Fréttablaðið - 24.04.2020, Síða 14

Fréttablaðið - 24.04.2020, Síða 14
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Karl Bergmann bifvélavirki, Kirkjusandi 5, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 19. apríl. Útför verður auglýst síðar. Jórunn Guðlaug Sigurðardóttir Sigrún Eva Margrétardóttir Haukur Logi Karlsson Áslaug Dögg Karlsdóttir Sverrir Kári Karlsson Helena Kristinsdóttir Snædís Karlsdóttir Úlfar Kári Jóhannsson og barnabörn. Talsverður fjöldi háskólastúdenta settist að á göngunum í menntamála- ráðuneytinu þennan dag árið 1970. Það gerðu þeir til að lýsa stuðningi sínum við námslaunakröfur íslenskra námsmanna erlendis en ellefu þeirra höfðu nokkrum dögum fyrr ráðist inn í sendiráð Íslands í Stokkhólmi til að mótmæla bágum kjörum. Unga fólkið í menntamálaráðuneyt- inu var úr nokkrum framhaldsskólum og sat sem fastast á göngunum þannig að starfsfólk komst ekki með nokkru móti milli herbergja og þeir sem áttu erindi í ráðuneytið komust ekki inn. Ekkert var að gert fyrst í stað en þar kom að lögreglan missti þolinmæðina og bar unga fólkið út úr húsinu eftir að hafa beðið það með góðu að hverfa á brott. Urðu þá miklar stympingar og voru sex piltar og ein stúlka flutt í fangageymslu en var sleppt eftir stutta viðdvöl. Þrír piltar og ein stúlka þurftu á slysavarðstofuna eftir atganginn. Þ E T TA G E R Ð I S T: 24 . A P R Í L 1970 Umsátursástand varð í menntamálaráðuneytinu Merkisatburðir 1610 Hollenska Austur-Indíafélagið fær verslunarleyfi í Pulicat á Indlandi. 1704 Fyrsta fréttablaðið í Norður-Ameríku, The Boston News-Letter, hefur útgáfu. 1840 Sveinn Pálsson læknir deyr þennan dag, hann var ekki bara læknir heldur líka náttúrufræðingur mikill og stundaði umfangsmiklar rannsóknir. 1862 Sigurður málari skrifar hugvekju í Þjóðólf þar sem hann hvetur til stofnunar Forngripasafns á Íslandi. 1914 Síðasti líflátsdómur er kveðinn upp á Íslandi. Dómnum var síðar breytt í ævilangt fangelsi. 1922 Hestamannafélagið Fákur er stofnað í Reykjavík. 1953 Elísabet 2. Bretadrottning slær Winston Churchill til riddara. 1961 Danska útvarpið skýrir frá því að ríkisstjórn Dan- merkur hafi borist samþykki íslensku ríkisstjórnarinnar við tilboði Dana um afhendingu á verulegum hluta íslensku handritanna. 1967 Íþróttafélagið Grótta er stofnað á Seltjarnarnesi. 1967 SIF, flugvél Land- helgisgæslunnar, stendur breska togarann Brand að meintum ólöglegum veiðum suðvestur af Eldey. Varðskip fylgir togaranum til hafnar í Reykjavík. 1977 Tékkneski stór- meistarinn í skák Vlasti- mil Hort setur heimsmet í fjöltefli á Seltjarnarnesi þegar hann teflir við 550 manns á rúmum sólar- hring. 1978 Dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri skýrir frá athugun Seðla- bankans á nýjum gjald- miðli sem verði hundrað sinnum verðmeiri en núgildandi króna. 1982 Jón Páll Sigmars- son setur tvö Evrópumet í lyftingum. Hann lyftir 362,5 kg í réttstöðu og 940 kg samtals. 1990 Hubble-sjónaukinn er sendur út í geim um borð í geimskutlunni Discovery. 1990 Austur- og Vestur- Þýskaland samþykkja að taka upp sameiginlega mynt 1. júlí 1990. 1994 Magnús Scheving nær öðru sæti á heimsmeistara- móti í þolfimi sem haldið er í Japan. 