Bændablaðið - 15.12.2016, Síða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Ytra-Lón í Langanesbyggð – Úr heimsókn í Langanesbyggð – frekari umfjöllun um svæðið er á bls. 10 og 39 til 42:
Húsfreyjan flutti til Íslands eftir að
hún fékk norðurslóðabakteríuna
Ábúendur á Ytra-Lóni reka gisti-
þjónustu samhliða fjárbúskap.
Þar er einnig verið að þjálfa
smalahunda og gera tilraunir í
skógrækt á 40 hekturum lands.
„Eins og flestir aðrir bændur hér
um slóðir rekum við fjárbú,“ segja
Mirjam Blekkenhorst og Sverrir
Möller, ábúendur á Ytra-Lóni í
Langanesbyggð, „og fjöldinn er í
kringum 460 vetrarfóðraðar kindur.
Við erum líka með þrettán hesta.“
Gistiheimilið á Ytra-Lóni
Á Ytra-Lóni, sem er í um fjórtán
kílómetra fjarlægð frá Þórshöfn, er
líka rekið gistiheimili þar sem eru
níu íbúðir í útleigu.
Ferðaþjónustan hér hefur ekki
þróast eins hratt og annars staðar á
landinu og aðsóknin svipuð milli ára.
Það er einna helst að ég verði var
við aukinn áhuga fuglaáhugamanna í
svæðinu enda geta þeir séð hér vað-,
mó-, bjarg- og sjófugla. Þeir stoppa
lengur en aðrir ferðamenn og ég er
mjög ánægð með það,“ segir Mirjam.
„Það er stefna okkar að nýta
allar afurðir sem til falla, endurnýta
og versla sem mest í heimabyggð.
Við kaupum inn umhverfismerktar
vörur þegar við getum og rúmfötin
og handklæðin sem við notum á gisti-
heimilinu er Fair Trade-merkt. Sem
þýðir að við erum viss um að fólkið
sem býr rúmfötin og handklæðin til
fær vel greitt fyrir sína vinnu. Þannig
getum við látið gott af okkur leiða
og gert ferðaþjónustuna umhverfi-
svænni og með því að versla Fair
Trade getum við treyst á það að fólk
annars staðar í heiminum geti séð
fjölskyldum sínum farborða.“
Border Collie-fjárhundar
Sverrir er meðlimur í Smala-
hundafélagi Íslands, hann á Border
Collie-fjárhunda sem hann temur
sjálfur og notar í göngum og leitir
auk þess sem hundarnir vinna með
fénu í kringum fjárhúsin. „Enda
góður fjárhundur ómetanlegur og
sparar manni ómæld spor.“
Skjólbelti, skógrækt og
endurheimt votlendis
„Við hófum tilraunir í skjólbelta-
rækt 1998 og settum niður um
10 kílómetra af þrefaldri röð með
brúnum alaskavíði, brekkuvíði,
strandavíði, viðju, reyni alaskaösp
og greni. Vöxturinn í skjólbeltunum
er góður og alaskavíðirinn kominn
vel á fjórða metra og lítið um afföll
í þeim og greinilegt að það er hægt
að rækta þau hér.
Árið 2008 hófum við tilraunir
í skógrækt á um 40 hektara svæði
og höfum plantað um sex þúsund
plöntum á ári síðan þá. Vöxturinn
þar er fremur hægur og það hafa
komið ár þar sem allar plönturnar
sem við plöntuð-
um út hafa drep-
ist. Ætli hæstu
plönturnar séu
ekki sirka hnéhá-
ar. Að megninu til
eru þetta lerki og
birki og svo hef
ég prófað nokkr-
ar aðrar tegundir.
Stafafura og greni
virðast geta lifað
hér og reynir líka
en hann kelur
mikið. Það sem
hefur komið best út er birki og ég
nota langmest af því í dag.
Hér er einnig í gangi verkefni
sem fellst í endurheimt votlendis
og þegar búið að moka ofan í um
tólf kílómetra af skurðum.“
Frá Hollandi á Langanes
Mirjam sem er hollensk segist hafa
fengið norðurslóðabakteríuna þegar
hún heimsótti Lappland. „Ég ólst
upp í litlu þorpi í Hollandi með
sveitabæjum allt í kring en síðan
fór hraðbrautunum fjölgandi og
með tímanum fannst mér eins og
þær væru farnar að króa mig af.
Ég prófaði að búa í borg í tæp þrjú
ár en kunni ekki við það og fór að
leita að einhverjum öðrum stað til
að búa á. Árið 1988 kom ég fyrst
til Íslands og ætlaði að vera hér í ár
en endaði með að fara til Hollands
til að ná í dótið mitt og ég hef verið
hér síðan.
Fyrsta vinna mín hér var að fara
um landið með Vilhjálmi Knudsen
um landið og taka myndir fyrir eld-
gosasýningarnar hans. Síðan var ég
á sveitabæ í Borgarfirði og þaðan
fór ég norður á Hólssel á fjöllum
og kynntist Sverri. Við fluttum svo
hingað 1991 og höfum verið hér
síðan.“
/VH
Fréttir
Sverrir Möller og Mirjam Blekkenhorst, bændur á Ytra-Lóni.
Bændagisting á Ytra-Lóni.
Íbúðarhúsið að Ytralóni.
Smalahundar, Border c
ollier, sem Sverrir er að
rækta.
Myndir / Vilmundur Hansen