Fréttablaðið - 24.04.2020, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —9 6 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 4 . A P R Í L 2 0 2 0
Njóttu hækkandi sólar á rúntinum.
Uppáhaldsbíllinn þinn bíður!
HEKLA · Skoðaðu úrvalið á www.hekla.is/vefverslun
MANNRÉTTINDI „Fram undan er
afar erfitt tímabil fyrir mannrétt-
indavernd í Evrópu,“ segir Róbert
Spanó, nýkjörinn forseti Mann-
réttindadómstóls Evrópu. Far-
sóttin muni hafa mikil og langvar-
andi áhrif og þar séu mannréttindi
borgaranna ekki undanskilin. „Á
svona tímum er hætta á að þeir sem
fara með opinbert vald gangi of
langt, einkum þegar lýðræðislegar
undirstöður í samfélaginu eru ekki
sterkar fyrir,“ segir Róbert og bendir
á að hlutverk sjálfstæðra dómstóla,
sem grunnstofnana réttarríkisins,
verði enn mikilvægara við slíkar
aðstæður og þær muni þar af leið-
andi einnig hafa mikil áhrif á störf
og hlutverk Mannréttindadóm-
stólsins þann tíma sem Róbert situr
í forsæti hans. Dómstóllinn þurfi
að rækja hlutverk sitt af kostgæfni
við að tryggja að fylgt verði áfram
meginreglum Mannréttindasátt-
mála Evrópu.
Róbert lýsir áhyggjum af þróun
mannréttinda í Evrópu á undan-
förnum árum. „Almennt verður
líka að segja að þróun mannrétt-
inda í Evrópu undanfarin ár hafi
verið með þeim hætti, einkum í
þeim löndum þar sem lýðræðisleg
grunngildi og kröfur réttarríkisins
hafa látið undan, að áhrif hefur
haft á störf innlendra dómstóla, á
sjálfstæði þeirra og störf MDE. Það
er einmitt við slíkar aðstæður sem
sjálfstæðir dómarar þurfa að standa
í lappirnar og halda sínu striki við
að dæma í samræmi við lögin eins
og þau eru og þá einkum að tryggja
mannréttindi þau sem er að finna
í stjórnarskrám viðkomandi ríkja
og í MSE,“ segir Róbert í ítarlegu
viðtali við Fréttablaðið í dag, um
stöðu dómstólsins, dómstörfin og
mannréttindavernd í Evrópu.
Róbert tekur við embætti forseta
um miðjan næsta mánuð. Mjög
mörg erfið og þýðingarmikil mál
bíða meðferðar dómsins. Forseti fer
með yfirumsjón dómstólsins í heild
en þar starfa tæplega 700 manns.
Róbert segir að um helmingur
tíma forseta fari í beina stjórnun
og stjórnsýslu. Hann skipuleggur
og stýrir dómarafundum allra
dómaranna 47 og er málsvari dóm-
stólsins gagnvart Evrópuráðinu og
aðildarríkjunum. „Mikið er því um
ferðalög og fundi, enda forsetinn
nokkurs konar sendiherra dóm-
stólsins út á við,“ segir hann.
Róbert heldur einnig áfram að
dæma mál en forseti MDE situr
ávallt í dómsforsæti yfirdeildar 17
dómara, sem dæmir í allra stærstu
málunum, nema að um sé að ræða
mál frá hans heimaríki, þá stýrir
fyrsti varaforseti þinghaldi. For-
seti situr einnig áfram í sinni sjö
manna deild og dæmir í málum
frá sínu heimalandi. „Ég mun því
halda áfram að dæma í íslenskum
málum.“ – aá / sjá síðu 8
Erfitt tímabil
fyrir vernd
mannréttinda
Hætta er á að mannréttindavernd mæti afgangi í
baráttunni við heimsfaraldurinn, segir nýr forseti
Mannréttindadómstóls Evrópu. Verulega muni
reyna á sjálfstæði dómsvaldsins í ríkjum Evrópu.
Á svona tímum er
hætta á því að þeir
sem fara með opinbert vald
gangi of langt.
Róbert Spanó, forseti MDE
Þessi hjólreiðakappi lék listir sínar í miðborginni á sumardaginn fyrsta. Fjær má sjá félaga hans taka tilþrifin
upp á síma og mun afraksturinn ef laust gleðja innilokaða Íslendinga á samfélagsmiðlum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VIÐSKIPTI Almenningur sækir
mikið í að endurfjármagna hús-
næðislán hjá bæði lífeyrissjóðum
og bönkum. Dæmi er um að líf-
eyrissjóður hafi þurft að loka fyrir
umsóknir.
„Þetta er mjög jákvætt fyrir heim-
ilin, þetta minnkar greiðslubyrðina.
Fólk er greinilega orðið meðvitaðra
um fjármagnskostnaðinn og er að
nýta sér stöðuna,“ segir Kristrún
Frostadóttir, aðalhagfræðingur
Kviku banka. Rúnar Pálmason,
upplýsingafulltrúi Landsbankans,
segir að margir séu að nýta sér
lægri vexti eða bregðast við tekju-
missi með því að breyta lánum.
– ab, así / sjá síðu 4
Margir endurfjármagna lánin
Kristrún
Frostadóttir