Bændablaðið - 17.01.2019, Side 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 20192
FRÉTTIR
Nautakjöt 631.074 848.661 761.874
Svínakjöt 975.764 1.368.141 845.378
Alifuglakjöt - kjúklingar 1.037.077 1.206.523 912.716
Kalkúnakjöt 60.852 120.376 69.864
Reykt, saltað og þurkað kjöt 174.592 220.261 216.447
Mjólk, mjólkur- og undarennuduft og rjómi 50.198 151.303 128.463
Ostar 326.669 509.809 470.793
Tómatar 1.204.551 1.484.291 1.409.911
Paprika 1.483.947 1.575.671 1.420.986
Sveppir 231.702 283.084 267.497
Pylsur og unnar kjötvörur 287.011 622.454 547.894
Töluverðar breytingar í innflutningi landbúnaðarafurða frá 2016:
Innflutningur sumra afurða
hefur allt að þrefaldast
– Mjólkurafurðir og nautakjöt skora hæst, en heldur virðist draga úr innflutningi á svína og alifuglakjöti
Innflutningur á landbúnaðar-
afurðum hefur farið vaxandi
undanfarin ár. Samanburður
milli áranna 2016 og 2017 sýndi
umtalsverðan mun, allt að
þreföldun í einstaka vöruflokkum
eins og mjólkurafurðum.
Fyrstu 11 mánuði ársins 2018
nálgast innflutningur flestra sömu
afurða toppinn frá 2017. Heldur
virðist þó hafa hægt á innflutningi
á svína- og alifuglakjöti samkvæmt
tölum Hagstofu Íslands.
Veruleg aukning varð í
innflutningi á mjólk, mjólkur- og
undanrennudufti og rjóma á árinu
2017. Jókst sá innflutningur þá á
milli ára um 201%, eða í rúmlega
151 tonn, sem þýðir þreföldun
á innflutningi ársins 2016 þegar
flutt voru inn rúm 50 tonn. Var
innflutningur í lok nóvember sl.
kominn í 84,9% af innflutningi alls
ársins 2017.
Ostainnflutningur tók líka
vel við sér á árinu 2017, en þar
var þá 56% aukning milli ára.
Virðist innflutningur á síðasta ári
verða svipaður en í lok nóvember
var magnið komið í 92,3% af
heildarinnflutningi osta 2017.
Mikill innflutningur á nautakjöti
hefur aukist mjög
Innflutningur á nautakjöti á fyrstu
11 mánuðunum 2018 námu tæplega
762 tonnum miðað við tæp 849
tonn allt árið 2017 sem var þá
34% aukning frá árinu 2016. Var
innflutningur nautakjöts kominn í
89,8% af innflutningi fyrra árs í lok
nóvember.
Í svínakjötinu virðist vera
samdráttur í innflutningi á síðasta
ári í kjölfar 40% aukningar á
milli áranna 2016 og 2017. Í lok
nóvember sl. var búið að flytja inn
rúm 845 tonn af svínakjöti á móti
rúmlega 1.368 tonnum allt árið
2017.
Búið var að flytja inn tæp 913
tonn af kjúklingakjöti í lok nóvember
sl. en flutt voru inn rúm 1.206 tonn
allt árið 2017. Virðist einnig vera
um nokkurn samdrátt að ræða í þeim
innflutningi á síðasta ári.
Innflutningur á kalkúnakjöti jókst
um 98% á milli áranna 2016 og 2017
er flutt voru inn 120 tonn. Mesta
kalkúnasalan er að jafnaði í lok árs,
en í nóvember var einungis búið að
flytja inn 58% af innflutningi fyrra
árs.
Nær óbreytt staða í
grænmetisinnflutningi á milli ára
Innflutningur á papriku, sveppum
og tómötum jókst um 6–23% á milli
áranna 2016 til 2017. Í lok nóvember
sl. var hann kominn í 90–95% af
innflutningi fyrra árs svo horfur voru
á litlum breytingum þar milli ára.
Vandi er að fullyrða um
áhrif aukins innflutnings á verð
á matvörum, en forsvarsmenn
innflytjenda hafa látið í veðri vaka
að aukinn innflutningur leiði til
aukinnar samkeppni og lægra verðs
til neytenda. Þeim láist þó að geta
þess að þetta leiðir ekki sjálfkrafa til
þess að fleiri aðilar séu á markaði,
sem er venjulega ein grunnforsenda
aukinnar samkeppni.
Nautakjöt hækkaði umfram
vísitölu
Sé litið til 4 ára tímabils frá janúar
2015 til desember 2018 hækkaði
vísitala neysluverðs um 10,6%. Á
sama tíma hækkaði verð á nautakjöti
um 13,1%, en innflutningur hefur
vaxið hvað hraðast á nautakjöti. Þetta
er nokkuð á skjön við fullyrðingar
um að aukinn innflutningur og aukið
framboð leiði til lægra vöruverðs
til neytenda. Aftur á móti lækkaði
verð á lambakjöti til neytenda
um 8,8%, samkvæmt vísitölu
neysluverðs. Vart þarf að geta þess
að enginn innflutningur hefur verið
á lambakjöti. /EB/HKr.
