Bændablaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 57

Bændablaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016 til 120 sentímetrar. Í íslenska stofn- inum er þungi tarfa 80 til 100 kíló og kúa 60 til 80 kíló. Feldur hreindýra er í tveimur lögum með slétt stutt undirhár og löng yfirhár. Hárin eru hol að innan, þétt og einangrandi. Hreindýr geta haldið jöfnum líkamshita niður í -40° á Celsíus. Litur feldarins er breyti- legur milli stofna en oftast dökkleitur á sumrin en ljósari á veturna. Báðum kynjum hreindýra vaxa horn sem dýrin fella árlega. Í vexti eru hornin mjúk og klædd mjúkri og æðaríkri húð. Fullvaxin harðna hornin og falla af dýrunum. Stærð horna er mismunandi milli undir- tegunda en geta orðið um metri að lengd og með 130 sentímetra hafi hjá stórum törfum. Hornin eru stöðutákn hjá báðum kynjum. Tarfarnir nota hornin til að sýna mátt sinn og megin um fengitím ann og á veturna nota kýrn- ar þau til að hrekja keppinauta frá fæðu. Kýrnar fella hornin eftir burð. Eftir missinn sleikja kýrnar og naga hornin og fá úr þeim kalk sem fer til mjólkurmyndunar handa kálfunum. Sum hreindýr fá aldrei horn og eru um 4% hreinkúa á Íslandi kollóttar. Fengitími hreindýra er í sept- ember og nóvember og eru 15 til 20 kýr í hjörð ríkjandi karldýra. Meðgöngutími hreinkúa er um sjö og hálfur mánuður og fjöldi kálfa einn eða tveir. Kálfarnir verða að mestu sjálfbjarga 45 dögum eftir burð en fylgja móður sinni og eru á spena fram á haust eða þar til kýrnar kelfast á ný. Hreindýr verða kynþroska á öðrum til þriðja vetri. Hreindýr eru frá á fæti og geta hlaupið á allt að 80 kílómetra hraða á klukkustund og ferðast fótgang- andi yfir 50 kílómetra á sólarhring. Hreindýr fljóta vel í vatni og taka oft langa sundspretti yfir ár og vötn. Minjar og nafnafræði Lítið er til af beinum eða öðrum minjum hreindýra og elsta hrein- dýrabein sem fundist hefur er frá því fyrir um 4.400 árum. Þrátt fyrir það er vitað að hreindýr voru útbreidd um alla Evrópu á ísöld en hörfuðu norðar eftir því sem hlýnaði og ísaldarjökullinn hopaði. Hreinkýr kallast simla en karldýr- in hreinn en oftast er notast við heitin tarfur og kýr. Simla kemur úr norsku og mun orðið hafa borist hingað sem heiti á fyrstu hreindýrskúnum sem fluttar voru til landsins. Heitið hreinn er komið úr frumgermönsku, hrainaz, og það orð úr indóevrópsku, kroinos, sem þýðir dýr með horn. Á samísku eru yfir 400 heiti á hrein- dýrum og þau meðal annars kölluð poatsoj, boazu, boatsoj og puásui og eitt af heitum Ínúítar í Norður- Ameríku á hreindýrum er tuktu. Svíinn Carl Linnaeus, upp-hafs- maður latneska tvínafnakerfisins, gaf hreindýrum heitið Rangifer tarandur upp á latínu. Tarandus merkir sá sem ber horn eða hornberi. Nytjar á hreindýrum Hellamyndir í Frakklandi sem taldar eru vera um 45 þúsund ára gaml- ar sýna menn á hreindýraveiðum. Erfitt hefur reynst að ákvarða hvenær menn tóku hreindýr fyrst í sína þjón- ustu. Þeir sem láta sig slíkt varða telja það hafa verið Evrasíu fyrir þrjú til sjö þúsund árum. Elstu rituðu heimildir um hrein- dýr eru kínverskar ræktunarleið- beiningar frá því um 450 fyrir Krist. Í öðru kínversku riti frá því um 630 eftir Krist er sagt frá tömdum hrein- dýrum sem fólk hélt í skóglendi í norðurhéruðum Kína. Þar segir að kýrnar séu mjólkaðar, dýrunum beitt fyrir vagna og kjötið af þeim borðað. Rómverski sagnaritarinn Tacitus segir frá því í sagnfræðiriti frá því um 100 eftir Krist að fólk í norðan- verðri Evrópu veiði hreindýr og klæðist hreindýraskinnum. Sovéski herinn notaði hreindýr sem burðar- og dráttardýr til að flytja vistir til Múrmansk og bera særða hermenn af snævi þöktum vígvöll- um vetrarstríðsins við Finna í seinni heimsstyrjöldinni. Í dag gegna hreindýr veiga- miklu hlutverki í lífi frumbyggja á Norðurhveli sem fæða, klæði og burðardýr. Skinnin eru dýrmæt verslunarvara og úr hornum og beinum eru smíðaðir nytjahlutir og skrautmunir. Hornin eru möluð í duft og duftið selt sem ástarörvi í Asíu. Hreindýrakjöt er þurrkað, reykt og saltað til geymslu. Hreindýrabollur og hamborgarar eru vinsæll matur í Skandinavíu og í Alaska þykir hrein- dýrabjúga hátíðarmatur. Jólasveinninn og hreindýrin Hugmyndin um að jólasveinninn ferðist um á sleða sem dreginn er af hreindýrum yfir himininn kom fyrst fram á prenti í kvæði sem birt- ist í bandarísku tímariti árið 1823. Kvæðið, sem nefnist Account of a Visit from St. Nicholas, hefur haft mikil áhrif á hugmyndir manna um jólasveininn, útlit hans, hegðun og ferðamáta. Í kvæðinu eru hreindýr- in níu og kallast Dasher, Dancer, Prancer, Vixen, Comet, Cupid, Dunder, Blixem, Dunder og Donder. Í kvæðinu er hvergi getið um hreindýr jólasveinsins sem þekkt- ast er í dag og kallast Rúdolf með rauða nefið. Rúdolf kom fyrst fram á sjónarsviðið í jólasögu rúmri öld síðar. Sennilega á Rúdolf vinsæld- um sínum að þakka laginu Rudolph the Red Nosed Reindeer sem er eitt vinsælasta jólalag í heimi. Hreindýr á Íslandi Hugmynd um að flytja hreindýr til Íslands var líklega fyrst sett fram af Páli Vídalín í lok 17. aldar. Þrátt fyrir að ekkert yrði af innflutningi dýranna á þeim tíma lifði hug- myndin. Tæpri öld síðar, eða fyrir tæpum 250 árum, voru fyrstu hrein- dýrin flutt til landsins samkvæmt konunglegri tilskipun og áttu dýrin að efla íslenskan landbúnað. Hreindýrin komu frá Finnmörku í Noregi í fjórum hópum frá 1771 til 1787. Samhliða innflutningi hrein- dýranna kom upp sú hugmynd að flytja hingað samíska fjölskyldu til að sinna dýrunum og kenna Íslendingum hjarðbúskap. Í fyrsta hópnum voru 13 eða 14 dýr sem komið var fyrir í Vestmannaeyjum árið 1771 þar sem helmingur þeirra drapst á fyrsta ári. Dýrin sem lifðu voru flutt og komið fyrir á Landeyjasandi. Þrjú dýr, tvær kýr og tarfur, lifðu og voru flutt að Hlíðarenda í Fljótshlíð. Mest náðist af fjölga þeim í sextán dýr sem að lokum drápust í móðuharðindunum 1783. Árið 1777 voru sex tarfar og 24 kýr sendar til landsins en eitt dýranna drapst á leiðinni. Þessum dýrum var sleppt í landi Hvaleyrar við Hafnarfjörð. Dýrin héldu til í fjallendi á Reykjanesskaga og náði stærð hjarðarinnar nokkur hundruð dýrum. Sú hjörð sást þar allt til alda- mótanna 1900 en síðasta dýrið úr henni sást við Kolviðarhól um 1930. Þriðja sending hreindýra barst til landsins ári 1784. Í þeirri sendingu voru 35 dýr sem var sleppt á Vaðlaheiði við Eyjafjörð. Þessum dýrum vegnaði vel fyrstu árin og dreifðu sér inn á hálendið og fjölg- aði hratt og var hjörðin komin í um 400 dýr við lok átjándu aldar. Mörg þeirra féllu í harðindavetri árið 1822. Það sem eftir var hjarðarinn- ar hélt sig norðan og norðaustan við Mývatn næstu áratugina og náði hjörðin 2000 dýrum. Þaðan dreifðust hreindýrin til austurs inn á Melrakkasléttu, í Þistilfjörð og Langanesheiði allt til ársins 1860. Eftir það tók dýrunum að fækka og voru aðeins nokkrir tugir þeirra eftir um aldamótin 1900. Í fjórðu og síðustu sendingu hreindýra til landsins, árið 1787, voru 30 kýr og fimm tarfar og þau dýr voru sett í land við Vopnafjörð. Sá hópur hefur dreift sér um hálendið á Austurlandi og allt að Jökulsá í Lóni. Talið er að dýrin úr þriðju sendingunni hafi sameinast þessum hópi og eru þeir sameigin- lega forverar hreindýra á landinu í dag. Ekki mælt með hreindýraeldi Hér á landi hafa hreindýr nán- ast eingöngu verið nýtt sem villt. Fyrir nokkrum árum var skipaður starfshópur til að kanna möguleika á stórfelldum hreindýrabúskap á Íslandi. Niðurstaða hópsins var að mæla ekki með því að tekið verði upp hreindýraeldi eða stórfelldur hreindýrabúskapur ef á sama tíma eigi að standa vörð um villtan stofn hreindýra í landinu. Sumarstofn hreindýra á Íslandi er milli 6.000 og 7.000 dýr en árlega eru felld 1.200 til 1.300 dýr samkvæmt kvótakerfi og með sölu veiðileyfa. Hreindýrakjöt er eftir- sótt enda bragðgott og sannkallaður hátíðarmatur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.