Feykir


Feykir - 19.09.2018, Blaðsíða 5

Feykir - 19.09.2018, Blaðsíða 5
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is Golf Arnar Geir lék vel í Oklahoma Skagfirðingurinn Arnar Geir Hjartarson, Golfklúbbi Sauðárkróks, lék á dögunum í fyrsta móti tímabilsins í bandaríska háskólagolfinu með liði sínu, Missouri Valley College. Arnar er á sínu þriðja ári í skólanum og hefur komist í lið skólans í flestum mótum. Hann sigraði meðal annars á einu móti í fyrra. Á Kylfingur.is kemur fram að fyrsta mót tímabilsins í ár hafi farið fram á Lincoln Park golvellinum í Oklahoma en leiknar voru 36 holur fyrri daginn og 18 þann seinni. Arnar lék samtals á tveimur höggum yfir pari (69,72,74) og endaði í 17. sæti af 81 í einstaklingskeppninni. Lið Arnars endaði í 3. sæti sem er flottur árangur en um er að ræða eitt sterkasta mótið í deildinni sem skólinn spilar í. /PF 2. deild karla :: Huginn – Tindastóll 0-1 Stólarnir úr fallsæti Það er bullandi líf á báðum vígstöðvum í 2. deild karla í knattspyrnu. Þrjú lið berjast um toppsætin tvö sem tryggja sæti í Inkasso-deildinni næsta sumar og þrjú lið berjast um að forða sér frá því að enda í ellefta sæti 2. deildar og falla ásamt Seyðfirðingum í 3. deildina. Á laugardag fóru Tindastólsmenn austur og léku við lið Hugins frá Seyðisfirði og gerðu það sem þurfti. Lokatölur 0-1 og lið Tindastóls því í 10. sæti fyrir lokaumferðina. Stólarnir mættu til leiks með nýtt þjálfarateymi, Sigga Donna og Jón Stefán, á Fellavöll í Fellabæ þar sem Huginn spilar heimaleiki sína, en völlurinn á Seyðisfirði hefur ekki verið í leikhæfu ástandi í sumar. Staðan í hálfleik var 0-0 en á 52. mínútu gerði Arnar Ólafsson enn eitt mikilvæga markið fyrir lið sitt en hann gerði einmitt eina markið í leiknum gegn Fjarða- byggð um síðustu helgi. Þetta reyndist eina mark leiksins og færði lið Tindastóls úr fallsæti. Á sama tíma vann Höttur Egilsstöðum lið Völsungs á Húsavík, 2-3, þar sem sigur- markið kom úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Höttur og Tinda- stóll eru með jafnmörg stig, 21, en Höttur er með mun betri markatölu eftir ófarir Stólanna gegn Leikni í byrjun september. Leiknismenn hafa sennilega talið sig hafa styrkt stöðu sína í deildinni með þeim sigri en nú eru Fáskrúðsfirðingar skyndi- lega komnir í fallsæti, með 19 stig, þegar aðeins ein umferð er eftir. Lið Tindastóls mætir liði Völsungs í lokaumferðinni á laugardag og ekkert annað en sigur verður á stefnuskrá beggja liða væntanlega. Stólarnir þurfa stig til að tryggja veru sína í 2. deild og Völsungar gætu verið í þeirri stöðu að eiga séns á að komast upp í 1. deild. Leikur liðanna fer fram á Sauðárkróksvelli en frítt verður á völlinn í boði Skagfirðinga- búðar. Áfram Tindastóll! /ÓAB Það er óhætt að segja að hestar séu stór hluti af lífi séra Sigríðar Gunnarsdóttur, sóknarprests á Sauðárkróki, þó kannski óbeint sé. Hún er gift tamningamanninum Tóta, Þórarni Eymundssyni, sem gert hefur garðinn frægan á keppnisvellinum innan lands sem utan. Þau Sigga og Tóti eiga þrjú börn, Eymund Ás (16), Þórgunni (13) og Hjördísi Höllu (6) en til gamans má geta að Þórgunnur hefur verið iðin í keppnum og unnið til verðlauna. Sigga er hestamaður Feykis að þessu sinni. Hverra manna ert þú? -Ég er dóttir Helgu Árnadóttur og Gunnars Oddsonar í Flatatungu á Kjálka. Hve mörg hross átt þú eða fjölskylda þín? -Ég á eina hryssu samkvæmt Worldfeng og helming eða minna í svolitlum hópi. Við fjölskyldan eigum allskonar hesta, nokkra ferða- og fjölskylduhesta, þrjár hryssur sem við ræktum undan, fáein tryppi og örfáa sparihesta sem mér er sjaldan eða aldrei boðið á bak á. Hver er fyrsta minningin tengd hestum? -Ætli það hafi ekki verið samningaviðræður við Kára bróðir um lán á Lúsa. Hann var eini reiðhesturinn í Tungu sem hægt að var kalla alvöru barnahest. Lúsi var mjög traustur og ólíkur öðrum hrossum í Tungu því hann var latur. Hver er uppáhaldshesturinn þinn og af hverju? -Ég á marga uppáhaldshesta. Nói frá Saurbæ er einn þeirra. Hann er fyrsti hesturinn úr okkar ræktun sem slær í gegn. Nói var í úrslitum í A-flokki á Landsmótinu í sumar með eiganda sínum og knapa, Sinu Scholz. Hvað var það skemmtilegasta sem þú gerðir í sumar, tengt hestum? -Við förum yfirleitt á hverju sumri í hestaferð með þremur öðrum fjölskyldum. Núna í sumar var riðið um blómlegar sveitir vestur í Húnavatnssýslu, m.a. yfir Hópið. Það var frábær ferð. Áttu einhverja sögu tengda hesti sem fallinn er frá? -Pabbi gaf mér móskjóttan hest þegar ég var stelpa. Móskjóni var undan Elg frá Hólum. Hann var mikill gæðingur en kaldlyndur og var lengst af númeri af stór fyrir mig sem knapa. Ég réði ekki almennilega við Skjóna fyrr en hann var orðinn harðfullorðinn. Skjóni hafði gaman af að smala. Eitt haustið lentum við Skjóni í niðaþoku uppi á fjalli fyrir sunnan og ofan Tungu. Ég missti áttirnar undireins en Skjóni vissi alveg hvar hann var og fann bæði kindur og leiðina heim. Hvað ertu að gera þessa dagana, eða á næstunni, tengt hestum? -Núna er spennandi tími í hesthúsinu þegar ungu hrossin eru að koma í frumtamningu. Alltaf skemmtilegt að fylgjast úr fjarlægð með nýjum vonarstjörnum. Svo styttist í Laufskálaréttir, gaman að fara þangað ef vel viðrar. Sigríður Gunnarsdóttir Nói frá Saurbæ einn af uppáhaldshestunum ( HESTAMAÐURINN ) palli@feykir.is Sigga á útreiðum í góðra vina hópi. MYNDIR ÚR EINKASAFNI Nói frá Saurbæ og Sina Scholz á Landsmóti hestamanna í sumar. Arnar Geir á golfvellinum. MYND ÚR EINKASAFNI 35/2018 5

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.