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir.
Landbúnaðarháskólinn:
Nýr rektor
Nú um áramótin tók Ragn-
heiður I. Þórarinsdóttir verk-
fræðingur við stöðu rektors
Landbúnaðarháskóla Íslands
og tekur við af Sæmundi
Sveinssyni sem gegnt hafði
stöðunni frá september 2017.
Ragnheiður lauk meistaranámi
í efnaverkfræði árið 1993 frá
Danska Tækniháskólanum
(DTU), doktorsnámi frá sama
skóla sumarið 2000 og meistara-
námi í viðskiptafræði MBA frá
Háskóla Íslands vorið 2002.
Ragnheiður hefur á
undanförnum árum starfað á eigin
verkfræðistofu, stýrt nokkrum
alþjóðlegum rannsóknar- og
nýsköpunarverkefnum og stofnað
nokkur sprotafyrirtæki. Samhliða
öðrum störfum hefur hún verið
gestaprófessor við umhverfis- og
byggingarverkfræðideild Háskóla
Íslands, kennt ýmis námskeið,
leiðbeint nemendum í meistara-
og doktorsnámi og starfað í
ýmsum matsnefndum á Íslandi
og á erlendum vettvangi.
Hún hefur áður starfað meðal
annars á Iðntæknistofnun Íslands,
Rannsóknastofnun byggingar-
iðnaðarins og Orkustofnun.
Að sögn Ragnheiðar leggur hún
áherslu á að hvetja til nýsköpunar
og efla kennslu, rannsóknir og
alþjóðlegt samstarf sem sé byggt
á sérstöðu Íslands og sjálfbærri
nýtingu náttúruauðlinda. /smh
Afurðahæsta kúabú landsins
2018 var Hóll í Svarfaðardal
– með 8,9 tonn að meðaltali á hverja árskú
Hóll í Svarfaðardal er nú
afurðahæsta kúabú landsins og
var með 8.902 kg að meðaltali eftir
hverja árskú 2018. Skákar Hól þar
með Brúsastöðum í Vatnsdal sem
nokkrum sinnum hefur vermt
efsta sætið. Í þriðja sæti var svo
Hraunháls í Helgafellssveit.
Það er athyglisvert hvað íslenskir
kúabændur hafa verið að ná miklum
árangri í ræktun, eldi og umhirðu
sinna gripa á undanförnum árum. Sést
það best á því að öll tíu afurðahæstu
búin eru að skila yfir 8 tonnum að
meðaltali á árskú. Þá koma nokkur
bú þar á eftir sem eru líka yfir 8.000
kg og enn fleiri sem dansa þar við
8.000 kg mörkin samkvæmt gögnum
Ráðgjafarþjónsutu landbúnaðarins
(RML).
Að einhverju leyti má trúlega
skýra þetta með tilkomu mjaltaþjóna
auk þess sem bændur hafa verið að
bæta alla aðstöðu og byggja upp ný
fjós til að mæta kröfum um bættan
aðbúnað á undanförnum árum. /HKr.
Árs-
Kýr Faðir afurðir Prótein Fita Bú
1 1035 Randafluga 13.947 Birtingaholt 4
2 1038 13.736 Hólmur
3 1639001-0848 13.678 Flatey
4 482 13.521 Syðri-Grund
5 1945 Drottning 13.481 Birtingaholt 1
6 0756 Krissa 13.142 Brúsastaðir
7 1526461-2113 13.018 Hranastaðir
8 0643 Rúna 12.897 Hóll
9 0278 Lóa 12.895 Bakki
10 765 12.707 Espihóll
Tíu nythæstu kýr landsins 2018 - staðan 11.1.2019
Bú í árslok 2018 Fjöldi Afurðir
Staðan 11. 01. 2019 Skýrsluhaldarar árskúa kg/árskú
1 Hóll 49,0 8.902
2 Brúsastaðir 52,1 8.461
3 Hraunháls 26,6 8.452
4 Hvanneyri 72,2 8.289
5 Syðri-Grund 50,4 8.237
6 Skáldabúðir 60,4 8.223
7 Hólmur 62,0 8.192
8 Hvammur 46,1 8.187
9 Reykjahlíð 73,2 8.166
10 Moldhaugar 64,1 8.144
Tíu efstu kúabú landsins með meðalnyt yfir 8.000 kg á árskú
Randafluga var afurðahæsta kýrin 2018:
Skilaði tæplega 14
tonnum af mjólk
Það er með ólíkindum hvað
íslensku kýrnar geta verið
afkastamiklar í framleiðslu á
mjólk þrátt fyrir smæð sína.
Á síðasta ári skilaði Randafluga
númer 1035 í Birtingaholti 13.947
kg af mjólk og kýr númer 1038 frá
Hólmi skilaði litlu minna eða 13.736
kg. Þá voru fimm kýr til viðbótar að
skila yfir 13 tonnum af mjólk.
Íslendingar mega því sannarlega
vera stoltir af sínum kúastofn sem er
líka að skila hágæða mjólk sem nýtt
er í fjölbreyttar afurðir. /HKr.