Feykir


Feykir - 12.12.2018, Blaðsíða 11

Feykir - 12.12.2018, Blaðsíða 11
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS:: Kall. Feykir spyr... Hvað er ómissandi á jólahlað- borðinu? Spurt á Facebook UMSJÓN palli@feykir.is „Ég verð að segja laufabrauðið, og þá helst með kúmeni.“ Rakel Rós Ágústsdóttir „Hangikjötið. Það er bragðið, ilmurinn og hefðin.“ Ómar Bragi Stefánsson „Purusteik. Hún er svo góð.“ Anna Jóhanna Hjartardóttir „Síld, eplasalat og appelsínusósan hennar Lísu sem er góð með kalkún.“ Gísli Gunnarsson KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Krossgáta Tilvitnun vikunnar Ég vil lifa næsta lífi mínu afturábak – fæðast dauður en enda sem fullnæging.. – Woody Allen Su do ku Það eru þau Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir og Guðmundur Henry Stefánsson á Skagaströnd sem sjá um matarþátt Feykis að þessu sinni. Þau ætla að gefa lesendum uppskriftir af nokkrum partý réttum sem klikka aldrei. „Fyrsti rétturinn er frá Maju vinkonu,“ segir Hrefna Dögg, „ég smakkaði hann fyrst þegar ég var hjá henni á áramótunum og tengi ég hann því alltaf við áramótin. Þetta er fljótlegt og ofureinfalt og er gert við hvert tækifæri hjá okkur.“ RÉTTUR 1 Maju lefsur 1 pakki Vestlands lefsa (fæst í flestum búðum) Aðferð: Ég hef tvenns konar fyllingar í þeim, annars vegar tún- fisk og svo reyktan silung. Ég byrja á því að mýkja lefsurnar. Breiði út plastfilmu á borðið sem er aðeins stærri en ein lefsa, læt kalt vatn renna yfir eina lefsu í einu og passa að það fari vatn á alla lefsuna, báðar hliðar. Stafla svo blautu lefsunum á plastfilmuna. Þegar ég er búin að bleyta þær allar set ég plast yfir og pakka þeim vel inn á meðan ég geri fyllingarnar. Fylling 1: 2 dósir túnfiskur majónes Aromat krydd laukduft Aðferð: Byrjið á því að láta vatnið/ olíuna leka af túnfisknum, setjið hann svo á disk og tætið hann vel niður með gaffli. Hrærið svo majónesi saman við þannig að þetta verði eins og salat og kryddið eftir smekk með Aromati og laukdufti. Fylling 2: 1 flak reyktur silungur (má líka vera lax) majónes sýrður rjómi Aromat sítrónusafi Aðferð: Skerið silunginn niður, mjög smátt, hrærið honum svo saman við majónes og sýrðan rjóma til helminga. Kryddið með Aromati og setjið smá sítrónusafa í fyllinguna. Ein fylling dugar á um helm- inginn af lefsunum (sem sagt, fimm lefsur með túnfiskfyllingu og fimm með silungsfyllingu). Smyrj- ið fyllingunni á hverja lefsu fyrir sig, passið að skilja smá rönd eftir við endann á lefsunum til að loka þeim. Rúllið svo lefsunum upp í lengjur og geymið í ísskáp yfir nótt eða a.m.k. nokkra klukkutíma. Rétt áður en þær eru bornar fram eru þær skornar niður í sneiðar og þeim raðað á bakka. Frábær fingramatur. RÉTTUR 2 Samlokuteningar Brauðtertubrauð, eitthvað sem hægt er að skera í teninga Emmenthal eða goudaostur í sneiðum vænar skinkusneiðar. Rjómaostakrem: 150 g skinka 1 rauð paprika, smátt söxuð 220 g hreinn rjómaostur 2 msk sætt sinnep 1 tsk paprikuduft 2 msk söxuð steinselja 1 msk blaðlaukur (græni hlutinn) saxaður smátt sítrónusafi Aðferð: Hrærið rjómaostinn mjúk- an. Skinkan skorin smátt ásamt paprikunni og blaðlauknum. Allt sett út í rjómaostinn og hrært saman. Majónesblanda: 100 g majónes 100 g sýrður rjómi 1 tsk sætt sinnep sítrónusafi Aðferð: Hrærið öllu saman. Smyrjið rjómaostakreminu á neðsta brauðið, setjið brauð ofan á, smyrjið það með majónesblönd- unni og raðið ostsneiðunum og skinkusneiðunum ofan á hana. Næsta brauð yfir, rjómaosta- kreminu smurt á það og svo er aftur sett brauð á og majónes- blöndunni smurt á með osta og skinkusneiðum yfir. Síðasta brauð- ið er svo sett yfir, brauðtertan skorin í litla teninga og stungið í gegn með tannstöngli eða skraut- pinna. Takk fyrir og gleðileg jól. Við ætlum að skora á Aðalheiði Sif Árnadóttur og Róbert Frey Gunn- arsson að deila með okkur einhverjum góðum uppskriftum næst. Partýréttir sem aldrei klikka ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is Hrefna Dögg og Guðmundur Henry matreiða Guðmundur Henry og Hrefna Dögg. MYND ÚR EINKASAFNI 47/2018 11 Ótrúlegt – en kannski satt.. Dildóar eða gervigetnaðarlimir eru gjarnan seldir sem kynlífsleikföng sem nota má við sjálfsfróun eða mök. Slíkir dildóar eru oftast úr sílikoni eða gúmmíi og til í ýmsum stærðum og jafnvel með titringi. Ótrúlegt, en kannski satt, þá er bær á Nýfundnalandi, sem heitir Dildo. Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. Ég er óp í auðninni. Uppljómun í sálinni. Tíðum auglýst embætti. Enda nafn á peningi. FEYKIFÍN AFÞREYING

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.