Bændablaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 75
75Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Vestfirska for-
lagið hefur
gefið út bókina
Þorp verður
til á Flateyri
Eftir Jóhönnu
G u ð r ú n u
Kristjáns dóttur
með teikning-
um Frey dísar
K r i s t j á n s -
dóttur. Um er að ræða 1.
hefti af þrem sem væntanleg eru.
Flateyri við Önundarfjörð varð til
sem þorp á síðari hluta 19. aldar. Eins
og önnur þorp við sjávarsíðuna allt
í kringum landið voru fiskveiðar og
vinnsla aflans sá atvinnugrunnur sem
gerði búsetu á mölinni eftirsóknar-
verða fyrir þá sem voru að koma
undir sig fótunum.
Í þessu verki er grundvöllurinn
fréttaefni úr sendibréfum sem rituð
voru á Flateyri um aldamótin 1900
og eru þau hluti tveggja bréfasafna
sem hafa nú um 100 ára skeið legið
þar í ferðakofforti og kommóðu-
skúffu.
Eins og mörgum er í fersku minni
tilnefndi Fagráð í hrossarækt alls
16 ræktunarbú til sérstakrar
viðurkenningar fyrir framúrskar-
andi ræktunarárangur á árinu
2016. Heiðursviðurkenninguna
ræktunarbú ársins 2016 hlutu
Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar,
ræktun þeirra Bergs Jónssonar
og Olil Amble, á uppskeruhátíð
hestamanna þann 5. nóvember
síðastliðinn.
Í vali sem þessu eru margir til
kallaðir en fáir útvaldir. Mikill fjöldi
búa náði afgerandi góðum árangri
á sýningaárinu 2016. Val Fagráðs
er því aldrei auðvelt, s.s. hvar á að
draga mörkin hverju sinni í fjölda
tilnefndra búa en þar er ekki um
fasta tölu að ræða milli ára enda
oft lítið sem aðskilur eftirtektarverð
bú og árangur þeirra. Tilnefningar
Fagráðs eru fyrst og síðast hvatn-
ing og verðskuldað hrós en ekki til
þess gerðar að ýta undir „keppni-
svæðingu“ í hrossarækt og kynbóta-
dómum. Kynbótadómar hrossa eru
alltaf fyrst og síðast dómar búfjár og
grunntilgangurinn að afla upplýsinga
sem nýtast öllum ræktendum jafnt
og eru grunnur að kynbótaspá/kyn-
bótamati íslenskra hrossa hvar sem
er í heiminum. Því fleiri hross sem
dæmd eru því sterkari og öruggari
gagnaöflun og spá um gildi gripa
fyrir ræktunarstarfið.
Til að afmarka val ræktunarbúa
og leiða að niðurstöðu eru fyrst til-
greind öll hrossaræktarbú sem sýnt
hafa fjögur eða fleiri hross í fullnað-
ardómi á árinu. Að auki verða minnst
tvö að hafa náð aðaleinkunn 8,0 eða
hærra. Þau bú sem þola þessa síu
hafa náð afar athygliverðum árangri.
Þá tekur við röðun búa fyrir með-
alaldur sýndra hrossa, röðun eftir
meðaleinkunn og röðun eftir fjölda
sýndra hrossa. Ákveðið var í ár að
breyta reiknireglu þeirri sem notuð
er við valið. Búum hefur verið raðað
upp eftir meðalaldri sýndra hrossa,
meðaleinkunn þeirra og fjölda. Nú
var ákveðið að leiðrétta einkunnir
eftir aldri líkt og gert er við kyn-
bótamatsútreikninga og taka á þann
hátt tillit til mismunandi aldurs.
Þetta gerir allar einkunnir saman-
burðarhæfar áður en búunum er
svo raðað upp eftir leiðréttum ein-
kunnum og fjölda sýndra hrossa. Þá
reiknast afkvæmaverðlaunahross
(stóðhestar og hryssur) til stiga fyrir
sína ræktendur samkvæmt föstum
reglum þar um.
Í meðfylgjandi töflu eru öll
búin, 72 að tölu, sem uppfylltu
kröfur um fjögur fulldæmd hross
og minnst tvö yfir 8 á sýningarár-
inu 2016. Dálkarnir sýna meðaltal
aðaleinkunnar (ekki aldursleiðrétt),
meðalaldur sýndra hrossa og fjölda
fullsýndra hrossa, þ.e. fjölda hrossa
að baki meðaltölum. Þá er sérstak-
lega tilgreint í síðasta dálknum ef
afkvæmahross leggja til stiga fyrir
búið á árinu.
