Fréttablaðið - 24.04.2020, Síða 4

Fréttablaðið - 24.04.2020, Síða 4
Það hefur orðið algjör sprenging í skráningum á íbúðum hjá okkur. Vignir Már Lýðsson, fram- kvæmdastjóri Leiguskjóls Ríkið verður að finna út úr því. Við borgum okkar lögbundna hluta, sem er 15 prósent af byggingarkostnaði. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar Fólk er greinilega orðið meðvitaðra um fjármagnskostnaðinn og er að nýta sér stöðina. Kristrún Frostadóttir, aðalhagfræðing- ur Kviku banka Ný tvöföld virkni sem veitir hraða og langvarandi vörn gegn tannkuli. VIÐSKIPTI Mikil ásókn er í endur- fjármögnun húsnæðislána hjá bæði lífeyrissjóðum og bönkum. Dæmi er um að lífeyrissjóður hafi þurft að loka fyrir umsóknir. „Eftirspurn eftir endurfjármögn- un lána er heilmikil og hefur verið meðan á núverandi vaxtalækkun- arskeiði hefur staðið. Hvað varðar húsnæðislán einstaklinga er rúm- lega þriðjungur allra lánveitinga vegna endurfjármögnunar,“ segir Björn Berg Gunnarsson, deildar- stjóri hjá Íslandsbanka. „Á undan- förnum mánuðum hefur meðal annars verið mikil ásókn í óverð- tryggð lán á breytilegum vöxtum þegar kemur að endurfjármögnun lána. Nú er hægt að anna eftirspurn talsvert betur þar sem ferlið við endurfjármögnun og töku nýrra lána er orðið rafrænt.“ Hjá Arion banka hefur eftirspurn bæði aukist eftir verðtryggðum og óverðtryggðum lánum, en heldur meira eftir óverðtryggðum. Rúnar Pálmason, upplýsingafull- trúi Landsbankans, segir að margir vilji nýta sér lægri vexti eða séu að bregðast við tekjumissi með því að breyta lánum þannig að greiðslu- byrði lækki tímabundið. Birta lífeyrissjóður hefur lokað tímabundið fyrir umsóknir um endurfjármögnun. „Við tókum þá ákvörðun að loka fyrir umsóknir um endurfjármögnun í nokkrar vikur til að anna eftirspurninni eftir greiðsluerfiðleikaúrræðum sem ganga fyrir núna og þarf að afgreiða hratt,“ segir Hanna Þórunn Skúladóttir, skrifstofustjóri Birtu lífeyrissjóðs. Umsóknir voru með hátt í níu vikna bið í greiðslumat þegar mest lét. „Við höfum mætt miklum skilningi hjá sjóðfélög- um. Fólk bíður rólegt og skilur að umsóknir um frystingu lána þeirra sem eru í greiðsluerfiðleikum ganga fyrir. Það veit að um tímabundna lokun er að ræða.“ Festi lífeyrissjóður er í samstarfi við bankana um greiðslumat og er biðin því lítil. „Það hafa komið inn töluvert fleiri umsóknir, þá aðallega fyrir úrræði vegna COVID-19. Það hefur vaxið en við höfum ekki farið þá leið að fresta afborgunum, frekar lengjum við lánið svo af borganir hækki ekki eftir nokkra mánuði,“ segir Gylfi Jónasson, framkvæmda- stjóri Festu. Gunnar Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Almenna lífeyris- sjóðsins, segir allt ganga hægar nú þegar hluti starfsmanna vinnur heima. „Ég veit ekki hvort það sé einhver löng bið, en það gengur allt hægar,“ segir Gunnar. Kristrún Frostadóttir, aðalhag- fræðingur Kviku banka, segir ásókn í endurfjármögnun húsnæðislána á þessum tímapunkti jákvæða þróun fyrir heimilin í landinu. „Þetta er mjög jákvætt fyrir heim- ilin, þetta minnkar greiðslubyrðina. Fólk er greinilega orðið meðvitaðra um fjármagnskostnaðinn og er að nýta sér stöðina,“ segir Kristrún. Það sé þó ekki sjálfgefið að lækk- un vaxta skipti fyrirtækin miklu máli. „Vaxtakostnaðurinn er ekki vandamálið þeirra, það er tekju- missirinn. Vaxtalækkun er bara dropi í hafið fyrir mörg þeirra.“ arib@frettabladid.is arnorsteinn@frettabladid.is Margir að endurfjármagna húsnæðislánin vegna vaxta Almenningur sækist mikið eftir að endurfjármagna húsnæðislán hjá bæði lífeyrissjóðum og bönkum. Dæmi er um að lífeyrissjóður hafi þurft að loka fyrir umsóknir. Aðalhagfræðingur Kviku banka segir þessa þróun afar jákvæða fyrir heimilin í landinu og fólk orðið meðvitaðra um fjármagnskostnaðinn. Margir nýta sér nú lága vexti á húsnæðislánum og breyta lánum til að greiðslubyrði þeirra lækki. Fréttablaðið/GVA REYK JAVÍK Innkaupaskrifstofa Reykjavíkurborgar leggur til við Innkauparáð að semja við átta fyrir- tæki sem buðu í kaup borgarinnar á raftækjum. „Allir bjóðendur upp- fylltu kröfur útboðsgagna nema Verslunartækni sem uppfyllti ekki kröfur um hæfi vegna fjárhags- stöðu varðandi skil á opinberum gjöldum,“ segir í rammasamningi um kaupin. Af þeim átta fyrirtækj- um sem stóðust kröfur