Bæjarbót - 01.02.1987, Síða 1
Öháð flokkadrætti
6. árgangur — Febrúar 1987 — 2. tölublað
Eftir að Ríkismatið var lagt niður:
Hvernig á að verðleggja fiskinn?
— mörg dæmi um að fiskur sem ekki
er metinn sé allur keyptur sem 1.
flokks vara. Skiptar skoðanir meðal
sjómanna.
FISKMAT GRINDAVÍKUR SF
Fiskmat Grindavíkur er í eigu útgerðarmanna og matið framkvæmt
af þeirra starfsmanni. Þegar hafa verið ákveðnar verðbætur ofan á
Landssambandsverðið.
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum að búið er að leggja
ferskfiskmat á vegum ríkisins
niður. Mat er þó víðast hvar
framkvæmt áfram en að því
standa nýir aðilar.
Hér í Grindavík hafa sjómenn
og fiskverkendur samið um að
ferskfiskmatið haldi áfram
óbreytt eins og verið hefur og
hafa ráðið matsmanninn. Her-
mann Ólafsson, sem áður var
starfsmaður Ríkismatsins, í sína
þjónustu. Síðan hefur verið sett
upp nefnd tveggja fulltrúa sjó-
manna og tveggja frá fiskvinnsl-
unni til þess að skera úr um
ágreiningsatriði. Náist ekki sam-
komulag má vísa deilunni til
yfirmatsmanns Ríkismatsins á
Suðurnesjum, sem er Gunnlaug-
ur Guðmundsson. Þetta er það
fyrirkomulag sem aðalfundur
LÍÚ í Vestmannaeyjum lagði til
í haust og líklega verður það
víða tekið upp.
■Ml
Jóhann Guðfinnsson formaður
á Hrappnum.
í kjölfar ýmissa mótsagna-
kenndra frásagna af mati,
samningum um föst verð t.d.
80% í 1. flokk og 20% í 2. flokk
og fleira í þeim dúr, jafnvel allt í
1. flokk, hafði blaðið samband
við nokkra aðila.
Niður við höfn var Hrappur
GK að landa og Jóhann Guð-
finnsson formaður á bátnum var
spurður um álit. ,,Það verður að
hafa matið á fiskinum. Hvernig
borgað er eftir því er annað mál.
Menn geta borgað meira fyrir 1.
flokkinn og minna fyrir 2.
flokk. Landssambandsverðið er
allt of lágt og staðreynd er að
hér er ekkert borgað eftir því, ég
held bara hvergi á svæðinu frá
Akranesi til Þorlákshafnar. Fast
verð býður upp á minni gæði því
þá hafa sumir tekið á það ráð að
fjölga trossum.“
Bragi Guðmundsson matsveinn
Hraunsvíkin GK 68 selur afla
sinn til Brynjólfs í Njarðvíkum,
en landar alltaf hér í Grindavík
og fiskurinn fer ekki í matið.
Hvað segir Bragi Guðmundsson
matsveinn um málið: „Ailur
okkar afli er borgaður sem 1.
flokkur og auk þess eru veiðar-
færafríðindi boðin, t.d. á humr-
inum á sumrin. Ég held að
algengt sé að 75-80% aflans
fari 1. flokk þegar metið er.
Mismunurinn er þá yfirborgun
til okkar.“
Hermann Ólafsson, mats-
maður hjá Fiskmati Grinda-
víkur, vildi lítið tjá sig um þetta
mál, enda hann nú í vinnu hjá
útgerðarmönnum. Hann gat
þess þó að sér þætti nauðsynlegt
að fiskur væri metinn og kapp
lagt á gæðin og sér þætti ekki úr
vegi að borga ,,bónus“ fyrir 1.
flokks fiskinn.
Á fundi sem útgerðarmenn
héldu um breytt viðhorf, eftir að
ríkismatið var lagt niður, voru
skiptar skoðanir um hvernig
greiða ætti fyrir fiskinn. í fund-
arlok var þó samþykkt að greiða
10% ofan á Landssambands-
verð á ufsa, 5% á 1. flokks
þorsk og einnig aukabónus fyrir
fisk í körum, en þannig fæst
verðmeiri afli að landi sem jafn-
framt skapar sjómönnum aukna
vinnu. „Þetta er bara byrjunin“
sagði einn viðmælenda blaðsins
„togstreitan um verðið á eftir að
harðna.“
Hvers virði er aflinn? Hvernig á að ákvarða laun sjómanna? Á
samræmingin að gilda, eða eiga markaðsaðstæður og geta einstakra
fiskkaupenda að ráða verði?
—Menn fara ekki langt á
bæklingunum einum sér!
—En má ekki bjóða þér að kíkja
í þá samt!
Heitt á könnunni!
Flugleiðir
Urval
Pólaris
Saga
FRÍ
Trygginga-
miðstöðin
FLAKKARINN
Síminn er 8060
Bæjarbót
spyr:
Áttu von á óvæntum úr-
slitum í kosningunum
hér í vor?
Vilborg Guðjónsdóttir:
, ,Ég er varla farin að hugsa
um kosningar, en hef mjög
litla trú á miklum breyt-
ingum.“
Guðrún Einarsdóttir:
„Ég er mjög ópólitísk, kýs
alls ekki alltaf og get því illa
svarað þessu.“
Gunnar Sigurgeirsson:
„Já, það verður algjör
krata sprenging hér í kjör-
dæminu.“
Bjarni Ólason:
„Já, framsókn fær 2
menn. Ætli flestum þyki það
ekki óvænt.“
Kristinn Benediktsson:
„Já og ég hef þegar varað
mína flokksbræður við of
mikilli bjartsýni.“
L