Sérstakar tilnefningar Fagráðs
Til upprifjunar hlutu 16 bú sérstaka
tilnefningu Fagráðs á liðnu hausti. Í
stafrófsröð þessi:
• Árbæjarhjáleiga II / Marjolijn
Tiepen, Kristinn Guðnason og
fjölsk
• Berg / Anna Dóra Markúsdóttir
og Jón Bjarni Þorvarðarson
• Efsta-Sel / Hilmar Sæmundsson
og Daníel Jónsson
• Garðshorn / Agnar Þór
Magnússon og Birna
Tryggvadóttir Thorlacius
• Hamarsey / Hannes Sigurjónsson
og Inga Cristina Campos
• Hof / Lilja Sigurlína Pálmadóttir
• Hvolsvöllur / Ásmundur
Þór Þórisson og Helga
Friðgeirsdóttir
• Ketilsstaðir/Syðri-Gegnis hólar
/ Bergur Jónsson og Olil Amble
• Kirkjubær / Ágúst Sigurðsson,
Unnur Óskarsdóttir og fjölsk.
• Kjarnholt I / Guðný
Höskuldsdóttir og Magnús
Einarsson
• Koltursey / Elías Þórhallsson,
Pétur Jónsson og fjölskyldur
• Prestsbær / Inga og Ingar
Jensen
• Rauðalækur / Eva Dyröy
og Guðmundur Friðrik
Björgvinsson
• Skipaskagi / Jón Árnason og
Sigurveig Stefánsdóttir
• Torfunes / Baldvin Kr.
Baldvinsson
• Þúfur / Gísli Gíslason og Mette
Mannseth.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Rætunarbú ársins 2016
Ræktunarbú Landnr. Mt. A.eink M.aldur Fjöldi
Auðsholtshjáleiga 171673 Gunnar Arnarson, Kristbjörg Eyvindsdóttir og fjölskylda 8,05 5,60 10 Afkv.
Álfhólar 163925 Sara Ástþórsdóttir 8,03 5,75 8
Árbakki 164961 Hulda Gústafsdóttir, Hinrik Bragason og fjölsk., Árbakki hestar ehf. 8,03 6,40 6
Árbæjarhjáleiga II 165066 Marjolijn Tiepen, Kristinn Guðnason og fjölsk. 8,26 6,29 7
Ármót 164471 Ármótabúið ehf. 8,05 5,57 7
Bakkakot 164473 Fjölskyldan Bakkakoti 8,02 8,00 4
Berg 136596 Anna Dóra Markúsdóttir, Jón Bjarni Þorvarðarson og fjölsk. 8,25 6,13 8
Borg 165363 Jóhann Garðar Jóhannesson, Sigríður Elka Guðmundsdóttir. 8,15 6,71 7
Brautarholt 136195 Björn, Snorri og Þrándur Kristjánssynir 8,08 6,10 10 Afkv.
Dalland 123625 Gunnar Dungal og Þórdís Sigurðardóttir, Hestamiðstöðin Dalur ehf. 8,14 5,86 7 Afkv.
Efri-Hreppur 133954 Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir 8,10 5,00 5 Afkv.
Efri-Rauðalækur 152481 Fjölskyldan Efri-Rauðalæk 7,99 5,78 9
Efsta-Sel 199842 Hilmar Sæmundsson og Daníel Jónsson 8,33 5,50 6
Einhamar 2 199124 Hjörleifur Jónsson og Sif Ólafsdóttir 8,04 5,43 7
Eyland 163935 Davíð Matthíasson og Rut Skúladóttir 8,11 6,25 4
Eystra-Fróðholt 164478 Ársæll Jónsson, Anna Fía Finnsdóttir og fjölsk. 8,11 6,44 9
Fet 165077 Hrossaræktarbúið FET ehf. 8,09 5,71 14
Fornusandar 163765 Finnbogi, Magnús Þór og Tryggvi Einar Geirssynir 7,98 7,00 4
Garðshorn 152487 Agnar Þór Magnússo og Birna Tryggvadóttir Thorlacius 8,12 4,17 6
Gauksmýri 144465 Jóhann Albertsson og fjölskylda, Gauksmýri ehf. 8,10 5,75 4
Grafarkot 144468 Fjölskyldan Grafarkoti 8,11 7,00 7
Gunnarsstaðir 154549 Fjóla Runólfsdóttir og Jóhannes Sigfússon 8,07 7,20 5
Hafsteinsstaðir 145977 Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson 7,93 5,17 6
Halakot 166233 Svanhvít Kristjánsdóttir, Góðhestar ehf 8,09 7,75 4
Hamarsey 212450 Hannes Sigurjónsson og Inga Cristina Campos 8,27 6,20 5
Hemla II 163948 Lovísa Herborg Ragnarsdóttir og Vignir Siggeirsson 8,06 4,80 5
Hestheimar 165277 Marteinn Þ. Hjaltested, Lea Helga Ólafsdóttir, Hestheimar ehf. 8,13 6,20 5
Hjarðartún 164168 Óskar Eyjólfsson 8,11 6,25 4
Hlemmiskeið 3 166466 Árni Svavarsson og Inga Birna Ingólfsdóttir 8,07 5,00 4
Hof 14653X Lilja Sigurlína Pálmadóttir 8,29 5,75 4
Hvolsvöllur 860600 Ásmundur Þór Þórisson, Helga Friðgeirsdóttir og fjölsk. 8,18 5,00 4
Íbishóll 146044 Elisabeth Jansen og Magnús Bragi Magnússon 7,90 6,40 10
Kagaðarhóll 144759 Guðrún J. Stefánsdóttir og Víkingur Þ. Gunnarsson 8,13 6,20 5
Ketilsst./S-Gegnishólar 157520/165499 Bergur Jónsson og Olil Amble 8,24 5,45 20 Afkv.