borgarinnar býður Pfaff mesta afsláttinn eða 25 prósent af iðnaðarbúnaði fyrir veit- ingaþjónustu fyrir stofnanir. Bæði Origo og Heimilistæki buðu 12 pró- sent afslátt í því útboði. Ramma- samningsútboðið náði yfir fimm hluta og var bjóðendum heimilt að bjóða í einstaka hluta útboðs. – bb Verslunartækni uppfyllti ekki skilyrði útboðs Borgin er að endurnýja raftæki. AKUREYRI Akureyrarbær hefur sam- þykkt að byggja nýtt hjúkrunar- heimili fyrir um 60 vistmenn. Mun það rísa við hlið hjúkrunarheimilis- ins Lögmannshlíðar í Glerárhverf- inu, sem tekið var í notkun árið 2012. Ítrekað er að bærinn sjálfur muni ekki koma að rekstri heim- ilisins. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri segir að ávallt sé þörf fyrir ný hjúkr- unarrými en staðan sé nokkurn veginn í jafnvægi núna. „Við erum að skipta út gömlum hjúkrunarheim- ilum sem eru orðin úrelt,“ segir hún. Einnig að Framkvæmdasýsla ríkisins sjái um þessa framkvæmd sem muni líklega hefjast á næstu dögum. Rekstur hjúkrunarheimila leggst mjög þungt á bæjarsjóð og skýrir að stórum hluta hallarekstur á A- hlutanum. Hefur hann verið um 400 milljónir króna í mínus árlega undanfarin ár en um 360 milljónir hafa farið í rekstur hjúkrunarheim- ilanna. Akureyri er alls ekki eina sveitarfélagið sem er að kljást við þennan vanda og hefur Samband íslenskra sveitarfélaga ályktað um málið, það er að framlög ríkisins séu of lág. Rammasamningur um þjónustu hjúkrunarheimila á milli Sjúkra- trygginga Íslands annars vegar og Sambandsins og STV, Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, rann út í lok árs 2018. „Við höfum rætt við ráðherra og látið hana vita að við höfum ekki áhuga á að reka heimilin áfram miðað við stöðuna,“ segir Ásthildur. „Hún segist hafa skilning á málinu en við höfum þó ekki fengið nein svör enn.“ Aðspurð hver muni sjá um rekst- ur nýja heimilisins segir Ásthildur það eigi eftir að koma í ljós. „Ríkið verður að finna út úr því. Við borg- um okkar lögbundna hluta, sem er 15 prósent af byggingarkostnaði,“ segir hún. – khg Akureyrarbær ætlar ekki að reka nýtt hjúkrunarheimili í Glerárhverfinu BJÖRGUN Allar björgunarsveitir á Vesturlandi og höfuðborgarsvæð- inu voru kallaðar út til að leita að tíu ára gömlum dreng við Hreðavatn í Borgarfirði í gær. Drengurinn varð viðskila við for- eldra sína eftir hádegið og hófst leit á fjórða tímanum. Um 160 björg- unarsveitarmenn komu að leitinni, gangandi og á fjórhjólum. Þyrlur Landhelgisgæslunnar yfir svæðið og einnig voru notaðir drónar og hundar við leitina. Á sjöunda tímanum var greint frá því að drengurinn hefði fund- ist heill á húfi við gíginn Grábrók, norðaustan við vatnið. – khg Fannst eftir leit við Grábrók HÚSNÆÐISMÁL Ein afleiðinga hruns í komu erlendra ferðamanna til landsins er sú að gríðarlegur fjöldi af íbúðum hrúgast nú inn á á leigu- markaðinn. Verðið hefur hrapað en þó er ólíklegt að langtímaleigjendur muni njóta góðs af því. „Það hefur orðið algjör sprenging í skráningum á íbúðum hjá okkur og það sama gildir um allar aðrar leigusíður,“ segir Vignir Már Lýðs- son, framkvæmdastjóri Leiguskjóls. Þegar er ljóst að aprílmánuður er orðinn stærsti mánuðurinn í sögu fyrirtækisins. Að hans mati er þó ólíklegt að af leiðingin verði sú að húsa- leiga til lengri tíma muni lækka. „Þessar eignir sem eru að koma inn eru leigðar út til skamms tíma. Vandamálið er að það er ekki mikil eftirspurn eftir slíkum eignum hjá Íslendingum almennt ,“ segir Vignir Már. Ekki er mikið svigrúm til að lækka húsaleigu hérlendis. „Út frá kostnaðinum við að fjármagna og reka íbúð þá er ekki sjálf bært að verðið lækki mikið,“ segir hann. Ef ekki rofi til f ljótlega muni þessar eignir því líklega verða seldar. Að sögn Vignis Más eru umsvifa- miklir aðilar á þessum markaði að reyna að passa að hafa ekki öll eggin í sömu körfu. „Það eru dæmi um að aðilar sem eiga marga tugi íbúða séu að leigja hluta íbúðanna í þrjá mánuði, aðrar í sex mánuði og svo einhverjar í tólf mánuði. Óvíst er hvenær þetta ástand lagast og því vilja fæstir festa allar íbúðirnar sínar og fórna sveigj- anleikanum til þess að bregðast við breytingum.“ – bþ Ólíklegt að langtímaleiga lækki þrátt fyrir aukið framboð íbúða 2 4 . A P R Í L 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.