Fréttablaðið - 24.04.2020, Page 2

Fréttablaðið - 24.04.2020, Page 2
Að mínu mati er súrdeig ákveðin viðspyrna við hröðu sam- félagi. Ragnheiður Maísól Sturludóttir, súrdeigsfrömuður Því eru aðeins um 10 manns frá vinnu á spítalanum sem er ótrú- legur viðsnún- ingur. Páll Matthíasson, forstjóri Land- spítalans Veður Sunnan 5-13 m/s V-lands. Skýjað og smáskúrir á SV- og V-landi. Rigning eða skúrir S-til,en áfram bjart fyrir norðan. Hiti yfirleitt 5 til 12 stig. SJÁ SÍÐU 16 Bíbí og blaka Þó að veðrið á sumardaginn fyrsta hafi verið grátt og hryssingslegt á höfuðborgarsvæðinu nýttu margir daginn til þess að fá smá hreyfingu á kropp- inn. Á Klambratúni kom fólk saman til að stunda strandblak. Strandblak hefur notið mikilla vinsælda á undanförnum árum og nokkrir vellir verið settir upp. Þá hefur áhorf á íþróttina verið mjög mikið á Ólympíuleikum síðan fyrst var keppt í henni þar árið 1992 í Barcelona. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI DAG HVERN LESA 93.000 ÍSLENDINGAR FRÉTTABLAÐIÐ AÐ MEÐALTALI HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP OKT-DES 2019, 12-80 ÁRA, ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019 FRÉTTABLAÐIÐ - MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS SAMFÉLAG „Heldur betur, það eru um 2.300 manns búin að bætast við hópinn síðan 15. mars. Það má alveg taka undir það að það sé súrdeigsæði á Íslandi,“ segir Ragnheiður Maísól Sturludóttir, forsprakki hópsins Súrdeigið á Facebook, aðspurð út í aukningu á áhuga Íslendinga á súrdeigsbrauði undanfarnar vikur. Sífellt f leiri Íslendingar eru farnir að baka eigið súrdeigsbrauð sem getur verið tímafrekt. Til þess að baka súrdeigsbrauð þarf að búa til súrdeigsmóður og gefa henni fæðu. Í skiptum fæst deig til brauðgerðar. „Þetta er hluti af því að fólk sé að hverfa aftur til nærumhverfisins. Fólk er sífellt færast aftur í átt að í hægari eldun eins þegar sous vide kom fyrst á markaðinn. Það hefur sýnt sig að slík eldamennska fer mun betur í okkur en hröð elda- mennska,“ segir Ragnheiður og heldur áfram: „Að mínu mati er súrdeig ákveðin viðspyrna við hröðu samfélagi. Þú getur bakað gerbrauð á klukku- tíma en að baka gott súrdeigsbrauð tekur í raun 48 tíma. Það eru margir að uppgötva súrdeigið, hvað hægt er að gera við súrdeigið eins og að baka sætabrauð, smákökur og jafn- vel gera drykki.“ Ragnheiður tekur undir að það sé gott að hafa slíkt verkefni til að vinna í þegar samkomubann stend- ur yfir á Íslandi og tuttugu þúsund hafa þurft að sitja af sér sóttkví. „Algjörlega. Ég hef lengi verið að baka og þetta er hjá mér hluti af andlegri vellíðan og hjálpar mér að halda góðu jafnvægi. Jafnvel þó að brauðið verði ekki fallegt þá er það allavegana gott á bragðið.“ Það er augljóst af því að spjalla við Ragnheiði að hún hefur brenn- andi áhuga á súrdeigi og útilokar þjóðfræðineminn ekki að mast- ersverkefni hennar verði um súr- deigsbrauð. Ragnheiður stofnaði hópinn árið 2015 til að geta deilt hugmyndum með þeim sem höfðu áhuga á slíkum bakstri. „Þegar maður uppgötvar nýja hluti kemur oft æsingur í mann og áhugi á að ræða þetta við heimilis- fólkið sem var ekki jafn áhugasamt. Þau einblína meira á að njóta þess að borða brauðið,“ segir Ragnheiður hlæjandi. „Þá er fínt að fá útrás fyrir það með því að ræða við fólk sem deilir þessu áhugamáli. Það eru til fjöl- margar aðferðir og það sem hentar mér hentar kannski ekki einhverj- um öðrum. Það er því margt til að ræða.