Kirkjubær 164526 Ágúst Sigurðsson, Unnur Óskarsdóttir og fjölsk., Kirkjubæjarbúið sf. 8,34 5,50 4
Kjarnholt I 167127 Guðný Höskuldsdóttir og Magnús Einarsson 8,33 6,60 5
Kollaleira 158201 Hans Friðrik Kjerulf 7,90 5,60 5 Afkv.
Koltursey 213559 Elías Þórhallsson, Pétur Jónsson og fjölskyldur 8,25 6,75 8
Leirubakki 164988 Anders Hansen og fjölskylda. 8,06 4,50 4
Litlaland 171767 Jenný D. Erlingsdóttir og Sveinn S. Steinarsson 8,03 6,50 4
Litli-Garður 152718 Herdís Ármannsdóttir og Stefán Birgir Stefánsson 8,08 6,00 4
Lynghóll 198960 Árni Þorkelsson og Jakobína Jónsdóttir 8,07 6,67 6 Afkv.
Lækjarbrekka 2 159541 Pálmi Guðmundsson 8,17 5,50 4
Ós 152339 Fjölskyldan Ósi 8,07 6,00 4
Prestsbær 1008 Inga og Ingar Jensen, Prestsbær ehf 8,55 6,25 4
Rauðalækur 16507x Eva Dyröy, Guðmundur Fr. Björgvinsson, Takthestar ehf. 8,26 5,00 5
Sandhólaferja 165414 Sandhólaferjubú ehf 8,05 7,00 4
Sauðárkrókur 510000 Guðmundur Sveinsson og fjölsk. 8,01 8,40 5
Saurbær 146218 Fjölskyldan Saurbæ 8,08 5,75 4
Seljabrekka 123762 Ernir Kristján Snorrason, Seljabrekkubúið 7,99 6,83 6
Skáney 134459 Fjölskyldan Skáney, Borgarfirði 7,87 7,33 6
Skipaskagi 1016 Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir, Skipaskagi ehf. 8,27 5,83 6
Skíðbakki III 163895 Erlendur Árnason og Sara Pesenacker 8,04 5,00 5
Steinnes 144728 Magnús Jósefsson og fjölsk. 7,90 5,71 14
Steinsholt 133796 Jakob Svavar Sigurðsson og Sigurður Guðni Sigurðsson 8,05 5,20 5
Stóra-Vatnsskarð 146078 Benedikt G. Benediktsson og fjölsk. 8,10 5,50 6
Strandarhjáleiga 163970 Þormar Andrésson, Sigurlín Óskarsdóttir og fjölsk. 8,08 5,33 9
Strandarhöfuð 163971 Auður M. Möller, Guðmundur M. Stefánsson, Strandarhöfuð ehf. 8,00 6,80 5
Stuðlar 171808 Edda Björk Ólafsdóttir og Páll Stefánsson 8,18 7,75 4
Syðra-Holt 151975 Anton Páll Níelsson og Inga María S. Jónínudóttir 8,08 7,40 5
Syðstu-Fossar 133909 Unnsteinn Snorri Snorrason og Snorri Hjálmarsson 8,20 6,00 4
Torfunes 153468 Baldvin Kr. Baldvinsson 8,15 5,17 12 Afkv.
Túnsberg 166835 Gunnar Kristinn Eiríksson og Magga Brynjólfsdóttir 7,91 6,00 5
Varmalækur 146245 Björn Sveinsson og fjölskylda. 8,12 6,56 9
Varmá 171610 Janus Halldór Eiríksson 8,07 5,25 4
Vatnsleysa 146423 Björn Friðrik Jónsson og fjölskylda, Vatnsleysubúið ehf. 7,95 9,29 7
Vesturkot 166500 Finnur Ingólfsson og fjölskylda, Vesturkot ehf 8,02 5,40 5 Afkv.
Vorsabær 166502 Björn Jónsson og fjölskylda 7,98 7,50 4
Vöðlar 202681 Ástríður Lilja Guðjónsdóttir, Margeir Þorgeirsson og fjölsk. 8,10 5,00 4
Ytra-Vallholt 146047 Björn G. Friðriksson og Harpa H. Hafsteinsdóttir, Vallholt ehf. 8,10 5,67 6 Afkv.
Þjóðólfshagi 1 165164 Sigurður Sigurðarson og Sigríður Arndís Þórðardóttir 8,08 6,80 10
Þúfur 146606 Mette Mannseth og Gísli Gíslason 8,20 5,60 10
Ræktunarbú ársins 2016:
Mikill fjöldi búa náði afgerandi góðum árangri
Þorvaldur Kristjánsson
ábyrgðarmaður í
hrossarækt
thk@rml.is
MENNING&LISTIR
Þorp verður til