Fréttablaðið - 24.04.2020, Blaðsíða 24
Huga þarf vel að
reiðhjólum
barnanna áður en þau
halda út í sumarið og
gæta þess að allt sé í
góðu lagi.
Það þarf að huga að öryggi þegar fyrsta hjólið er keypt handa börnum.
Sumardagurinn fyrsti var í gær og það þýðir að nú fer börnum að fjölga úti við og þá
ekki síst á reiðhjólum. Huga þarf
vel að reiðhjólum barnanna áður
en þau halda út í sumarið og gæta
þess að allt sé í góðu lagi. Bremsur
verða að vera í lagi og sömuleiðis
réttur loftþrýstingur í dekkjum.
Þá er gott ráð að fara með ungu
börnunum út að hjóla fyrst og sýna
þeim örugga staði til að vera á.
Muna þarf að sýna alltaf gangandi
vegfarendum tillitssemi.
Mörg börn eru trúlega að fá hjól
í fyrsta skipti þessa dagana og þá
þarf að gæta þess að þau æfi sig þar
sem engrar umferðar bifreiða er
að vænta. Allir hjólreiðamenn eiga
að bera hjálm á höfði og yngstu
börnin ættu sömuleiðis að vera í
fatnaði sem sést vel.
Ef hjólað er á gangstétt eða hjóla-
stíg skal hjólreiðamaður vera til
hægri. Ef f leiri en einn hjóla saman
þurfa þeir að mynda einfalda röð
eftir stígnum. Þá skal ganga þannig
frá hjóli þegar stöðvað er að ekki
skapist hætta eða truflun fyrir
aðra. Hjólreiðamaður skal alltaf
víkja fyrir gangandi vegfarendum
á gangstéttum, göngustígum og
göngugötum.
Gætið að öryggi
á reiðhjólunum
Hjónin og hjólreiðafólkið Hrönn Ólína Jörundsdóttir og Brynjar Guðmundsson
eiga heildsöluna Dedicated og
halda úti sölusíðu á active.is. Þau
uppgötvuðu og féllu kylliflöt fyrir
vörunum frá TORQ eftir umtals-
verða rannsóknarvinnu en vör-
urnar eru tilvaldar fyrir íþrótta-
fólk og ekki síst hjólreiðafólk.
Hreinar og vandaðar vörur
Óhætt er að fullyrða að þau hjón
séu margfróð um það sem þarf
til að ná árangri í hjólreiðum.
„Frúin er að kenna í Víkingi, hún
er þjálfari í hjólreiðahópnum
þar,“ segir Brynjar um Hrönn en
hún hlaut titilinn Íslandsmeistari
í maraþonhjólreiðum árið 2017
ásamt því að sigra í kvennaflokki
brekkusprettskeppni Reykjavíkur-
leikanna í upphafi árs.
„Úrvalið hefur ekki verið neitt
svakalega mikið hérna heima og
við höfum gjarnan þurft að panta
vörur að utan þannig að okkur
hefur lengi langað að bjóða upp á
breiðara úrval fyrir íþróttamark-
aðinn hérna heima. Við fórum því
að skoða þetta og rákumst á þessar
vörur og líkaði svona svaka vel,“
skýrir Hrönn frá.
Vörurnar frá TORQ henta
breiðum hópi fólks. „Þróunin
hefur verið þannig að þau reyna
eftir fremsta megni að hafa sem
flest vegan, umhverfisvænt og
án tilbúinna litarefna. Þau eru
því með voðalega góða vöru sem
hentar hverjum sem er og eru að
vinna út frá bæði heildstæðu og
vandlega útfærðu kerfi.“
Heildstætt og einfalt kerfi
Hjá TORQ er lögð mikil áhersla á
að bjóða viðskiptavinum upp á
aðgengilega og alhliða þjónustu.
„Þau eru búin að byggja upp ein-
falt kerfi sem aðrir geta fylgt. Það
eru þarna heil prógrömm fyrir
íþróttafólk þar sem er skipulagt
hvernig taka eigi þetta og hvað
þarf að taka mikið af hverju, eftir
því hversu mikil áreynslan er,“
útskýrir Hrönn.
Brynjar tekur undir. „Já, þau
skipuleggja þetta eftir einingum
og segja þér nákvæmlega hvað þú
þarft að taka margar einingar á
klukkutíma miðað við hvað þú ert
að fara að gera.“
Þá eru gelin frá TORQ sérstak-
lega virk og hafa notið mikilla
vinsælda. „Allt hjólreiðafólk og
hlauparar nota gel og gelin frá
TORQ innihalda til dæmis meiri
orku en er í öðrum gelum. Það er
að segja að þú færð meiri orku úr
minni skömmtum,“ segir Brynjar.
Vinsælt og þekkt merki
Það er fagfólk í hverju horni hjá
TORQ. „Þau eru með aðstöðu þar
sem þau ráðleggja fólki varðandi
heildstæða næringu. Þau eru með
nokkur pro-lið á sínum vegum,
bæði úr hjólreiða- og hlaupaheim-
inum,“ segir Hrönn.
Hjónin bíða því spennt eftir
að geta boðið landsfólki upp á
meira úrval vara frá TORQ. „Þetta
er merki sem hefur í raun aldrei
komið hingað en hefur verið vin-
sælt í Bretlandi og er vel þekkt. Það
er því ótrúlega spennandi að fá
tækifæri til að kynna þessar vörur
fyrir íslensku íþróttafólki,“ segir
Hrönn full eftirvæntingar. „Við
erum búin að vera að prófa þetta
og annað hjólreiðafólk og það eru
allir rosalega ánægðir með þetta.“
Vörurnar frá TORQ hafa þá
margs konar sérstöðu. „Þau hafa
líka verið að bjóða upp á, nokkuð
sem ég held að hafi ekki verið í
boði hérlendis, svona orkuein-
ingar fyrir sykursjúka. Þau hafa
líka verið að prófa sig áfram í að
vera með morgunmat og pasta og
alls konar.“
Brynjar segir að hægt sé að
kynna sér eitthvað af vörunum
nú þegar en að vænta megi aukins
úrvals á næstunni. „Við erum með
eitthvað af vörunum á active.is en
eigum von á stórri sendingu núna
í kringum mánaðamótin. Svo
stefnum við á opna sölusíðu undir
Torq.is þegar fram líða stundir.“
Hægt er að kynna sér nánar vörur,
starfsemi og þjónustu TORQ á:
torqfitness.co.uk
Vandaðar vörur fyrir hjólreiðafólk
Mikil eftirvænting ríkir eftir væntanlegri sendingu af fæðubótarvörunum frá TORQ en þær
hafa notið mikilla vinsælda í Bretlandi. Vörurnar hafa verið og verða fáanlegar á active.is.
Brynjar Guð-
mundsson segir
að þau hjónin
hafi boðið öðru
hjólreiðafólki að
prófa vörurnar
við frábærar
undirtektir.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
8 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . A P R Í L 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RALLIR ÚT AÐ HJÓLA