“ Hópurinn var fámennur fyrstu mánuðina en í dag eru komnir hátt í átta þúsund manns. „Ég man þegar hópurinn komst fyrst upp í 300 manns, mér fannst það ótrúlegt. Stuttu seinna fóru bakarí eins og Brauð & Co að opna sem jók áhugann á súrdeigs- brauðum. Eftir að Flatey pizza gaf út bók um súrdeigspitsur fóru fleiri að snúa sér að þessum möguleika. Þetta hefur verið heillengi á Íslandi en það varð skyndilega einhvern vakning,“ segir Ragnheiður sem reynir að hleypa sem flestum inn í hópinn á degi hverjum. „Ég hef varla undan að samþykkja fólk í hópinn, stærsti dagurinn var síðasta sunnudag þegar mörg hundruð manns voru að sækja um. Það hefur verið 300% aukning í hópnum á stuttum tíma.“ kristinnpall@frettabladid.is Súrdeigsæði á Íslandi Áhugi landans á súrdeigsbrauði hefur rokið upp og er um 300 prósenta fjölg- un í Facebook-hópi þess efnis. Hópstjórnandi íhugar MA-verkefni um súrdeig. Að baka gott súrdeigsbrauð tekur um 48 klukkutíma. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI STJÓRNMÁL Guðmundur Franklín Jónsson, hótelstjóri í Danmörku, tilkynnti um framboð sitt til forseta Íslands í gær. Hafa því tvö mótfram- boð komið fram gegn Guðna Th. Jóhannessyni, sitjandi forseta, en þann 9. apríl tilkynnti Axel Pétur Axelsson framboð. Þetta eru ekki fyrstu afskipti Guðmundar af stjórnmálum því árið 2013 stofnaði hann f lokkinn Hægri græna sem hlaut þó ekki brautargengi í alþingiskosningum það ár. Var flokkurinn sameinaður Íslensku þjóðfylkingunni árið 2016. Það sama ár boðaði Guðmundur framboð til forseta Íslands en dró það síðar til baka. – khg Guðmundur í forsetaframboð Guðmundur Franklín Jónsson COVID-19 Í gær greindust fjórir ein- staklingar með COVID-19 sýkingu en tekin voru 625 sýni. Er heildar- fjöldi tilfella því orðinn 1.789 en virk smit eru nú komin niður í 270. Alls hafa 45 þúsund sýni verið tekin og 18 þúsund manns hafa lokið sóttkví. Á Landspítala eru ellefu inni- liggjandi vegna COVID-19 og tveir á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Fjórir eru á gjörgæsludeild Landspítalans og einn á Akureyri. Alls hafa 112 manns þurft innlögn vegna farald- ursins, 40 þurft á gjörgæslumeðferð að halda og 18 verið settir í öndun- arvél. Ekki var tilkynnt um andlát í gær og er fjöldinn því enn tíu. Páll Matthíasson, forstjór i Landspítala, sagði á blaðamanna- fundi í gær að átta lægju enn inni á spítalanum sem væri batnað af sýkingunni sjálfri en glímdu enn við afleiðingarnar. 279 manns væru í eftirliti göngudeildarinnar, þar af 24 börn, og þrír metnir sem svo að þeir gætu þurft á innlögn að halda. Aðeins fimm starfsmenn spítal- ans eru í sóttkví og sex í einangrun. „Því eru aðeins um tíu manns frá vinnu á spítalanum sem er ótrú- legur viðsnúningur,“ segir Páll. Jafn framt sagði hann á fundinum frá vini sínum, lækni í nágranna- landi, sem hefði smitast vegna skorts á hlífðarbúnaði. Sagðist hann þakklátur fyrir að búa í landi þar sem staðan væri metin út frá stað- reyndum, en ekki óskhyggju. – khg Landspítali endurheimtir starfsfólkið 2 4 . A P R Í L 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.