Fréttablaðið - 24.04.2020, Page 30
ÉG TRÚI ÞVÍ AÐ RÉTTA
BÓKIN SÉ TIL FYRIR
HVERT EINASTA BARN, ÞAÐ
ÞARF BARA AÐ LEIÐA ÞAU
SAMAN, BARNIÐ OG BÓKINA.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Föstudagur
hvar@frettabladid.is
24. APRÍL 2020
Hvað? Kúltúr klukkan 13
Hvenær? 13:00
Hvar? Vefútsending frá Salnum
á stundin.is og facebooksíðum
Stundarinnar og Menningarhúsanna
í Kópavogi
Myndlistarmennirnir Bergur Tho-
mas Anderson, Logi Leó Gunn-
arsson og Una Margrét Árnadóttir
leiða skapandi fjölskyldusmiðju í
Stúdíói Gerðar. Áhorfendum verð-
ur kennt að búa til mósaíkverk úr
ýmsum matvælum og litrík hljóð-
færi úr ýmsum ílátum, blöðrum og
teygjum.
Lestrarverkefnið Tími til að lesa er í fullum gangi, en þar skrá börn og full-orðnir lestur sinn í mín-útum á vefsíðunni timiti-ladlesa.is. Verkefnið mun
standa til 30. apríl og freistað verður
að fá afraksturinn skráðan í Heims-
metabók Guinness. Verkefnið er
ekki síst ætlað til að auka áhuga
barna á bókum. Dröfn Vilhjálms-
dóttir hefur brennandi áhuga á því
að ef la lestraráhuga barna. Hún
hefur umsjón með skólabókasafni
Seljaskóla þar sem hún hefur starfað
í rúm sjö ár.
„Ég hef haft það að markmiði
frá upphafi að gera skólasafnið að
hjarta skólans og ég held að það hafi
tekist. Safnið er alltaf fullt af börn-
um og þar er vinsælt að vera,“ segir
hún. „Ég er sannfærð um að skóla-
söfn séu forsenda þess að börn hafi
óhindrað aðgengi að bókum. Skóla-
safnið sér börnunum ekki aðeins
fyrir bókum heldur fer þar jafnframt
fram afar fjölbreytt starf með það að
markmiði að börn kynnist bókum,
auki færni sína í lestri en ekki síst að
þau finni lestraránægju sem endist
þeim út lífið.“
Ilmandi bækur
Spurð hvernig best sé að koma
bókum að börnum og fá þau til að
lesa segir Dröfn: „Með því að hafa
skólasöfnin full af ilmandi bókum!
Því hvernig fáum við börn til að
lesa? Með barnabókum! Ég trúi því
að rétta bókin sé til fyrir hvert ein-
asta barn, það þarf bara að leiða þau
saman, barnið og bókina. Og með
réttu bókinni þá á ég við Bókina
með stóru B – bókina sem barnið les
og fellur fyrir og gerir það að verkum
að barnið hoppar um borð í lestrar-
lestina.
Þessi undur, þegar barnið finnur
bókina sem gerir það spennt fyrir
lestri, sé ég reglulega gerast á skóla-
safninu mínu. En þetta gerist ekki
fyrirhafnarlaust. Við fullorðna fólk-
ið berum ábyrgð á því að börnin hafi
aðgang að bókunum og ekki síst á að
miðla þeim til barnanna með fjöl-
breyttum hætti. En fyrst og fremst
þurfum við að sjá til þess að það sé
nægilegt úrval barna- og unglinga-
bóka á íslensku. Það gerist alltof oft
að ég næ ekki að viðhalda lestrar-
áhuga barnanna því þau vantar
f leiri bækur í þeim bókaflokkum
sem þeim líkar.“
Skortur á bókum á íslensku
Dröfn segir að þörf sé á fleiri barna-
og unglingabókum á íslensku. „Það
sem stendur mér verulega fyrir þrif-
um í starfi mínu er skortur á barna-
og unglingabókum á íslensku. Oft
skynja ég að fólk skilur ekki alveg
alvarleika málsins, því finnst bóka-
söfnin og bókabúðirnar sneisafullar
af bókum. En ég met það svo að við
séum að metta bókaþörf íslenskra
barna um kannski 15 prósent. Sem
dæmi um það þá voru gefnar út á
síðasta ári 12 nýjar skáldsögur fyrir
unglinga. Það gefur augaleið að það
úrval uppfyllir ekki lestrarþörf
unglinga sem eru með mismunandi
áhugasvið, lestraráhuga og lestrar-
getu.
