Fréttablaðið - 24.04.2020, Side 20
Áhuginn á raf-
hjólum og raf-
hlaupahjólum hefur
verið vonum framar, en
hjólin henta fólki á
öllum aldri. Pétur segir rafhjólin vera stór-sniðugan fararskjóta hvort sem er í vinnuna eða í ferðir út
fyrir borgina, til dæmis í Heiðmörk
eða í Bláfjöll. „Það er alls staðar
hægt að finna flotta hjólastíga og
fallegar leiðir og svo er þetta svo
skemmtilegur ferðamáti. Rafhjólin
eru alger bylting og ég get lofað
því að þegar þú prófar svona hjól
í fyrsta sinn, þá smellur eitthvað.
Það er óviðjafnanleg tilfinning að
geta farið út að hjóla og þurfa ekki
að hugsa hvort það sé mótvindur
eða vont veður. Veðrið skiptir ein-
faldlega ekki máli lengur. Ég bý t.d.
í miðbænum en vinn í Grafarholti
og ég er eiginlega hættur að fara á
bílnum í vinnuna. Enda er ég rétt
um 20 mínútur á hjólinu.
Ég hef líka margoft staðið sjálfan
mig að því að fara lengri leiðina
heim, einfaldlega af því ég get það.
Þetta er að auki frábær líkamsrækt
og hægt er að stilla rafhjólið eftir
því hvernig maður vill nota það.
Þá eru stillingarnar oftast þrjár;
eco, trail og boost. Eco gefur smá
auka kraft og boost gefur góða
aukasprautu fyrir brekkur og slíkt.
En þú þarft að sjálfsögðu alltaf að
hjóla með til að komast áfram. Svo
er líka hægt að slökkva á rafmagn-
inu og þá ertu með venjulegt hjól.“
Rafhjólasetur
Ellingsen opnaði nýverið glænýtt
og stórglæsilegt rafhjólasetur og
þjónustuverkstæði í verslun sinni
að Fiskislóð á Granda en raf-
hjólin eru að auki seld í Ellingsen
á Akureyri. „Upp á síðkastið hefur
verið gífurleg aukning í sölu á raf-
hjólum, ekki síst eftir að virðis-
aukaskatturinn var lagður niður af
rafhjólum undir 400.000 krónum
og rafhlaupahjólum undir 200.000
krónum. Við höfum vart undan
að setja þetta allt saman. Áhuginn
á rafhjólum og rafhlaupahjólum
hefur verið vonum framar, en
hjólin henta fólki á öllum aldri.
Rafhlaupahjólin munu verða
vinsælasta fermingargjöfin í haust,
en þau komast á allt að 25 kíló-
metra hraða á klukkustund.“
Rafhjólasetur
Ellingsen með
rafhjól fyrir þig
Pétur Þór Halldórsson, forstjóri S4S,
hefur að sögn varla hreyft bílinn eftir
að hann fékk sér Mate X rafmagns-
hjól. Hann er eingöngu 20 mínútur
á leið í vinnuna og segir hjólið að
mestu koma í stað bifreiðarinnar.
Pétur Þór Halldórsson, forstjóri S4S, er að sögn hæstánægður með rafhjólið sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Rafhjólasetur
Ellingsen er
með frábært úr-
val af rafhjólum
fyrir alla.
Fjölbreytni í fyrirrúmi
Ellingsen flytur inn fjölbreytt úrval
af rafhjólum og rafhlaupahjólum
frá átta framleiðendum. „Við erum
í grundvallaratriðum með allt sem
færir þig frá A til B með rafmagni.
Tern rafhjólin eru til dæmis kjörin
fyrir fjölskyldufólkið, en hægt er að
hafa einn eða tvo barnastóla aftan
á þeim, eða góðan geymslukassa.
Þá erum við að fá nýja sendingu
af Zero rafhlaupahjólum til okkar
í næstu viku, en þau seldust upp í
mars. Skemmtilegustu hjólin eru
síðan Mate X, eins og ég hjóla um
á. Gríðarlega töff hjól sem fást í
mörgum litum, eru samanbrjótan-
leg og auðvelt að taka með sér hvert
sem er.
Þá erum við með alvöru Merida
fjallahjól fyrir fjallageiturnar sem
og borgarhjól sem henta öllum. Um
mánaðamótin eigum við svo von á
45 Legend rafhjólum frá Barcelona,
en þessi hjól seldust upp um leið og
við fengum fyrstu sendinguna. Við
erum því með eitthvað fyrir alla.“
Hentug netverslun
S4S samstæðan telur þrjár net-
verslanir: Ellingsen, AIR og Skór. is.
„Það hefur verið gríðarleg upp-
sveifla í netverslun hjá okkur, en í
apríl fjórfölduðum við netsöluna.
Þar á meðal seldum við mikið
magn af rafhjólum. Aukningin er
að stórum hluta komin til vegna
Covid-faraldursins en einnig vegna
þess að við erum að bjóða upp á
fría heimsendingu hvert á land sem
er. Fólk er enda duglegt að nýta sér
það, en að auki er hægt að sækja til
okkar netpantanir á fjóra staði. Þá
er einnig auðvelt að skila og skipta
vörum hjá okkur, en við endur-
greiðum innan 14 daga.
Þá er skemmtilegt að nefna að
innpökkun hefur tekið kipp hjá
okkur, en í kjölfar Covid er fólk
frekar að kaupa gjafir á netinu,
lætur pakka inn og sendir beint á
viðtakanda. Það er stórsniðugt að
gefa gjafir frá okkur, enda eigum
við vörur sem henta öllum og
bjóðum upp á gjafabréf sem gildir
í öllum 14 verslunum okkar og
þremur netverslunum,“ segir Pétur
og brosir.
Nýtt þjónustuverkstæði
Ellingsen býr einnig að fyrsta
flokks þjónustuverkstæði til að
þjónusta viðskiptavini sína með
rafhjólin, en í kjölfar opnunar raf-
hjólasetursins hefur verkstæðið
verið stækkað og starfsfólki bætt
við. „Þá erum við einnig með
glænýtt bókunarkerfi sem gerir
viðskiptavinum okkar auðvelt að
panta tíma.
Það er gífurlega mikilvægt að
bjóða upp á góða viðgerða- og við-
haldsþjónustu með rafhjólunum,
því þetta er í raun svolítið eins og
bílaumboð. Við erum í góðu sam-
bandi við birgja okkar úti í heimi
sem ráðleggja okkur um ýmislegt.
Með hverri sendingu pöntum við
til dæmis ráðlagt magn af varahlut-
um. Þannig getum við í mörgum
tilfellum komið í veg fyrir margra
vikna biðtíma viðskiptavina eftir
aukahlutum.“
Verslanir Ellingsen eru staðsettar
að Fiskislóð 1, 101 Rvk, og Tryggva-
braut 1-3, 600 Ak. Sími: 580-8500
ellingsen@ellingsen.is
4 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . A P R Í L 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RALLIR ÚT AÐ HJÓLA