2009 Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við svína- flensufaraldri eftir að svínaflensa tekur að breiðast út í Mexíkó. Af mælisha ld ið verðu r auðvitað allt öðru vísi en fyrirhugað var. Ég ætlaði að fá til mín saumaklúbb-inn, fjölskyldu og vini og síðan höfðum við hjónin hugsað okkur að eiga rómantískt kvöld og fara á einhvern huggulegan stað til að borða og gista. Það verður ekkert af því í þetta sinn og bíður bara betri tíma,“ segir Bára Grímsdóttir tónlistarkona sem er sextug í dag. Hún útilokar ekki að kjarnafjölskyldan geri sér dagamun. „Það verður bara fámennt,“ segir hún. Fullyrða má að lagið verði tekið við það tækifæri því tónlistin á lögheimili hjá henni. „Ég er fædd á Héraðshælinu á Blöndu- ósi, eins og sjúkrahúsið þar var kallað, og átti heima í Grímstungu í Vatnsdal fyrstu fjögur ár ævi minnar. Þar byrj- uðu foreldrar mínir, Grímur Lárusson og Magnea Halldórsdóttir, búskap sinn en fluttu svo til borgarinnar,“ lýsir Bára þegar ég spyr hana út í upprunann. Hitt veit ég að hún er tónskáld, hljóðfæra- leikari og söngkona og ásamt manni sínum, Chris Foster gítarleikara, er hún í tvíeykinu Funa. Þegar allt er eðlilegt, og engin kóróna á ferð, stjórnar hún kór en segir engar alvöru æfingar vera á þessum tíma.“ Ýmislegt kveðst Bára þó geta haft fyrir stafni, þrátt fyrir að ekki sé um launa- vinnu að ræða. Hún kveðst eiginlega alin upp í Kvæðamannafélaginu Iðunni, því hún hafi fylgt foreldrum sínum á fundi félagsins og fagnaði, ef þeir voru ekki beinlínis haldnir heima hjá þeim, þar hafi hún lært að kveða stemmur og líka æft sig í að yrkja. Nú sinnir hún for- mennsku í Iðunni og meðal sjálf boða- starfa hjá henni er að vinna í heimasíðu félagsins. Hún fæst einnig við að skrifa óperu. „Ég hef verið að vinna að þessari óperu í nokkur ár og hef þegið styrki til þess og listamannalaun. Óperan fjallar um Jón Arason og fólkið kring um hann, meðal annars fylgikonu hans og dóttur, um fátækrahjálpina sem kaþólska kirkjan sinnti og um siðbreytinguna, efni sem Vilborg Auður Ísleifsdóttir sagnfræðing- ur hefur brugðið ljósi á. Óperan mín er fyrir marga söngvara, kór og hljómsveit með strengjum, tréblásturshljóðfærum, sembal og slagverki,“ lýsir Bára og bætir við: „Þetta eru ansi margar nótur að skrifa og það geri ég í tölvunni.“ Í framhaldi af þessum upplýsingum er vert að minnast á að á síðasta ári hlaut Bára riddarakross hinnar íslensku fálka- orðu fyrir varðveislu og endurnýjun á íslenskum tónlistararfi. Bára kveðst hafa fengið hljómlistina frá báðum foreldrum sínum og segir hafa jaðrað við ríg milli þeirra þegar tónlist í ættum beggja bar á góma. „Cortes fjölskyldan var mömmu megin en pabbi frá Grímstungu þar sem afi Lárus kvað og mikið var sungið og spil- að. Hörður Torfa var þar í sveit á sínum tíma og segist hafa lært söng þar. Pabbi og Ragnar bróðir kváðu mikið saman og komu oft fram undir nafninu Gríms- tungubræður.“ Bára leitar af og til í átthagana og segist reyna að láta ekkert sumar líða án heimsóknar í Vatnsdalinn. gun@frettabladid.is Skrifar óperu um Jón Arason og fylgikonu hans Meðal þess sem kórónaveiran hefur áhrif á eru veisluhöld vegna stórafmæla. Bára Grímsdóttir, tónskáld og kvæðakona, varð að breyta plönum viðvíkjandi sextugsaf- mælinu í dag en nær vonandi að bæta sér það upp síðar. Öllu skiptir að halda heilsu. Bára útilokar ekki að kjarnafjölskyldan geri sér dagamun í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 4 . A P R Í L 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.