Bækur eru verkfærin til lesturs og
örþjóð með eigið tungumál getur
því ekki látið markaðsöf l ráða
útgáfu. Við sem þjóð þurfum að
styðja barnabókaútgáfu á duglegan
og öf lugan hátt. Eins þurfum við
að styðja frábæru barnabókahöf-
undana okkar miklu betur og jafn-
framt þýða fleiri barna- og unglinga-
bækur.“
Mikilvæg hvatning
Nú stendur yfir átakið Tími til að
lesa. Dröfn er spurð hversu miklu
máli átak eins og það skipti. „Fyrir
sum börn er lestrarátak ákaf lega
hvetjandi, keppnisskapið fer í gang
og þau fara að lesa af kappi,“ segir
hún. „Uppspretta innri hvatningar
til lesturs kemur frá því að lesa
áhugaverða bók, bók sem þú getur
ekki lagt frá þér. Þess vegna er lestr-
arátak svo mikilvæg ytri hvatning
því með hverri einustu lesinni bók
aukast líkurnar á því að það kveikni
innri hvatning til lesturs og að bókin
með stóru B rati í hendur leitandi
barns.
Það hefur líka verið bent á að
foreldrar eigi að vera lestrarfyrir-
myndir barna. Lestrarátak eins og
Tími til að lesa er lestrarhvatning og
lestraráminning fyrir foreldra. En
ég hvet foreldra til að ganga lengra
en að vera bara lestrarfyrirmynd.
Því barn eða unglingur sem finnur
enga hvöt hjá sér til að lesa þarf
hagnýta og virka lestraraðstoð og
hvatningu.“
Lesið með börnunum
Dröfn kemur með dæmi úr eigin
fjölskyldu. „Í minni f jölskyldu
hefur gefist ákaflega vel að lesa með
börnunum á öllum aldri. Þegar
sonur minn var á táningsaldri lásu
hann og faðir hans saman upp-
hátt til skiptis heilu bókaflokkana.
Þetta voru doðrantar sem sonur
minn hefði aldrei ráðist í einn og án
hvatningar. Þarna áttu þeir feðgar
sameiginlega lestrarupplifun og
skemmtilega samveru sem var
ómetanleg.
Þegar sonurinn fór í menntaskóla
hvatti ég hann til þess að taka yndis-
lestraráfanga í vali. Honum fannst
dálítið yfirþyrmandi að þurfa að
lesa fimm langar skáldsögur yfir
önnina. Við mæðgin ákváðum að
gera þetta saman og vorum með sitt
eintakið hvort af bókinni sem við
lásum samtímis eftir tímaáætlun
sem við settum okkur. Við spjölluð-
um reglulega um innihald bókanna
og áttum þarna sameiginlega upp-
lifun sem var svo eftirminnileg og
ánægjuleg að við erum enn að vitna
í hana nokkrum árum seinna.“
Dröfn hvetur síðan alla foreldra
til að nýta þetta átak til þess að lesa
með börnunum sínum og skapa
þannig innihaldsríka samveru og
mikilvæga sameiginlega lestrar-
upplifun.
Afar mikilvæg
ytri hvatning
Dröfn Vilhjálmsdóttir hefur ástríðufull-
an áhuga á að auka lestraráhuga barna.
Hún segir skort á barna- og unglinga-
bókum á íslensku og hvetur foreldra til
að lesa sem mest með börnum sínum.
Þessi undur, þegar barnið finnur bókina sem gerir það spennt fyrir lestri, segir Dröfn Vilhjálmsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Berglind Svavarsdóttir opnar einkasýningu sína Mimesis í Galleríi Fold á Rauðarár-
stíg klukkan 14 á morgun, laugar-
dag. Engin eiginleg opnun verður
heldur verður opnun í gegnum
beint streymi á Facebook-síðu Gall-
erís Foldar. Listamaðurinn mun
svo svara fyrirsprunum sem koma
í gegnum beina streymið á meðan
opnun stendur yfir.
Sý ning u na k a llar Berg lind
Mimesis, sem þýða mætti sem eftir-
líkingu eða eftirhermu. Hún notar
plöntur og skordýr sem viðfangs-
efni í verkum sínum.
Berglind er fædd í Reykjavík
en hefur verið búsett á Ítalíu frá
árinu 1996. Hún útskrifaðist frá
málaradeild Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands árið 1996 og hafði
þá stundað skiptinám í málun við
Accademia di Belle Arti í Bologna
á Ítalíu frá 1994–1995. Eftir það lá
leiðin til Mílanó þar sem hún lauk
BA-gráðu í málun frá Accademia
di Belle Arti di Brera árið 2004 og
MA-gráðu frá sama skóla árið 2009.
Berglind hefur haldið einkasýn-
ingar og tekið þátt í samsýningum
bæði á Íslandi og erlendis. Þetta er
fyrsta einkasýning hennar í Galleríi
Fold.
Sýningin stendur frá 25. apríl til
9. apríl og er allan sólarhringinn
aðgengileg á vefsíðu Gallerís Foldar,
myndlist.is, en einnig er hægt að
skoða sýninguna í Galleríi Fold alla
virka daga milli klukkan 10-18.
Mimesis í Gallerí Fold
Verk á sýningunni.
Una Margrét, Bergur og Logi.
2 4 . A P R Í L 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R18 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING