Bændablaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016 Ytra-Lón í Langanesbyggð – Úr heimsókn í Langanesbyggð – frekari umfjöllun um svæðið er á bls. 10 og 39 til 42: Húsfreyjan flutti til Íslands eftir að hún fékk norðurslóðabakteríuna Ábúendur á Ytra-Lóni reka gisti- þjónustu samhliða fjárbúskap. Þar er einnig verið að þjálfa smalahunda og gera tilraunir í skógrækt á 40 hekturum lands. „Eins og flestir aðrir bændur hér um slóðir rekum við fjárbú,“ segja Mirjam Blekkenhorst og Sverrir Möller, ábúendur á Ytra-Lóni í Langanesbyggð, „og fjöldinn er í kringum 460 vetrarfóðraðar kindur. Við erum líka með þrettán hesta.“ Gistiheimilið á Ytra-Lóni Á Ytra-Lóni, sem er í um fjórtán kílómetra fjarlægð frá Þórshöfn, er líka rekið gistiheimili þar sem eru níu íbúðir í útleigu. Ferðaþjónustan hér hefur ekki þróast eins hratt og annars staðar á landinu og aðsóknin svipuð milli ára. Það er einna helst að ég verði var við aukinn áhuga fuglaáhugamanna í svæðinu enda geta þeir séð hér vað-, mó-, bjarg- og sjófugla. Þeir stoppa lengur en aðrir ferðamenn og ég er mjög ánægð með það,“ segir Mirjam. „Það er stefna okkar að nýta allar afurðir sem til falla, endurnýta og versla sem mest í heimabyggð. Við kaupum inn umhverfismerktar vörur þegar við getum og rúmfötin og handklæðin sem við notum á gisti- heimilinu er Fair Trade-merkt. Sem þýðir að við erum viss um að fólkið sem býr rúmfötin og handklæðin til fær vel greitt fyrir sína vinnu. Þannig getum við látið gott af okkur leiða og gert ferðaþjónustuna umhverfi- svænni og með því að versla Fair Trade getum við treyst á það að fólk annars staðar í heiminum geti séð fjölskyldum sínum farborða.“ Border Collie-fjárhundar Sverrir er meðlimur í Smala- hundafélagi Íslands, hann á Border Collie-fjárhunda sem hann temur sjálfur og notar í göngum og leitir auk þess sem hundarnir vinna með fénu í kringum fjárhúsin. „Enda góður fjárhundur ómetanlegur og sparar manni ómæld spor.“ Skjólbelti, skógrækt og endurheimt votlendis „Við hófum tilraunir í skjólbelta- rækt 1998 og settum niður um 10 kílómetra af þrefaldri röð með brúnum alaskavíði, brekkuvíði, strandavíði, viðju, reyni alaskaösp og greni. Vöxturinn í skjólbeltunum er góður og alaskavíðirinn kominn vel á fjórða metra og lítið um afföll í þeim og greinilegt að það er hægt að rækta þau hér. Árið 2008 hófum við tilraunir í skógrækt á um 40 hektara svæði og höfum plantað um sex þúsund plöntum á ári síðan þá. Vöxturinn þar er fremur hægur og það hafa komið ár þar sem allar plönturnar sem við plöntuð- um út hafa drep- ist. Ætli hæstu plönturnar séu ekki sirka hnéhá- ar. Að megninu til eru þetta lerki og birki og svo hef ég prófað nokkr- ar aðrar tegundir. Stafafura og greni virðast geta lifað hér og reynir líka en hann kelur mikið. Það sem hefur komið best út er birki og ég nota langmest af því í dag. Hér er einnig í gangi verkefni sem fellst í endurheimt votlendis og þegar búið að moka ofan í um tólf kílómetra af skurðum.“ Frá Hollandi á Langanes Mirjam sem er hollensk segist hafa fengið norðurslóðabakteríuna þegar hún heimsótti Lappland. „Ég ólst upp í litlu þorpi í Hollandi með sveitabæjum allt í kring en síðan fór hraðbrautunum fjölgandi og með tímanum fannst mér eins og þær væru farnar að króa mig af. Ég prófaði að búa í borg í tæp þrjú ár en kunni ekki við það og fór að leita að einhverjum öðrum stað til að búa á. Árið 1988 kom ég fyrst til Íslands og ætlaði að vera hér í ár en endaði með að fara til Hollands til að ná í dótið mitt og ég hef verið hér síðan. Fyrsta vinna mín hér var að fara um landið með Vilhjálmi Knudsen um landið og taka myndir fyrir eld- gosasýningarnar hans. Síðan var ég á sveitabæ í Borgarfirði og þaðan fór ég norður á Hólssel á fjöllum og kynntist Sverri. Við fluttum svo hingað 1991 og höfum verið hér síðan.“ /VH Fréttir Sverrir Möller og Mirjam Blekkenhorst, bændur á Ytra-Lóni. Bændagisting á Ytra-Lóni. Íbúðarhúsið að Ytralóni. Smalahundar, Border c ollier, sem Sverrir er að rækta. Myndir / Vilmundur Hansen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.