóknir vegna
haustannar 2018. Stuðningurinn er annars vegar
ætlaður foreldrum/forsjáraðilum 15 -17 ára barna sem
búa á heimavist eða námsgörðum.
Á heimasíðu Blönduóssbæjar er bent á að námsmenn 18
ára og eldri sem leigja herbergi á heimavist eða íbúð á
námsgörðum eða almennum markaði þurfi að sækja um til
Vinnumálastofnunar á heimasíðu www.husbot.is. /PF
Réttað var á fjölmörgum stöðum í Skagafirði og
Húnavatnssýslum um síðustu helgi og er óhætt að slá
því föstu að tíðarfarið hafi ekki spillt fyrir
réttarstemningunni en á laugardaginn mældist hæstur
hiti á landinu 18 stig á Blönduósi.
Um næstu helgi verður einnig réttað víðsvegar á
svæðinu en eitthvað mun nú veðurspáin vera óhagstæðari
fyrir þá daga svo tryggara mun vera fyrir smala og
réttagesti að taka fram regngallana.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í Deildardalsrétt á
laugardaginn var en þar lék veðurblíðan við fé og menn.
/FE
Gengið alla miðviku-
daga í september
Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands
Ferðafélag Íslands stendur fyrir lýðheilsugöngum nú í
september líkt og það gerði á síðasta ári og hófust þær í
síðustu viku. Göngurnar verða alla miðvikudaga í
september og hefjast þær klukkan 18:00. Um er að ræða
fjölskylduvænar göngur sem taka u.þ.b. 60-90 mínútur
þar sem megin tilgangurinn er sá að hvetja fólk til
útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar
með heilsu sína og lífsgæði.
Á Norðurlandi vestra hafa verið skipulagðar göngur í
Vestur- og Austur-Húnavatnssýslum en ekki hefur verið sett
inn dagskrá fyrir Skagafjörð.
Húnaþing vestra:
12. september (kl. 17:30) - Fjaran frá Ytri Ánastöðum að Skarði
Upphafsstaður: Íþróttamiðstöðin Hvammstanga kl. 17:30, sameinast í bíla.
Umsjón: Magnús Eðvaldsson.
Göngustjóri: Guðmundur Jónsson.
19. september (kl. 17:30) - Fjaran frá Skarði að Hamarsrétt
Upphafsstaður: Íþróttamiðstöðin Hvammstanga kl. 17:30, sameinast í bíla.
Umsjón: Magnús Eðvaldsson.
Göngustjóri: Guðmundur Jónsson.
26. september (kl. 17:30) - Gengið upp í Ánastaðasel
Upphafsstaður: Íþróttamiðstöðin Hvammstanga kl. 17:30, sameinast í bíla.
Umsjón: Magnús Eðvaldsson.
Austur-Húnavatnssýsla:
12. september – Gunnfríðarstaðir
Upphafsstaður: Gunnfríðarstaðir.
Göngustjóri: Páll Ingþór Kristinsson.
19. september - Spákonufellshöfði á Skagaströnd
Upphafsstaður: Við Salthús Guesthouse.
Göngustjóri: Ólafur Bernódusson.
26. september - Gljúfrið við Giljá
Upphafsstaður: Við Stóru Giljá.
Göngustjóri: Sigurveig Sigurðardóttir. /FE
Gönguhópurinn með göngustjórann á Blönduósi fremstan í flokki.
MYND AF FB/VISIT NORTHWEST ICELAND