Fréttablaðið - 24.04.2020, Side 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÉG TALA VIÐ ÞAU Á
HVERJUM DEGI Á
FACETIME OG SÉ HVERNIG ÞAÐ
DREGUR AF ÞEIM ANDLEGA MEÐ
HVERJUM DEGI SEM LÍÐUR.
12%
LUMAR ÞÚ Á
STÓRFRÉTT?
Sendu okkur þá fréttaskot í
gegnum frettabladid.is.
Þú nnur hlekkinn undir
blaði dagsins og á slóðinni
www.frettabladid.is/frettaskot.
Greiðum 5.000 kr. fyrir fréttina
ef hún birtist í Fréttablaðinu
og 10.000 kr. ef hún birtist
á forsíðu blaðsins!
MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS
Aurora Di Rienzo er fædd og uppalin á Ítalíu en elti í sumar í s l e n s k a r r æ t u r sína r h i ng að t i l móðurlandsins og
umhverfis sem virkjaði sköpunar-
þrána þannig að hún er hér enn og
semur og gefur út tónlist sem annar
helmingur dúettsins Aramot.
„Ég ákvað að taka mér árs hlé frá
námi til þess að sinna tónlistinni
og það er nú þess vegna sem ég bý á
Íslandi í augnablikinu,“ segir Aurora
sem var búin að koma sér fyrir í
London til þess að stunda nám í
University College.
„En öll fjölskyldan mín er í Róm
og aðskilnaðurinn veitti mér og
Teiti, félaga mínum, innblásturinn
fyrir She Called Me Again Last
Night sem er um ástandið og þessa
mjög svo undarlegu tilfinningu sem
ég er að upplifa og lagið fjallar í raun
og veru um,“ segir hún um lagið sem
þau Teitur Helgi Skúlason í Aramot
senda frá sér í dag.
Óttablandin óvissa
„Ég tala við þau á hverjum degi á
Facetime og fylgist með hvernig
þeim gengur og sé hvernig það
dregur af þeim andlega með hverj-
um degi sem líður. Þau verða bara
niðurdregnari,“ segir Aurora um
áhrif þjakandi óvissunnar á Ítalíu.
„Á Ítalíu veit enginn neitt og fólk
fær engar upplýsingar eins og hérna
á Íslandi þar sem það er til dæmis
þegar farið að ræða um og reyna
að ákveða hvernig sumarið verður,
hvort samkomum verði frestað eða
hvernig verði staðið að þeim alveg
fram í ágúst. Á Ítalíu er ekkert að
gerast.“
Aurora bætir við að áður en
Covid-fárið skall á heimsbyggðinni
hafi staðið til að hún myndi fara til
Ítalíu og einnig að fjölskyldan kæmi
til Íslands. Nú sé staðan þannig að
þau viti ekkert um hvenær þau hitt-
ast á ný.
Símtal frá mömmu
„Ég syng um þessa tilfinningu í
laginu,“ segir söngkonan um lagið
She Called Me Again Last Night sem
í raun er sprottið upp úr símtali frá
móður hennar í Róm. „Mamma
hringdi í mig í miklu uppnámi
vegna þess að hún upplifir sig hálf-
partinn innilokaða á heimilinu
þar sem hún getur ekkert farið út á
meðan ég get hins vegar farið út að
ganga og hugleiða þegar mér sýnist
þótt ég voni auðvitað alltaf að ég
muni ekki rekast utan í neinn.“
Aurora fer því gætilega með það
ferðafrelsi sem hún hefur umfram
hennar nánustu á Ítalíu en missir
heldur aldrei vonina. „Lagið er líka
um að þetta mun ganga yfir og
verða betra. Það kemur að því að
þessi vírus hverfi á braut þannig að
þetta er ekki bara sorgarsöngur þar
sem lagið felur líka í sér von.“
Tími til að hugsa
Aurora fann strax sterka tengingu
við land og þjóð og hefur því staldr-
að mun lengur við en upphaf lega
stóð til. „Ísland er mjög ólíkt öllu
sem ég á að venjast. Ég vildi bara
sleppa burt frá London, öllum erl-
inum og stressinu þar en ætlaði bara
að vera hérna í sumar en hitti síðan
svo margt frábært fólk,“ segir hún
um íslenska fjölskyldu sína og fjöl-
marga nýja, íslenska vini.
„Þannig að mér fannst ég finna
mikla jarðtengingu hérna og varð
einhvern veginn sjálfri mér líkari og
jafnvel þótt Reykjavík sé borg og allt
það þá er samt hægt að finna staði
og tíma til þess að vera einn með
sjálfum sér og hugsunum sínum.
Þess vegna elska ég að vera hérna.“
Horft fram á veg
Teitur Helgi, hinn helmingur
dúettsins, hefur komið víða við í
tónlistinni og unnið með til dæmis
GDRN, ClubDub, Aroni Can og Unu
Schram og þau ná vel saman. „Við
kynntumst bara í sumar en það er
eins og við höfum þekkst í mörg ár.
Við erum að vinna að plötu akkúrat
núna. Hún er næstum því tilbúin og
við erum mjög spennt en hún ætti
að koma út í júní.“
Aurora gerir sér vonir um að þau
geti fylgt plötunni úr hlaði með tón-
leikum en það muni vitaskuld ráð-
ast af ástandinu í sumar. „Við erum
líka með plön um að halda áfram að
gera tónlist saman eftir þessa plötu
og sjá bara til hvaða stefnu hlutirnir
taka. Maður veit aldrei og þetta eru
miklir óvissutímar.“
toti@frettabladid.is
Vonarneisti í lagi um
söknuð á óvissutímum
Aurora Di Rienzo fann íslenskum rótum sínum frjóan jarðveg í
sumar og syngur í nýju lagi um óttablandinn söknuð á óvissutím-
um en fjölskylda hennar er öll innlyksa í veirufárinu í Rómarborg.
„Ef ég hefði alist upp hérna myndi mig kannski langa að komast til stærri borgar en akkúrat núna finnst mér ég vera
rétt manneskja á réttum stað,“ segir Aurora Di Rienzo sem hefur heldur betur fundið íslenskar rætur sínar.
2 4 . A P R Í L 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð