Bæjarbót - 01.04.1987, Blaðsíða 7
Óháð flokkadrætti
7
Fiskeldisbraut- erfið fœðing?
„Kerfið óskaplega þungt“
—segir Hjálmar Árnason skólameistari FS
Þar sem Grindavík er einn
mesti fiskeldisbær íslands, fer
ekki hjá því að menntunar-
möguleikar í fiskeldisfræðum
eru mikið hagsmunamál fyrir
bæjarbúa. All lengi hefur verið
unnið að stofnun sérstakrar
fiskeldisbrautar við Fjölbrauta-
skóia Suðurnesja og hafa þeir
Hjálmar Arnason skólameistari
og Jón Þórðarson hjá íslands-
laxi hf, borið þungann af þeim
undirbúningi. Bæjarbót spurði
Hjálmar um framgang málsins.
„Hugmyndin er að allt bók-
legt nám verði hjá okkur, en
verklega þjálfunin og námið
farið fram í stöðvunum hér á
Hjálmar Árnason
nesinu. Nú liggur beiðni frá
okkur hjá menntamálaráðu-
neytinu. Undirtektir þar hafa
verið mjög góðar, en kerfið er
óskaplega þungt í þessu máli.
Þetta tengist bæði menntamála-
ráðuneytinu og landbúnaðar-
ráðuneytinu. Við trúum því að
þetta náist í gegn, en á meðan
svo er ekki orðið, bendum við
þeim sem hafa áhuga á þessu
námi að taka almennar greinar
hér í skólanum. Þær nýtast
flestum brautum vel og þegar
fiskeldisbrautin tekur til starfa,
verður það nám að sjálfsögðu
metið að fullu.“
Tímaritið Þroskahjálp:
Málefni einhverfra og
Tölvumiðstöð fatlaðra
—meðal efnis að þess sinni
LANDSBANKIISLANDS
... i n..r. .. r iffhitui
Saiional Bank of lcetand
-iARCLAYSBAN*
iTERNAT’-
iTSC«^
Þú færð líka
gjaldeyrinn í
Sparísjóðnum
Sparisjóðurinn
er sjóöur
Suðumesj amanna
Islandslaxstöðin í byggingu. Á innfelldu myndinni er Jón Þórðarson stöðvarstjóri.
Tímaritið Þroskahjálp 1.
tölublað 1987 er komið út.
Útgefandi er Landssamtökin
Þroskahjálp.
Að venju eru í ritinu ýmsar
greinar, viðtöl, upplýsingar og
fróðleikur um málefni fatlaðra.
Sem dæmi um efni má nefna
leiðara sem að þessu sinni er um
málefni einhverfra. Sagt er frá
sumarstarfi barna og í því sam-
bandi birtist viðtal við tvær
fóstrur sém störfuðu á Úlfljóts-
vanti, síðast liðið sumar.
í framhaldi af grein um tölvu-
tækni í kennslu fatlaðra er ljósi
varpað á aðstöðu nemenda í
deild hreyfihamlaðra í Hlíða-
skóla í Reykjavík. Þá er sagt frá
Tölvumiðstöð fatlaðra sem ný-
lega var sett á laggirnar.
Fjallað er um störf Svæðis-
stjórnar Reykjavíkur þar sem
sitt af hverju kemur fram í við-
tali við framkvæmdastjóra
stjórnarinnar.
Þá er að finna í þessu hefti
sögu eftir unga stúlku sem bæði
er blind og heyrnarlaus. Sög-
una, sem hún tileinkar for-
eldrum sínum og systkinum,
nefnir höfundur TÖFRADÍS-
INA. Þá má nefna ljóðið
ELSKA sem er eftir unga
stúlku, alvarlega spastíska.
Ritað er um bækur fyrir þroska-
hefta og rætt við nokkra úr
þeirra hópi um lestur bóka.
Fastir pistlar eru á sínum stað
s.s. Bókakynning og Af starfi
samtakanna. í þeim síðarnefnda
er tæpt á því helsta sem Þroska-
hjálp vinnur að hverju sinni.
Áskriftarsími er 91-29901.
(Fréttatilkynning)
Munið!
VISA-kortið
er ómissandi
° * félagi!